Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Síða 36
36 menning Helgarblað 23. júní 2017 U mdeild fjármálafyrirtæki sem eru innblástur nýrra olíumálverka eftir listmál- arann Þránd Þórarinsson hafa ekki þegið boð um að kaupa verkin í forsölu, en hrægamm- ar sem tæta í sig borgarbúa í her- bergiskytru og nasískir Aryan- bankamenn í einkaþotum eru meðal viðfangsefna nýrra Reykja- víkurmynda Þrándar sem hann sýnir í Gallerí Port um þessar mundir. Þrándur segir að haft hafi verið samband við fjármálafyrirtækin sem veittu hinum innblástur við gerð verkanna, fjárfestingar- fyrirtækið Gamma Capital Management og Arion banka, og þeim boðið að kaupa verkin. En bæði fyrirtæki hafa verið dug- leg að kaupa íslenska myndlist á undanförnum árum. „Ég fékk engin viðbrögð frá Arion banka, enda hefði kannski verið undarlegt að þeir hefðu vilj- að hafa svona fasistamynd uppi á vegg hjá sér. Hins vegar sagðist einhver frá Gamma ætla að koma og kíkja á þetta,“ segir Þrándur. Það kemur mér ekki á óvart að Gamma sé opnari fyrir þessu en bankamennirnir. Þeir virðast að minnsta kosti alveg tilbúnir að snerta á pólitík, það má til dæmis nefna að inni á skrifstofu hjá þeim eru skilti aðgerðasinnans Helga Hóseassonar og þeim stillt upp eins og listaverkum. „Já, kannski af því að þeir eru bara úlfar í úlfsgæru.“ Vonast til að vera gerður að borgarlistamanni Eins og áður málar Þrándur myndir í anda hinna klassísku meistara málverksins en með nú- tímalegum snúningi. Þetta eru líflegar fígúratífar olíumyndir, gróteskar senur úr þjóðsögum, mannlífs- og borgarmyndir sem flestar eiga sér stað í fantasískri Reykjavík, þar sem nútíma arkitektúr hefur aldrei náð að festa rætur. „Að megninu til eru þetta borgarmyndir á sýningunni, Reykjavíkurmyndir. Ég er alltaf að vonast til þess að þeir fari að gera mig að borgarlistamanni. Ef ég mála bara nógu mikið af Reykja- víkurmyndum hlýtur að koma að því,“ segir hann. Í verkunum á sýningunni sigla borgarbúar niður lækinn sem áður rann meðfram Lækjar- götu, dansa og dorga á frosinni Reykjavíkurtjörn, þá taka lundar yfir miðbæinn í verki sem kveik- ir hugrenningatengsl við hryll- ingsmynd Alfreds Hitchcock „Birds“ og í enn öðru verki bland- ar Þrándur saman tilvísun í mál- verkið „Nighthawks“ eftir banda- ríska 20. aldar málarann Edward Hopper og Hamborgarabúllunni við Geirsgötu. Sýningin Gustkaverk stendur yfir í Gallerí Port, Laugavegi 23b, til 16. júlí. n Umdeild fjármálafyrirtæki fá það óþvegið í nýjum málverkum Gamma og Arion banki hafa ekki þegið boð um að kaupa verk eftir Þránd Þórarinsson í forsölu Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is Mun ylja mörgum skjólstæðingum okkar Aryan banka-verkið mun hanga uppi á skrifstofu KRST lögmanna „Þetta minnir mann á að hafa réttu gildin í heiðri í störfum sínum,“ segir Jón Bjarni Kristjánsson, hér- aðsdómslögmaður og Þrándar-aðdáandi. Jón Bjarni keypti Aryan banka-verkið fyrir hönd KRST lögmanna sem hann rekur ásamt tveim- ur bræðrum sínum og föður. Hann viðurkennir að þeir feðgar hafi ófáum sinnum þurft að kljást við bankana í réttarsalnum. „Í störfum okkar höfum við gætt hagsmuna manna sem hafa átt í ágreiningi við bankana og það einskorðast ekkert við Arion banka. Við höfum oft tekið slaginn við bankana með skjólstæðingum okkar svo ég held að það muni ylja mörgum þeirra að sjá þetta verk hér uppi á vegg. Við setj- um það annaðhvort upp í biðstofunni eða í fundarherberginu,“ segir Jón Bjarni kersknislega „En þetta er nú frekar í gamni gert en í hefndarhug gagnvart bank- anum.“ Þrándur Þórarinsson Hrægammar Þrándur tileinkaði fjárfestingafyrir- tækinu GAMMA eitt málverkanna L istakonan Tobba, Þorbjörg Magnea Óskarsdóttir, lét gamlan draum rætast á dögunum og opnaði sitt eigið gallerí, gallerí Garðars- hólma, í tæplega aldargömlu húsi við Hafnargötu í Reykjanes- bæ. „Það hefur alltaf verið draum- ur minn að opna mitt eigið gall- erí. Nú er ég orðin 42 ára svo það var ekki seinna vænna að láta drauminn rætast,“ segir Tobba sem hefur sjálf fengist við mynd- list, höggmyndagerð, skartgripa- gerð, húsgagnagerð og fjölmargt fleira frá unglingsaldri. „Þetta er sérstaklega spennandi því það er nánast ekkert að gerast hérna í bæn- um. Búðum er frekar lokað en hitt og fólk helst ekki hérna – það eru allir að fara til Reykja víkur. Það er ekkert gallerí í bænum og listamenn þurfa annaðhvort að fara til Reykjavíkur til að selja eða gera það heima hjá sér,“ segir hún. Galleríið er til húsa í rétt tæp- lega hundrað ára gömlu húsi við Hafnargötu 18 í Reykjanesbæ sem áður hýsti húsgagnaversl- unina Garðarshólma, og þaðan kemur nafn gallerísins. Tobba mun búa á efri hæð hússins og vera með vinnustofu en sýn- ingarrýmið verður á jarðhæð- inni. Í fyrstu mun Tobba sýna eigin verk í rýminu en hún hefur einnig fundið fyrir miklum áhuga frá öðrum listamönnum um að fá að sýna í galleríinu. „Núna eft- ir opnunina ætla ég líka að byrja að aftur að vera með námskeið í gegnum Símennt og verð þá lík- lega með þau í galleríinu,“ segir Tobba en hún hefur kennt á slík- um námskeiðum um allt land undanfarin ár. n kristjan@dv.is Opnar nýtt gallerí í Keflavík Listakonan Tobba Óskarsdóttir lætur drauminn rætast og opnar eigið gallerí

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.