Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2017, Blaðsíða 2
2 Helgarblað 7. júlí 2017fréttir
Spurning vikunnar
Ég er að fara Sprengisandsleið á hálendið og er að vona
að þar verði fáir ferðamenn. Helst vildi ég vera þar ein
með hundinum mínum, henni Perlu.
Jóhanna Harðardóttir
Fjölskyldan er búin að fara út í Flatey þar sem var
frábært að vera, eins og alltaf. Svo liggur leiðin til Möltu,
þar sem er sól og saga.
María Gestsdóttir
Ég bý á Akureyri og skrapp í höfuðborgina en í sumarfrí-
inu fer ég í sumarbústað í Öxarfirði, þar sem er frábært
að vera, og ferðast um Ísland.
Gerður Gísladóttir
Ég ætla bara að vera á Íslandi, hér í Reykjavík þar sem
mér líkar vel að vera. Kannski skrepp ég til Akureyrar og í
haust fer ég hugsanlega til Sviss.
Gunnar Gunnarsson
Hvert ætlarðu í sumarfríinu?
Hafnarfjörður og Reykjanesbær skipta við verktakafyrirtæki á þriðju kennitölunni
T
vö sveitarfélög, Hafnar
fjörður og Reykjanesbær,
eiga í viðskiptum við verk
takafyrirtæki sem nú er
starfrækt á þriðju kennitölunni.
Viðskiptin fara fram í gegn
um fyrirtæki í eigu sveitarfélag
anna, Vatnsveitu Hafnarfjarðar og
HS Veitur hf. Þá hefur fyrirtækið
einnig séð um snjómokstur fyrir
Hafnarfjarðarbæ. Innkauparegl
ur Reykjanesbæjar kveða á um
að vísa beri bjóðanda frá ef í ljós
kemur að fyrirtæki eða eigandi
þess hafi farið í gjaldþrot, nauða
samninga eða greiðslustöðvun á
síðastliðnum fimm árum. Þetta
ákvæði er ekki að finna í inn
kaupareglum Hafnarfjarðarbæj
ar sem ganga mun skemur en hjá
öðrum nágrannasveitarfélögum.
„Þetta er skítt fyrir þá aðila sem
eru að standa skil á öllu sínu en sjá
síðan aðila með mörg gjaldþrot á
bakinu hirða verkin,“ segir ósáttur
samkeppnisaðili.
Gjaldþrota í annað sinn
Kennitöluflakk hefur verið mik
ið í umræðunni undanfarið í kjöl
far þess að Sam tök at vinnu lífs
ins og Alþýðusam band Íslands
kynntu á dögunum til lög ur sem
ætlað er að sporna gegn athæfinu.
Í til lög un um felst meðal ann ars að
þeim sem yrðu upp vís ir að kenni
töluflakki yrði bannað að reka og
eiga hluta fé lög og einka hluta fé lög
í allt að þrjú ár.
Í febrúar 2017 greindi DV frá
því að verktakafyrirtækið Fjarðar
grjót ehf. hefði verið tekið til gjald
þrotaskipta í annað sinn. Fyrir
tækið, sem er í eigu hjónanna
Þorsteins Arnar Einarssonar og
Hildar Magnúsdóttur, varð fyrst
gjaldþrota árið 2010. Rekja má
gjaldþrotið til fjármögnunarsamn
inga fyrir vinnuvélar sem voru í er
lendri mynt og stökkbreyttust í
hruninu.
Árið 2010 hóf fyrirtækið
rekstur undir sama nafni en á
annarri kennitölu. Sú kennitala
var áður á bak við rekstur Víkur
lyftna til ársins 2005 en síð
an var kennitalan í eigu Deloitte
um nokkurt skeið, eða allt þar til
rekstur hófst á nafni Fjarðargrjóts
árið 2010. Segja má að syndir for
tíðarinnar hafi kafsiglt fyrirtækið
öðru sinni. Hinn nýi rekstur yfir
tók fjármögnunarsamninga þrota
búsins en lenti síðar í vanskilum
vegna þeirra sem leiddu til seinna
gjaldþrotsins. Árið 2008 stofnuðu
eigendur Fjarðargrjóts fyrirtæk
ið B1 ehf. Tilgangur félagsins var
fyrst og fremst sá að halda utan
um eignarhlut hjónanna á 350 fer
metra iðnaðarbili að Brekkutröð
1 í Hafnarfirði. Árið 2014 færð
ist síðan rekstur Fjarðargrjóts yfir
á félagið og er það nú rekið undir
nafninu B1Fjarðargrjót ehf.
Hafnarfjarðarbær horfir fram-
hjá kennitöluflakki
Innkaupareglur flestra bæjarfé
laga eru byggðar á fyrirmynd frá
Sambandi íslenskra sveitarfélaga
frá árinu 2007. Taka skal fram að
þær ná yfir rekstur bæjarfélaganna
sjálfra auk fyrirtækja sem eru rekin
af bæjarfélaginu. Í drögunum hjá
SÍS er lögð áhersla á að heimilt sé
að kanna viðskiptasögu eigenda
og ef að gjaldþrot, nauðasamn
ingar eða greiðslustöðvun hafi átt
sér stað innan síðustu fimm ára þá
geti viðskiptin ekki gengið í gegn.
Ákvæðið er augljóslega sett inn til
þess að stemma stigu við kenni
töluflakki. Reykjanesbær hef
ur tekið upp þessa reglu, eins og
önnur helstu sveitarfélög á höfuð
borgarsvæðinu, til dæmis Reykja
víkurborg, Kópavogur, Mosfells
bær og Seltjarnarnes.
Hafnarfjörður sker sig hins vegar
úr þessum hópi því í innkauparegl
um bæjarins, sem samþykktar voru
þann 13.3. 2013, er ekkert sagt til
um að kanna beri viðskiptasögu
eigenda fyrirtækja sem bærinn
eigi í viðskiptum við. DV hefur ekki
fengið svör við hverju það sætir en
rétt er að geta þess að opinberar
innkaupareglur eru til lítils ef þeim
er ekki framfylgt. n
Alltaf greitt þeirri kenni-
tölu sem samningur var
gerður við
U
ndanfarna níu mánuði
hefur B1Fjarðargrjót
ehf. fengið greitt um
6,7 milljónir króna fyr
ir ýmis viðvik fyrir Vatnsveitu
Hafnarfjarðar. Þá eru ótald
ar greiðslur fyrir snjómokstur
fyrir sveitarfélagið. Aðspurð
segir samskiptastjóri bæjar
ins, Árdís Ármannsdóttir, að
sveitarfélagið telji sig ekki
vera að brjóta innkauparegl
ur þar sem bærinn hafi alltaf
greitt þeirri kennitölu sem
samningur var gerður við.
Þá fékk DV staðfest að B1
Fjarðargrjót hefur átt í við
skiptum við HS Veitur hf. Fyr
irtækið er í meirihlutaeigu
Reykjanesbæjar og því á það
að lúta innkaupareglum bæj
arins sem taka hart á kenni
töluflökkurum. Reglurnar
virðast virtar að vettugi og eft
irliti ekki sinnt sem skyldi.
Sveitarfélög stunda viðskipti
við kennitöluflakkara
Hafnarfjörður Mynd © dV Stefán KarlSSon
reykjanesbær Mynd © dV Stefán KarlSSonBjörn Þorfinnsson
bjornth@dv.is