Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Side 28
28 sakamál Helgarblað 23. júní 2017 n Irinu þótti sopinn góður n Greip til örþrifaráða til að fjármagna vínkaup R ússneska konan Irina Gai- damachuk sat ekki auð- um höndum um átta ára skeið, 2002 til 2010, í Sverdlovsk-héraði í Rússlandi. Irina fæddist árið 1972 í bænum Naygan og varð ung að árum háð áfengi. Upp úr 1990 fluttist Irina til Krasnoufimsk, hitti þar mann sem hún giftist og eignaðist með tvö börn. En áfengisdjöfullinn hafði tek- ið sér bólfestu í Irinu sem nærði hann ótæpilega á vodka. Sam- býlismanni hennar hugnaðist ekki ástandið og forðaðist hann í lengstu lög að láta Irinu fá fé, taldi enda víst að það færi allt í áfengi. En Irina dó ekki ráðalaus. Ódýr mannslíf Árið 2002 brá Irina á það ráð að þykjast vinna hjá félagsþjónust- unni og undir því yfirskini komst hún inn á heimili grunlauss fólks á aldrinum 61 árs til 89 ára. Eftir að hafa áunnið sér traust fólksins kom hún því að óvöru og sló það í höfuðið með hamri eða öxi. Síðan hirti hún það fé sem var að finna í veskjum eða hand- töskum fórnarlamba sinna. Á átta ára tímabili hafði Irina ekki nema sem samsvaraði um 130.000 ís- lenskum krónum upp úr krafsinu og sum fórnarlamba henna voru ekki nema 2.500 króna virði. Við lögregluna sagði hún: „Ég gerði það fyrir peninga. Ég vildi eingöngu vera venjuleg móðir, en ég hafði óstjórnlega þörf fyrir áfengi. Yuri, maðurinn minn, vildi ekki láta mig fá pening fyrir vodka.“ Slapp með líftóruna Aðeins einum lífeyrisþega tókst að flýja þau örlög sem Irina, sem hafði meðal annars fengið viðurnefnið Úlfynjan frá Krasnoufimsk, hafði ætlað honum og vísbendingar frá honum gerðu lögreglunni ljóst að gamalmennamorðinginn var í raun kona. „Í upphafi töldum við að aðeins karlmaður væri nógu grimmur til morða af þessu tagi,“ var haft eftir einum lögreglumanni. Reyndar hafði lögreglan í Krasnoufimsk gengið út frá því við rannsókn morðanna sem Irina framdi að morðinginn væri karlmaður íklæddur kvenmannsfötum. Lögreglan afrekaði einnig að handtaka blásaklausa konu, Irinu Valeyeva, þá 29 ára, og ná út úr henni játningu. Í gervi málara Árið 2010, eftir að hafa yfirheyrt yfir 3.000 manns, tókst lögreglunni loksins að hafa hendur í hári Irinu, sem hafði þá kastað gervi starfs- manns félagsþjónustunnar fyrir róða og þóttist vera málari. Síðasta fórnarlamb hennar var Alexandra Povaritsyna, 81 árs, og bauðst Irina til að mála íbúð henn- ar. Þegar Irina yfirgaf íbúðina var Alexandra liðið lík. Nágrannar gáfu lögreglunni lýs- ingu á „málaranum“ og Irina var handtekin. Fimm ára afsláttur Þeir sem til Irinu þekktu komu af fjöllum og gátu hreinlega ekki trúað því að hún væri fjöldamorðingi. Eiginmaður hennar sagði: Ég bjó með henni í fjórtán ár og hafði ekki grænan grun um þetta.“ Í júní 2012 var Irina dæmd til 20 ára fangelsisvistar, sem ættingjum fórnarlamba hennar fannst helst til vægur dómur. Dómarinn í mál- inu sagðist hafa dregið fimm ár frá 25 ára hámarksrefsingu vegna þess að Irina væri móðir. n „Ég vildi eingöngu vera venjuleg móðir, en ég hafði óstjórnlega þörf fyrir áfengi. Úlfynjan frá KrasnoufimsK Við réttar­ höldin Irina fékk ekki há- marksdóm. Á vettvangi Irina notaði hamar eða öxi við morðin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.