Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Blaðsíða 43
menning - SJÓNVARP 43Helgarblað 23. júní 2017
Skáklandið
dv.is/blogg/skaklandid
Glæsibæ • www.sportlif.is
PróteinPönnukökur
Próteinís Próteinbúðingur
RÚV Stöð 2
07.00 KrakkaRÚV
07.01 Kioka (57:78)
07.07 Lautarferð með
köku (12:13)
07.12 Lundaklettur (9:39)
07.20 Símon (4:52)
07.27 Ólivía (28:52)
07.38 Hvolpasveitin (22:24)
08.00 Molang (24:52)
08.03 Morgunland (7:10)
08.30 Kúlugúbbarnir (13:20)
08.53 Friðþjófur forvitni
(6:6)
09.15 Hrói Höttur (47:52)
09.26 Skógargengið (3:52)
09.38 Zip Zip (3:21)
09.49 Lóa (37:52)
10.02 Alvinn og íkornarnir
(49:52)
10.15 Best í flestu (5:10)
(Best i mest)
11.00 Sjöundi áratugurinn
– Sjónvarpið kemur
til sögunnar (5:10)
(The Sixties)
11.45 Mugison Upptaka frá
tónleikum Mugison í
Hörpu 22. desember
2011.
13.05 Gyrðir
13.45 Landakort (Börnin út
og ferðamennirnir inn)
13.55 EM kvenna: Upp-
hitunarþáttur
14.50 Nýja-Sjáland -
Portúgal (Álfukeppn-
in í fótbolta) Bein
útsending frá leik Nýja-
Sjálands og Portúgals
í Álfukeppninni í
fótbolta sem haldin er í
Rússlandi.
16.50 Áfram konur (6:6)
(Up The Women II)
17.20 Veröld Ginu (3:8)
(Ginas värld II)
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Róbert bangsi (3:26)
18.15 Reikningur (9:9)
(Kalkyl)
18.30 Saga af strák (18:20)
(About a Boy II)
18.54 Lottó (25:52)
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.35 Veður
19.40 Super Buddies
(Ofurhvuttar)
21.05 Biloxi Blues (Her-
búðalíf)
22.50 Kartellet (Svikasam-
ráð) Dönsk spennumynd
um Lars Harbo sem erfir
fjölskyldufyrirtækið eftir
að hafa búið erlendis
um nokkurt skeið. Þegar
hann neitar að eiga í
ólöglegu samráði vand-
ast málið og óvíst er um
framtíð fyrirtækisins.
Leikstjóri: Charlotte
Sachs Bostrup. Leikarar:
Anders W. Berthelsen,
Lene Maria Christensen
og Leif Sylvester. Atriði
í þáttunum eru ekki við
hæfi ungra barna.
00.30 Kommúnan (Kollekti-
vet)
02.20 Útvarpsfréttir í
dagskrárlok
07:00 Strumparnir
07:25 Waybuloo
07:45 Nilli Hólmgeirsson
08:00 K3 (31:52)
08:10 Tindur
08:20 Með afa
08:30 Mæja býfluga
08:45 Stóri og litli
08:55 Elías
09:05 Víkingurinn Viggó
09:20 Pingu
09:25 Tommi og Jenni
09:50 Loonatics Unleashed
10:10 Ævintýri Tinna
10:30 Beware the Batman
10:55 Ninja-skjaldbökurnar
12:00 Bold and the Beautiful
13:45 Friends (24:24) Fylgstu
með ævintýrum, Ross,
Rachel, Joey, Phoebe,
Monicu og Chandler frá
byrjun.
14:10 Grand Designs (3:7)
Frábærir þættir þar
sem fylgst er með
stórkostlegum endur-
bótum á heimilum.
15:00 Property Brothers at
Home (3:4)
15:45 Britain's Got Talent
17:25 Út um víðan völl (6:6)
18:00 Sjáðu
18:30 Frétir Stöðvar 2
18:55 Sportpakkinn
19:05 Lottó
19:10 Top 20 Funniest (9:11)
19:55 Dare To Be Wild
21:35 Sausage Party
Hressileg teiknimynd
fyrir fullorðna frá 2016
frá framleiðendum
Pinapple Express, Bad
Neighbors og This is
the End. Eins og allan
annan mat í stór-
markaðinum dreymir
pylsuna Frank um að
einhver muni kaupa
hann og fara með hann
heim þar sem hann og
eigandinn muni lifa
áhyggjulausu lífi allt
þar til hann rennur út.
En eins og allir með
reynslu vita þá er
þetta misskilningur
hjá Frank og persónur
myndarinnar mæta
margar hverjar hroða-
legum örlögum þegar
heim er komið. Meðal
leikara eru Seth Rogen,
Kristen Wig, Jonah Hill,
Bill Hader, Michael Cera
og James Franco.
23:05 You Don't Know Jack
Áhugaverð og dramat-
ísk mynd með AL
Pacino í aðalhlutverki
og fjallar um líf og starf
hins umdeilda dr. Jack
Kevorkian sem helgað
hefur líf sitt baráttu
fyrir líknadrápi. Pacino
hlaut Emmy og Golden
Globe verðlaunin fyrir
frammistöðu sína.
01:15 The Meddler
02:55 Big Eyes
04:40 The Leisure Class
06:05 Friends (24:24)
06:00 Síminn + Spotify
08:00 Everybody Loves
Raymond (7:26)
08:20 King of Queens
09:05 How I Met Your
Mother
09:50 Odd Mom Out (5:10)
10:15 Parks & Recreation
(8:22)
10:35 Black-ish (21:24)
11:00 The Voice USA (9:28)
12:30 The Biggest Loser
(10:18)
14:00 The Bachelor (7:13)
14:45 Kitchen Nightmares
(1:2)
15:55 Rules of
Engagement (7:24)
16:20 The Odd Couple (7:13)
16:45 King of Queens
(16:23) Bandarískir
gamanþættir um
turtildúfurnar Doug og
Carrie.
