Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Side 54
Mamma „taggaði“ mig í leikinn í gríni,“ segir Anna Lísa, ánægð með
að hafa verið valin þrátt fyrir að
vera ekki gallharður aðdáandi Zöru
Larsson. „Ég er ekki mikill aðdá-
andi, en veit auðvitað hver hún er,
hef hlustað á lögin hennar og er að
fara á tónleikana.“
Í lok maí var auglýst eftir tvífara
Zöru Larsson á Íslandi í færslu á
Facebook-síðu Senu og bauðst fólki
að merkja þá stúlku í skilaboð-
um sem því þótti líkjast Larsson.
Stúlkunum sem tilnefndar voru
var boðið í lazertag og pítsuveislu
í Skemmtigarðinum í Grafarvogi.
Í kjölfarið kom myndband af þeim
öllum og mynd af hverri og einni.
Síðan tók við kosning á Facebook
um hver þeirra væri líkust Larsson
og stóð Anna Lísa Hallsdóttir uppi
sem sigurvegari.
„Það var tekið upp myndband
af okkur í Skemmtigarðinum, síðan
fengum við allar númer og fólk gat
síðan valið á Facebook hver okkar
væri líkust Zöru,“ segir Anna Lísa.
„Ég fór síðan í „make-over“ fyrir
viku og Ásgeir sá um að greiða
mér, farða og velja fötin. Þetta var
bara skemmtilegt og vinkonunum
líst vel á þetta.“ Það var Ásgeir
Hjartarson hárgreiðslumeistari
sem sá um að greiða, farða og velja
fötin á Önnu Lísu. Hann er eigandi
Hairbrush ásamt konu sinni, Berg-
þóru Þórsdóttur förðunarfræðingi,
auk þess sem þau reka MASK –
Makeup & Airbrush Academy.
Þetta er þó ekki frumraun Önnu
Lísu fyrir framan myndavélarnar,
því hún hefur verið fyrirsæta í
hárbók. Með skólanum er Anna
Lísa í dansi. Faðir hennar, Hallur
Már, starfar á Mbl.is og afi hennar
er einn kunnasti fjölmiðlamaður
landsins, Hallur Hallsson. Aðspurð
hvort hún sé búin að ákveða hvað
hún ætlar að vinna við í framtíð-
inni og hvort að hún muni jafnvel
feta í fótspor föður síns og afa seg-
ist hún ekki viss. Enda nægur tími
til að ákveða það fyrir unga stúlku.
Hver er Zara Larsson?
Sænska söngkonan og lagahöf-
undurinn Zara Maria Larsson er
fædd 16. desember 1997 í Stokk-
hólmi. Hún vakti fyrst athygli á
tónlistarsviðinu þegar hún vann
hæfileikakeppnina Talang 2008,
þá tíu ára gömul. Hún fékk seinna
inngöngu í Adolf Fredrik's tónlist-
arskólann, en hafnaði því boði þar
sem hún ætlaði að eigin sögn ekki
að syngja í kór. Yngri systir hennar,
Hanna, er einnig söngkona og
meðlimur í hljómsveitinni Hanna
& Andrea.
Larsson hefur gefið út tvær
plötur. Sú fyrri „Introducing“
kom út í janúar 2013 og fór lagið
„Uncover“ í fyrsta sæti vinsælda-
lista í Svíþjóð, Danmörku og
Noregi. Í júlí sama ár var platan
orðin þreföld platínuplata í Svíþjóð.
Á plötunni „So Good“, sem kom út
í mars á þessu ári, vinnur hún með
listamönnum á borð við Ed Sheer-
an, Clean Bandit og Ty Dolla $ign.
Verðlaunuð og vinsæl
Larsson kom fram bæði á setn-
ingar- og lokaathöfn Evrópumeist-
arakeppninnar í fótbolta 2016 og
söng hún í lagi David Guetta „This
One's For You“ sem var opinbert
lag keppninnar. Zara var tilnefnd
í ár til tvennra BRIT-verðlauna og
NME-
verð-
launa
sem „besti nýi
listamaðurinn.“ Þrjú ár
í röð, 2015–2017, hefur
hún verið tilnefnd til
verðlauna á Gramm-
is, sem eru
hin sænsku
Grammy-verð-
laun, og í ár
var hún valin
listamaður
ársins. Hún er
einnig komin
á lista Time
Magazine yfir
30 áhrifamestu
táninga heims.
