Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Síða 70

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Síða 70
2 Sumar Helgarblað 23. júní 2017KYNNINGARBLAÐ Humarsúpa úti um allan bæ, fjölbreytt afþreying, stórdansleikur og frábær fjölskyldustemning Humarhátíð á Höfn Humarhátíði á Höfn í Hornafirði er nú haldin í 25. skipti en í gegn- um tíðina hefur hún verið í umsjá ýmissa aðila. Síðustu árin hefur knattspyrnudeild Sindra haldið hátíðina. „Við höfum lagt mikla áherslu á að hafa hátíðina sem fjölskyldu- vænsta og við nálgumst hana fyrst og fremst sem fjölskylduskemmtun. Þess vegna leggjum við til dæmis ekkert upp úr vínveitingum en áður var hátíðin með vínveitingaleyfi. Síðan koma vissulega inn aðilar með áfengisveitingar fyrir þá sem eftir því sækjast og veitinga- staðir í bænum eru með opið til eitt á nóttunni,“ segir Gunnar Ingi Valgeirsson, sem er í stjórn knattspyrnudeildar Sindra. Hann bætir því við að síðustu ár hafi lögreglan ekki þurft að hafa afskipti af einu né neinu á hátíðinni sem fari fram í friði og spekt. Humarhátíðin á Höfn stendur yfir frá fimmtudegi og út sunnudag. Dagskráin er afar fjölbreytt en hana má sjá í heild sinni á vef- svæðinu www.humar.is og nánari upplýsingar er að finna á Facebook-síðunni https://www.facebook.com/ Humarhatid. Að sögn Gunnars Inga sækja brottfluttir Horn- firðingar hátíðina mikið en þeim fylgir fjöldi vina og vandamanna. Nokkuð hefur dregið úr því að hátíðargestir tjaldi í bænum, meirihlutinn gistir í heimahúsum, en þó er enn töluvert líf á tjaldsvæðinu á meðan hátíð stendur. Meðal hápunkta er dansleikur karlakórsins í Sindrabæ á föstudags- kvöldið kl. 22 og tónleikarnir Í gegnum tíðina sem verða kl. 20 í íþróttahúsinu á föstu- dagskvöld. Þar koma fram stórstjörnurnar Sigga Bein- teins, Regína Ósk, Eyþór Ingi og Laddi. Ókeypis er inn á tónleikana. Aðalhápunkturinn er síðan stórdansleikur Siggu Beinteins og hljómsveitar í íþróttahúsinu á miðnætti á laugardags- kvöldið. Frítt er inn á alla viðburði á hátíðinni fyrir utan stórdansleikinn. „Við höfum lagt áherslu á að fá stórstjörnur á hátíðina og hér hafa til dæmis áður spilað Sálin hans Jóns míns og Páll Óskar,“ segir Gunnar Ingi. Hann fer einnig nokkrum orðum um humarsúpuna sjálfa og framreiðslu hennar. „Humarsúpan á föstudags- kvöldinu er afar skemmti- legur viðburður sem skapar einstaka stemningu í bænum. Heimafólk býður fram krafta sína en Humarhátíðin skaff- ar hráefnið með styrk frá bæjarfélaginu. Fólk eldar í heimahúsum og býður upp á súpuna í garðinum hjá sér. Margir rölta á milli stöðvanna en í framhaldinu er síðan far- ið í íþróttahúsið á tónleika og þar er alltaf troðfullt,“ segir Gunnar Ingi. Það er ekki eftir neinu að bíða. Fjölbreytt og spennandi fjölskylduhátíð er þegar byrjuð á Höfn og fólk streymir inn og út úr bænum næstu daga, en að sögn Gunnars Inga er „mikið rennerí“ á meðan hátíðinni stendur. Eins og á öðrum fjölbreyttum nokkurra daga hátíðum kjósa sumir að staldra við eins- taka viðburði, aðrir dvelja á svæðinu í eins og einn sólar- hring, en enn aðrir taka allan pakkann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.