17:10 The Good Place
(3:13) Bandarísk
gamanþáttaröð um
unga konu sem hefur
kvatt þetta og er fyrir
misskilning komin á
betri stað. Hún er eini
syndaselurinn í hinu
fullkomna himnaríki.
17:35 How I Met Your
Mother (22:24)
18:00 The Voice Ísland
(4:14)
19:05 Friends With Better
Lives (4:13) Gaman-
þáttaröð um sex vini
sem eru á mismunandi
stöðum í lífinu - gift,
fráskilin, trúlofuð og
einstæð.
19:30 Glee (4:24) Bandarísk
þáttaröð um söngelska
unglinga sem ganga í
Glee-klúbbinn, söng-
hóp skólans undir for-
ystu spænskukennar-
ans Will Schuester.
20:15 My Summer of Love
21:45 The Shape of
Things Rómantísk
gamanmynd frá 2003
með Gretchen Mol,
Paul Rudd, og Rachel
Weisz í aðalhlutverk-
um. Adam Sorenson er
einfaldur, óöruggur og
feiminn nemandi sem
listanema Evelyn og
þau verða kærustupar.
En hann breytist mikið
í kjölfarið. Myndin er
bönnuð börnum yngri
en 12 ára.
23:25 24: Legacy
03:55 After.Life
05:40 Síminn + Spotify
Sjónvarp Símans
Laugardagur 24. júní
McEnroe er
stoltur femínisti
T
enniskappinn og
Wimbledon- meistarinn
Jonn McEnroe segist
stoltur af því að vera
femínisti. Hann segir í viðtali við
Sunday Times að það að eiga dæt-
ur hafi gert hann meðvitaðan um
stöðu kvenna í íþróttaheiminum.
Hann segir fáránlegt að kven-
kyns tennisleikarar fái lægri
greiðslur en karlmennirnir.
McEnroe, sem er orðinn 58 ára
gamall, segist oft vera spurður um
hvort honum finnist að atvinnu-
konur í tennis eigi að fá jafnmikið
verðlaunafé og karlmenn þar sem
tenniskeppni þeirra sé venju-
legri styttri en karla. McEnroe á
gott svar við þessu og segir: „Þótt
kvikmynd sé þriggja og hálfs tíma
löng jafngildir það ekki því að hún
sé betri sem sú sem er níutíu mín-
útur.“
Seinna bindi sjálfsævisögu
McEnroe, But Seriously, kemur
út seinna í þessum mánuði.
Fyrra bindinu, Serious, lauk árið
2002 þegar hann hafði skilið við
leikkonuna Tatum O'Neal og stóð
í forræðisdeilu við hana sem lauk
með því að hann fékk forræði yfir
þremur börnum þeirra. McEnroe
hefur verið kvæntur söngkon-
unni Patty Smyth frá árinu 1997
og þau eiga tvær dætur. McEnroe,
sem þótti á árum áður hinn mesti
skaphundur, hefur mildast mjög
með árunum. Hann rekur lista-
gallerí í New York og segist nú
vera á betri stað en nokkru sinni
áður. n
kolbrun@dv.is
John McEnroe
Stoltur femínisti.
Karla-Magnús í París
L
engi hefur það verið kapps-
mál fyrirmanna í skákheim-
inum hér á landi og ytra að
koma skák að í sjónvarpi. Í
því skyni hefur ýmislegt verið brall-
að í gegnum tíðina. Íslandsmótinu
í atskák var t.d. komið á rétt fyr-
ir 1990 með það að leiðarljósi að
koma úrslitum þess í sjónvarp-
ið. Og lengi heppnaðist það vel og
úrslitaeinvígið hefur oft verið sýnt
hjá Ríkissjónvarpinu. Frekari til-
raunir til að koma skák í sjónvarp
hafa verið gerðar á síðustu árum
og þá sérstaklega fyrir tilstilli auk-
innar tölvusækni og snjallskjáa.
Það eykur möguleikann á hraðri
yfirferð skákskýrandans að hafa
snjallskjá til að fara yfir möguleika
keppenda. Skemmtilegur og hress
skákskýrandi er einnig mikilvæg-
ur. Einn sá þekktasti í heimin-
um er Bandaríkjamaður að nafni
Maurice Ashley. Maurice sá á það
til að lýsa skák rétt eins og um æsi-
legan körfuboltaleik væri að ræða.
Nálgun hans getur þannig ver-
ið ansi amerísk og markaðstengd
ef svo má segja. En hann er einnig
frábær skákmaður og fyrsti svarti
stórmeistarinn í heiminum. Hann
hefur náð góðum árangri í þjálfun
barna og unglinga í erfiðum hverf-
um Bandaríkjanna og flutti prýði-
legan fyrirlestur hér á landi fyrir fá-
einum árum.
Um þessar mundir fer fram at- og
hraðskákmót í París. Flestir af sterk-
ustu skákmönnum heims taka þátt
og þar á meðal Carlsen og Karjakín.
Canal Plus tekur þátt í þessu verk-
efni og sýnir beint frá mótinu. Það
er einmitt ástæða þess að mótið er
ekki kappskákmót; það er ekki jafn
gott sjónvarpsefni fyrir almenning
að sýna frá lengri skákum sem geta
tekið allt að 5-8 klukkutíma í senn.
Fyrstu þrjá dagana fer fram atskák-
mótið og seinni tvo hraðskákmótið.
Carlsen hefur byrjað vel á slóðum
nafna síns Karla-Magnúsar. n