Mörg laga
hennar eru með
nokkur hund-
ruð milljón spilanir á Spotify og
Youtube og má þar nefna lögin „So
Good“, „Lush Life“, „Symphony“
og „Never Forget You“, en mynd-
bandið við síðastnefnda lagið er
tekið upp á Íslandi.
Anna Lísa
Hallsdóttir er
tvífari Zöru
Larsson
Hin sænska Larsson á leið til Íslands
Hver lokkur á sinn stað ásgeir
Hjartarson hjá
Hairbrush sá um að hár og förðun væri í st
íl Zöru Larsson.
Sænska söngkonan Zara larsson mun halda tónleika í Laugardalshöll í október
næstkomandi og af því tilefni var leitað að tvífara hennar á Íslandi. Eftir Facebook-
leik er hann fundinn: anna lísa Hallsdóttir, 13 ára nemi í Varmárskóla.
Smárabíó frumsýnir Baby Driver, nýjustu mynd Edgars Wright, þann 28.
júní næstkomandi í hinum nýja
S-Max sal og í samstarfi við Senu
gefum við miða á myndina. Þrír
einstaklingar verða dregnir út og
fá tvo miða hver. Breski leikstjór-
inn Edgar Howard Wright er vel
kunnur kvikmyndaáhugamönn-
um, en eftir hann liggja meðal
annars Shaun of the Dead, Scott
Pilgrim vs. the World, The World's
End og Hot Fuzz. Og nú er komið
að því að sjá nýjustu afurðina,
Baby Driver.
Myndin fjallar um Baby (Ansel
Elgort) sem er ungur og efnilegur
strákur sem sinnir því hættulega
starfi að keyra glæpamenn burt
frá vettvangi glæpa. Þrátt fyrir
ungan aldur er Baby sá besti í sínu
fagi. Þegar hann kynnist drauma-
prinsessunni (Lily James) og verð-
ur ástfanginn, verður hans heitasta
ósk sú að láta af glæpum og hefja
nýtt líf, en það er ekki auðgert.
Glæpakonungur (Kevin Spacey)
neyðir hann til að taka þátt í
hættulegu verkefni sem ógnar öllu
sem Baby er kært og gæti vel orðið
hans bani.
Með önnur hlutverk í myndinni
fara Jamie Foxx, Jon Bernthal, Eiza
González og Jon Hamm.
Baby Driver er þrátt fyrir krútt-
legan titil afburðasnjöll og fantavel
leikin glæpamynd og frábær
tónlist pakkar henni síðan saman
í eina bestu og skemmtilegustu
mynd sumarsins. Myndin hefur
fengið frábæra dóma og er þegar
þetta er skrifað með 100 prósent á
Rotten Tomatoes og 8,6 í meðal-
einkunn á IMDb.
Það eina sem þú þarft að gera
til að eiga kost á miðum á Baby
Driver í Smárabíói, er að senda
tölvupóst með nafni þínu og
símanúmeri á ragna@dv.is fyrir 28.
júní næstkomandi og taka fram
hvaða mynd Edgars Wright er þín
uppáhaldsmynd. Ef þú hefur ekki
séð neina þeirra, sem er kannski
ólíklegt, taktu samt þátt og sendu
tölvupóst. Vinningshafar verða
látnir vita með tölvupósti fyrir
hádegi þann 28. júní.
sænsk stjarna Zara Larsson er aðeins 19 ára, en þegar orðin stjarna.
Viltu miða á Baby Driver?
Sumarsmellur í S-Max sal Smárabíós
Hárkúnst
Það eru ýmis
trikk notuð til
að hárið líti vel
út. Myndir MuMMi Lú