Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Qupperneq 27
Helgarblað 23. júní 2017 KYNNING
Hollustusetur í
Grensásnum
BæNdur í BæNum, GreNsásveGI 10
Lífræni matvörumark-aðurinn „Bændur í bænum“ flutti fyrr á
árinu frá Nethyl 2c yfir á
Grensásveg 10, í húsnæði
gömlu eJs-búðarinnar.
Gunnar Örn Þórðarson hjá
„Bændum í bænum“ er
afar ánægður með þessa
breytingu:
„Ég held að það sé gott
að fá aukna hollustu hingað
í hverfið og að hún falli vel
inn í þá fjölbreyttu starf-
semi sem hér er að finna.
slagorðið okkar er Borðaðu
þér til bóta og það er í fullu
gildi hér á Grensásnum. við
leggjum áherslu á ferska,
heilnæma matvöru og liggur
metnaður okkar í því að hafa
alltaf ferskustu vörurnar á
boðstólum. Núna liggur fyrir
að auka vöruúrvalið, bæta
við hreinlætisvörum og öðru
sem okkur hefur þótt vanta í
vöruúrvalið. en allt skal vera
lífrænt og umhverfisvænt.
Bændur í bænum er alvöru
bændamarkaður. við rekum
einnig Garðyrkjustöðina Akur
og sjáum því um vörunar
okkar, allt frá því þeim er sáð
þar til við afhendum þær
yfir búðarborðið. Því erum
við mjög stolt af. Aðrar vörur
koma síðan frá öðrum lífræn-
um framleiðendum sem við
erum í góðum tengslum við.
við seljum aðeins vörur
sem standast okkar kröf-
ur um lífræna framleiðslu,
heiðarleika, gegnsæi og
rekjanleika í viðskiptum. við
flytjum inn ávexti frá eosta
í Hollandi sem á vörumerkið
Nature & more, og þurrvöru
frá saltå kvarn í svíþjóð.
viðskiptavinir geta spurt
um hvaðeina sem snertir
vörurnar, framleiðslu, flutning
og matseldina. Hér er mikil
sérþekking til staðar og oft
eru framleiðendurnir sjálfir á
staðnum.
við erum með mjólkur-
afurðir frá Biobú, útigræn-
meti frá Hæðarenda og
grænmeti og ost frá skaft-
holti. Brekkulækur sér okkur
fyrir lamba- og nautakjöti og
Litla gula hænan sér okkur
fyrir velferðarkjúklingi. einnig
erum við með hráfæðiskökur
frá organic.is og þurrvörur
frá Kaja Organic, svo fátt eitt
sé nefnt.“
Besta leiðin til að kynna sér
úrvalið er að koma í verslun-
ina að Grensásvegi 10 en hún
er opin virka daga frá kl. 11 til
18.15. einnig er áhugavert og
gagnlegt að skoða netversl-
unina á slóðinni baenduri-
baenum.is.
myndir sigtryggur Ari