Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2017, Blaðsíða 8
8 Helgarblað 7. júlí 2017fréttir
Eldbakaðar pizzur
hafnargata 36a, kEflavík / nálægt flugstöðinni
salur
fyrir
hópa
sími 557 1007
hamborgarar,
salöt, pasta,
kjúklingavængir
og flEira
É
g fæ enga hjálp,“ segir Svan-
ur Elí Elíasson, sem býr ásamt
hundinum sínum, Kleó, í bíl
á tjaldsvæðinu í Laugardal.
Svanur, sem leigði herbergi á höf-
uðborgarsvæðinu síðasta vetur, var
sagt upp leigunni í vor. Hann seg-
ir ástæðu uppsagnarinnar meðal
annars þá að hann á hund. Svan-
ur þarf að greiða leigu út ágúst-
mánuð. Það eru 80 þúsund krón-
ur á mánuði. Hann getur þó ekki
hugsað sér að losa sig við hundinn,
sem er ekki velkominn í húsið, eftir
að nágrannar hans kvörtuðu undan
dýrinu.
Heppinn að fá símatíma
Svanur kýs því heldur að sofa í bíln-
um þar sem hann má ekki leng-
ur vera með Kleó í herberginu. „Ég
er mjög háður hundinum mínum.
Mér þykir óendanlega vænt um
Kleó og hún treystir alfarið á mig,“
segir Svanur og bætir við að hann
hafi þungar áhyggjur af því hvað
verði um sig. Hingað til hefur Svani
enn ekki tekist að finna nýtt her-
bergi á viðráðanlegu verði.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Svanur er á götunni en hann hef-
ur í gegnum tíðina átt erfitt með að
fóta sig í samfélaginu. Svanur er ör-
yrki og á við geðræn vandamál að
stríða. Hann gagnrýnir harðlega
hvað honum standa fá úrræði til
boða í félagslega kerfinu.
„Ég hringdi í hverfastöðina mína.
Þar er maður heppinn ef maður
fær símatíma. Hvað þá viðtalstíma.
Ráðgjafinn minn segir einfaldlega
að það sé ekkert hægt að gera fyr-
ir mig. Þau geta ekki einu sinni að-
stoðað mig við að greiða af tjald-
svæðinu, sem kostar 3.000 krónur
nóttin. Ég á varla fyrir mat. Mér líð-
ur eins og flóttamanni í mínu eig-
in landi.“ Það sem Svani þykir hvað
erfiðast er að vita ekki hvað gerist
næst. Hann á mjög lítið eftir þegar
hann er búinn að borga leigu og
aðra reikninga um hver mánaða-
mót. Þá þarf hann að borga tjald-
svæðinu í Laugardal 3.000 krónur
á dag.
Svanur furðar sig á því að kerf-
ið komi ekki betur til móts við fólk
í hans stöðu. „Það er engin reisn
fólgin í því að búa í bíl. Að hafa ekki
í nein hús að venda. Auðvitað ætti
borgin að vera fyrir löngu búin að
útvega mér öruggt húsnæði. Það
eru mjög margir þarna úti sem eiga
hvorki í sig né á. Og enginn gerir
neitt. Eins og staðan er núna sé ég
ekki fram á annað en að ég verði í
bílnum það sem eftir er.“
Ástandið er slæmt
Svanur er langt frá því að vera einn í
þessari erfiðu stöðu. Daglega venur
hann komur sínar í kaffistofu Sam-
hjálpar í Borgartúni. Þar hefur hann
kynnst þó nokkuð mörgum heimil-
islausum karlmönnum sem búa
í bíl sínum, eða í tjöldum. Vörður
Leví Traustason, framkvæmdastjóri
Samhjálpar, staðfestir í samtali við
DV að fjölmargir einstaklingar séu
heimilislausir á Íslandi.
Samhjálp rekur, meðal annars,
nokkur áfangaheimili sem eru ætl-
uð utangarðsfólki á borð við Svan.
Fjármagnið sem Samhjálp fær í
verkefnin eru af mjög skornum
skammti og að mati Varðar í litlu
samræmi við þörfina. Því sé óger-
legt að hjálpa öllum, sem sé stórt
vandamál út af fyrir sig. Þar að auki
hefur utangarðsfólki fjölgað síðustu
ár. Á sama tíma hefur staðan á hús-
næðismarkaðinum aldrei verið jafn
erfið.
