Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Page 72
4 Sumar Helgarblað 23. júní 2017KYNNINGARBLAÐ
Fimm daga tónlistarhátíð
fyrir alla fjölskylduna
Þjóðlagahátíðin á Siglufirði 5.–9. júlí
Þjóðlagahátíðin á Siglufirði er árleg tónlistarhátíð sem haldin er
með það að markmiði að
kynna þjóðlagaarf ólíkra
þjóða og þjóðarbrota. á
hátíðinni, sem fyrst var haldin
árið 2000, hefur tónlist fjöl
margra þjóða verið kynnt auk
þess sem íslensk þjóðlög sitja
ávallt í öndvegi.
hátíðin verður að þessu
sinni haldin dagana 5.–9. júlí,
frá miðvikudegi út sunnu
daginn, fimm daga tónlistar
hátíð fyrir alla fjölskylduna í
einum nyrsta bæ íslands. á
hátíðinni verða 19 tónleik
ar haldnir víðs vegar um
Siglufjörð. auk tónleika
er boðið upp á námskeið,
bæði í tónlist og hand
verki. Þjóðlagaakademían
er svo háskólanámskeið
opið öllum almenningi.
Þar verða kennd íslensk
þjóðlög, rímnalög og
tvísöngslög. Einnig verða
þar kenndir þjóðdansar, að
leika á langspil og íslenska
fiðlu.
að ganga á milli tón
leikastaða í kyrrð á sum
arnóttu er upplifun sem
enginn ætti að láta fram
hjá sér fara. Meðal mark
miða með Þjóðlagahátíð
á Siglufirði er að hvetja til
varðveislu íslenskra þjóðlaga,
stuðla að nýsköpun íslenskrar
tónlistar, stefna saman lista
mönnum úr ólíkum áttum,
varpa ljósi á menningararf
íslendinga og annarra þjóða,
og höfða til allrar fjöl
skyldunnar, jafnt barna og
unglinga sem fullorðinna.
aðsókn að Þjóðlagahátíð
inni á Siglufirði hefur vaxið
jafnt og þétt undanfarin ár.
Erlendir og innlendir lista
menn sem komið hafa fram á
hátíðinni eru nokkur hundruð
talsins og tugir kennara hafa
kennt þar á námskeiðum.
tónleikagestum hefur fjölgað
mjög síðustu árin. í upphafi
voru þeir um fjögur
til fimm hundruð
en síðustu ár hefur þeim
fjölgað í sex til sjö hundruð.
fjölskyldur alls staðar að
af landinu gera sér ferð
til Siglufjarðar til þess að
sækja tónleika og taka þátt
í námskeiðum, enda er lögð
áhersla á að allir finni þar
eitthvað við sitt hæfi.
námskeiðin á þjóðlaga
hátíðinni eru bæði á sviði
tónlistar og forns handverks.
Sum eru haldin ár hvert, önn
ur sjaldnar. Börnum er einnig
boðið upp á sérstök nám
skeið og sumarið 2004 var
haldið í fyrsta skipti sérstakt
námskeið fyrir unglinga. Enda
þótt hátíðin leggi áherslu
á að rækta íslenskan þjóð
lagaarf hafa fjölmörg tónverk
verið frumflutt á hátíðinni.
listrænn stjórnandi há
tíðarinnar frá upphafi hefur
verið gunnsteinn ólafsson
tónlistarmaður.
ítarlegar upplýsingar um
hátíðina er að finna á vef
síðunni siglofestival.com og
miðasala fer fram á sölu
vefnum tix.is. Stakir miðar eru
einnig seldir í Þjóðlagasetrinu
á Siglufirði, símanúmer 467
2300.
Gunnsteinn
Ólafsson