Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Síða 60
AlltAf á hvolfi
sem krAkki
Karitas Harpa með nýtt lag í samstarfi við Daða Frey
Karitas Harpa Davíðsdóttir, 26 ára Sel
fyssingur, kom, sá og sigraði í annarri þáttaröð The
Voice Ísland í febrúar. Í dag, föstudaginn 23. júní,
frumflytur hún nýtt lag „Enn eitt kvöld,“ sem er sam
starfsverkefni hennar og vinar hennar, Daða Freys
Péturssonar, sem varð í öðru sæti Söngvakeppni
sjónvarpsins 2017. Karitas Harpa svarar spurningum
vikunnar.
FæDD og uPPalin? Fædd
á Landspítalanum, uppalin hér
og þar í rauninni, en í hnotskurn:
fyrstu fjögur árin í Bandaríkjun-
um, tvö ár í Hafnarfirði, sjö ár í
Breiðholti, tvö á r í Hveragerði og
síðan á Selfossi meira og minna
eftir það.
Mér Finnst gaMan að
… að syngja, borða og tala.
síðasta KvölDMáltíðin
Síðasta kvöldmáltíðin væri líklega
fullt borð af forréttum.
BrennD eða graFin?
Fryst eins og Walt Disney.
Hvað gerirðu Milli
Kl. 17–19? Þá er ég líklegast
að horfa á Peppa Pig eða álíka
örvandi sjónvarpsefni.
saMFélagsMiðlar eða
DagBlöðin? Samfélagsmiðl-
ar þó svo ég hafi alltaf gaman af
því að fletta í gegnum blöðin með
kaffibolla í annarri.
Hvað ertu Með í vinstri
vasanuM? Kusk.
Bjór eða Hvítvín?
Hvítvín, er haldin þeirri bölvun
að þykja bjór ekki góður.
Hver stjórnar Fjar-
stýringunni á þínu
HeiMili? Ómar Elí, tæplega
þriggja ára.
Hvernig var Fyrsti
Kossinn? Vá, ég fæ fiðring í
magann bara af því að hugsa um
hann, en hann var svolítið vand-
ræðalegur, eins og fyrstu kossar
eiga að vera, góður samt!
Hver væri titill
ævisögu þinnar?
Karitas án titils … er hann
frátekinn? Þá kannski bara
Karitas með titli.
Hver er
DrauMaBíllinn?
1960‘s Chevrolet-blæjubíll.
Fyrsta starFið? Stóra
systir, illa borgað, var fljót að færa
mig yfir á tombóluteppið fyrir
utan 10-11 í Breiðholtinu.
Fallegasti staður á
lanDinu? Við eigum ofboðs-
lega fallegt land, ég verð aldrei
þreytt á því að keyra Suðurlandið
svo hafa þeir sem vaðið hafa alveg
inn í Gljúfrabúann við Selja-
landsfoss orðið vitni að einhverju
undri!
Hvaða oFur-
KraFt værir
þú til í
að vera
Með?
Það
myndi
spara
mér
heil-
mik-
inn
ferða-
kostnað
ef ég gæti
bara flogið.
gist í
Fanga-
KleFa? Ekki
enn.
sturta eða Bað? Hef ekki
átt bað í svona 15 ár svo ég kann
það örugglega ekki lengur, sit
samt oft í sturtubotninum.
HúðFlúr eða eKKi? Er ekki
með, en langar í!
Hvaða leynDa
HæFileiKa HeFur þú? Get
sett fætur aftur fyrir haus, mjög
hentugur hæfileiki.
Hvað FéKK þig til að
tárast síðast? Örugglega
eitthvað Youtube-myndband eða
auglýsing sem hafði með börn
eða gamalt fólk að gera, „gets me
every time.“
FyrirMynD í líFinu? Í
raun bara hver sá sem er
samkvæmur sjálfum
sér, einlægur og
þorir að taka
áhættu – gefst
ekki upp
þótt á
móti
blási.