„Það er ekkert leyndarmál að
ástandið er slæmt. Við gerum okk-
ar besta til að aðstoða alla sem
koma til okkar. Auðvitað spilar það
inn í að bara hjá Reykjavíkurborg
eru yfir 1.000 manns á biðlista eft-
ir félagslegum úrræðum. Auðvitað
ættum við að gera miklu meira fyr-
ir þá sem eru utangarðs í samfé-
laginu,“ segir Vörður.
Bjarni Geir Alfreðsson, verk-
efnastjóri kaffistofu Samhjálp-
ar, bendir á að enginn ætli sér að
verða utangarðs í samfélaginu.
Það sé gríðarlega mikilvægt að
skoða vel og rækilega af hverju
fólk endar í þessari stöðu og hvort
sé hægt að grípa fyrr inn í aðstæð-
urnar. „Sveitarfélögin og ríkið eiga
að leggja sitt af mörkum í þennan
málaflokk. Ekki varpa öllum kostn-
aðinum yfir á frjáls félagasamtök
eins og okkur. Setjum heldur meira
í þennan málaflokk og hjálpum
þessu fólki í eitt skipti fyrir öll.“ n
Heimilislausum fer fjölgandi
Nýjustu tölur eru frá árinu 2012
Í
niðurstöðum rannsóknar,
Kortlagning á fjölda og hög-
um utangarðsfólks/ og eða
heimilislausra í Reykjavík,
sem Erla Björg Sigurðardóttir
gerði fyrir velferðarsvið Reykja-
víkurborgar árið 2012, kemur
fram að 179 einstaklingar féllu
undir skilgreiningu um heim-
ilislausa árið 2012 í Reykjavík.
Karlar voru í meirihluta, eða
62,56 prósent. Fjöldi kvenna var
64 og fjöldi karla 112. Til viðbót-
ar kom kyn ekki fram hjá þrem-
ur einstaklingum. Árið 2009
þegar sambærileg rannsókn var
gerð var 121 einstaklingur ut-
angarðs/ og eða heimilislausir.
Heildarfjöldi þessa hóps hafði
því aukist um 32,4 prósent.
Konur voru 24 prósent af
heildarfjölda árið 2009 en voru
35,8 prósent árið 2012. Þeim
hafði því fjölgað nokkuð.
Flestir sem eru heimilislaus-
ir, eða 89,4 prósent, á Íslandi
áttu uppruna sinn á Íslandi.
Pólskir ríkisborgarar voru 6,7
prósent og aðrir um 1 prósent
og færri. Samtals voru 10,6 pró-
sent heimilislausra árið 2012 af
erlendum uppruna.
Áfengis- og annar vímuefna-
vandi var talin helsta orsök þess
að viðkomandi einstaklingar
voru utangarðs og/eða heimil-
islausir. Þar á eftir voru geðræn
vandamál algengasta orsökin.
Heimilislausum einstakling-
um er boðið upp á fjölbreytta
þjónustu. Hjá þjónustumið-
stöðvum Reykjavíkurborgar er
veitt félagsleg ráðgjöf, stuðn-
ingsviðtöl, virkniráðgjöf,
endurhæfing og hluti heimil-
islausra á rétt á fjárhagsaðstoð.
Þá sjá þjónustumiðstöðvarn-
ar um aðstoð vegna húsnæð-
ismála. Þar á meðal umsókn-
ir um félagslegt leiguhúsnæði,
sérstakar húsaleigubætur og
stuðning vegna búsetuúrræða.
Samhjálp veitir neyðar-
gistingu, snyrtiaðstöðu, mál-
tíðir og ýmsan stuðning. Þá
reka samtökin meðferðar- og
áfangaheimili sem og ýmsan
stuðning. Rauði kross Íslands
veitti neyðargistingu, snyrtiað-
stöðu, máltíðir, úthlutun
hreinna sprautunála og ýmsan
stuðning. Lögreglan veittti
neyðargistingu og akstur á milli
staða.
n Svanur Elí Elíasson býr á tjaldsvæðinu í Laugardal n Sér ekki fram á að fá húsnæði á
viðráðanlegu verði n Getur ekki hugsað sér að vera án hundsins síns, Kleó
„EnGinn GErir nEitt“
Kristín Clausen
kristin@dv.is
Heimilislaus Svanur sér ekki fram á að staða
hans batni á næstunni. Mynd dV Sigtryggur Ari
Svanur býr í bílnum sínum Gat ekki
hugsað sér að yfirgefa hundinn sinn. Mynd dV
Sigtryggur Ari