Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Page 70
2 Sumar Helgarblað 23. júní 2017KYNNINGARBLAÐ
Humarsúpa úti um allan bæ, fjölbreytt afþreying, stórdansleikur og frábær
fjölskyldustemning
Humarhátíð á Höfn
Humarhátíði á Höfn í Hornafirði er nú haldin í 25. skipti en í gegn-
um tíðina hefur hún verið í
umsjá ýmissa aðila. Síðustu
árin hefur knattspyrnudeild
Sindra haldið hátíðina. „Við
höfum lagt mikla áherslu á að
hafa hátíðina sem fjölskyldu-
vænsta og við nálgumst
hana fyrst og fremst sem
fjölskylduskemmtun. Þess
vegna leggjum við til dæmis
ekkert upp úr vínveitingum
en áður var hátíðin með
vínveitingaleyfi. Síðan koma
vissulega inn aðilar með
áfengisveitingar fyrir þá sem
eftir því sækjast og veitinga-
staðir í bænum eru með
opið til eitt á nóttunni,“ segir
Gunnar Ingi Valgeirsson, sem
er í stjórn knattspyrnudeildar
Sindra. Hann bætir því við að
síðustu ár hafi lögreglan ekki
þurft að hafa afskipti af einu
né neinu á hátíðinni sem fari
fram í friði og spekt.
Humarhátíðin á Höfn
stendur yfir frá fimmtudegi
og út sunnudag. Dagskráin
er afar fjölbreytt en hana
má sjá í heild sinni á vef-
svæðinu www.humar.is og
nánari upplýsingar er að
finna á Facebook-síðunni
https://www.facebook.com/
Humarhatid.
Að sögn Gunnars Inga
sækja brottfluttir Horn-
firðingar hátíðina mikið en
þeim fylgir fjöldi vina og
vandamanna. Nokkuð hefur
dregið úr því að hátíðargestir
tjaldi í bænum, meirihlutinn
gistir í heimahúsum, en þó er
enn töluvert líf á tjaldsvæðinu
á meðan hátíð stendur.
Meðal hápunkta er
dansleikur karlakórsins í
Sindrabæ á föstudags-
kvöldið kl. 22 og tónleikarnir Í
gegnum tíðina sem verða kl.
20 í íþróttahúsinu á föstu-
dagskvöld. Þar koma fram
stórstjörnurnar Sigga Bein-
teins, Regína Ósk, Eyþór Ingi
og Laddi. Ókeypis er inn á
tónleikana.
Aðalhápunkturinn er
síðan stórdansleikur Siggu
Beinteins og hljómsveitar í
íþróttahúsinu á miðnætti á
laugardags- kvöldið.
Frítt er
inn á alla
viðburði á
hátíðinni
fyrir utan
stórdansleikinn.
„Við höfum lagt áherslu á
að fá stórstjörnur á hátíðina
og hér hafa til dæmis áður
spilað Sálin hans Jóns míns
og Páll Óskar,“ segir
Gunnar
Ingi. Hann fer einnig nokkrum
orðum um humarsúpuna
sjálfa og framreiðslu hennar.
„Humarsúpan á föstudags-
kvöldinu er afar skemmti-
legur viðburður sem skapar
einstaka stemningu í bænum.
Heimafólk býður fram krafta
sína en Humarhátíðin skaff-
ar hráefnið með styrk frá
bæjarfélaginu. Fólk eldar í
heimahúsum og býður upp
á súpuna í garðinum hjá sér.
Margir rölta á milli stöðvanna
en í framhaldinu er síðan far-
ið í íþróttahúsið á tónleika og
þar er alltaf troðfullt,“ segir
Gunnar Ingi.
Það er ekki eftir neinu að
bíða. Fjölbreytt og spennandi
fjölskylduhátíð er þegar
byrjuð á Höfn og fólk streymir
inn og út úr bænum næstu
daga, en að sögn Gunnars
Inga er „mikið rennerí“ á
meðan hátíðinni stendur.
Eins og á öðrum fjölbreyttum
nokkurra daga hátíðum kjósa
sumir að staldra við eins-
taka viðburði, aðrir dvelja á
svæðinu í eins og einn sólar-
hring, en enn aðrir taka allan
pakkann.