Hvaða sögu
segja For-
elDrar þínir
enDurteKið aF
þér? Svo margar,
var hrikalega óþol-
andi krakki – aldrei
kyrr, alltaf á hvolfi,
syngjandi eða talandi, stundum
allt í einu.
ertu Með einHverja
FóBíu? Fóbíu, líklega ekki, en
mig klígjar hrikalega við kartöflu-
spírum og hrúðurköllum, fæ hroll
bara við tilhugsunina.
Hver er Besta
áKvörðun seM þú
HeFur teKið? Nýlega var
það líklega að slá til og taka þátt í
The Voice Ísland, mjög nýlega var
það að fá mér kaffi í morgun og
leggjast ekki aftur upp í.
Furðulegasti Matur
seM þú HeFur Borðað?
Er reynslulítil í þeim heimi,
sniglar eiga örugglega vinninginn
eins og er.
Hvað er neyðarleg-
asta atviK seM þú
HeFur lent í? Ég man aldrei
neitt þegar ég er spurð að þessu,
ég hef nefnilega lúmskt gaman af
neyðarlegum atvikum og finnst
fátt of vandræðalegt til að hlæja
ekki bara að því. Kannski þegar ég
missti vinkonu mína niður af
svölum á annarri hæð. Mér
til varnar var hún bundin
í þvottasnúruna og
reyndist þyngri
en ég hélt, svo
ég missti takið,
hún slasaðist
ekki, lenti í
runna.
KluKK-
an
Hvað
Ferðu
á Fæt-
ur?
Þegar
stráksi
vaknar,
sem er
yfirleitt
milli 7
og 8.
leigirðu eða áttu? Er að
eltast við drauma mína svo hvor-
ugt, bý hjá mömmu.
Hvaða BóK er á nátt-
Borðinu? #GIRLBOSS og
Múmínálfarnir læra litina.
Með HverjuM, líFs
eða liðnuM, MynDir
þú vilja verja einni
KvölDstunD? Mömmu
hans pabba eða Ellen DeGeneres,
elska‘na!
Hver er Fyrsta enDur-
Minning þín? Pallurinn
okkar í Utah og villikötturinn
okkar, hún Flekka, sem við tókum
að okkur.
líFsMottó? Lífið er of hverf-
ult til að láta ekki vaða. Síst af öllu
vil ég vera á dánarbeði mínum í
eftirsjá.
uPPáHalDsútvarPs-
Maður/-stöð? Þar sem
ég keyri mikið milli Selfoss og
Reykjavíkur hlusta ég mikið á út-
varpið en það skiptist furðu jafnt
milli stöðva, fer í raun eftir tíma
dags hvað ég hlusta á. Ég vil líka
helst fá spilun á þeim sem flestum
svo ég þori ekki að nefna eina
frekar en aðra haha.
uPPáHalDsMatur/-
DryKKur? Svellkalt kók í dós.
uPPáHalDstónlistar-
Maður/-HljóMsveit ? Ég
get ekki valið svona, það sem ég
hef hlustað mikið á undanfarið er
Maggie Rogers, Sigrid, Migos og
síðan er Eddi vinur minn Sheeran
reyndar alltaf í uppáhaldi, annars
elska ég að finna eitthvað nýtt.
uPPáHalDsKviKMynD/-
sjónvarPsþættir? Ég
elska elska Lord of the rings-
myndirnar, get horft á þær enda-
laust! Eins dugleg og ég var einu
sinni er ég orðin hrikalega léleg að
fylgjast með því sem er í sjónvarp-
inu, er að horfa á Master of none
þessa dagana og líkar mjög vel.
uPPáHalDsBóK? Les því
miður alltof lítið, mínar „all time
favorite“ eru líklega Harry Potter-
bækurnar.
uPPáHalDsstjórn-
MálaMaður? Ég á mér ekki
uppáhalds í þeim geira.
tónlistarvinir Karitas og Daði eru góðir vinir og hafa nú gefið út lag saman, „Enn eitt kvöld.“