Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2017, Blaðsíða 44
Gullfalleg í eigin skinni jafnt sem hátísku
Ljósmyndari Vogue smellti mynd af söngkonunni Celine Dion þar sem hún
var að skipta um föt á tískuvik-
unni í París. Á myndinni sést
hin 49 ára gamla Celine sitja
fyrir nakin á stól, en aðeins
líkamsstellingin og smá efn-
isstrangi hylja hana.
Söngkonan Celine er í
fantaformi og ljóst að hún er
gullfalleg hvernig sem hún er,
en á tónleikum hennar klæðist
hún jafnan hátískufatnaði sem
er sérhannaður fyrir hana og
meðal annars með velcro-
rennilásum, sem gera henni
auðvelt fyrir að skipta um fatn-
að á nokkrum sekúndum.
Celine
Dion
situr
fyrir
nakin
NakiN Ljósmyndari
Vogue smellti þessari
mynd af Celine á milli
þess sem hún hafði
fataskipti.
HátískaN
Celine innan um hátískuna í gulum
leðurkjól frá Dior.
kristalkjóll
Celine í Crystal²-kjólnum úr
nýjustu línu Schiaparelli.
Adele sló eigið
blótsyrðAmet
á Wembley
Someone Like F... You
Söngkonan Adele sló eigið met á nýlegum lokatónleik-um hennar á Wembley í
London, þegar hún notaði 56 blóts-
yrði á einu kvöldi. Fyrra metið átti
hún á Glastonbury-hátíðinni árið
2016, en þá notaði hún „aðeins“ 36
blótsyrði.
Adele er alltaf hún sjálf og á
milli þess sem hún syngur eins
og engill, samkjaftar hún við
áhorfendur sína með tilheyrandi
hlátrasköllum, ropum og blótsyrð-
um, svo mikið stundum að sumum
finnst nóg um. Aðdáendum Adele
er þó nokk sama um fúkyrðaflaum-
inn.
Ballið byrjaði strax þegar Adele
hafði lokið við upphafslagið Hello
og ávarpaði aðdáendur sína. „Fokk,
ég hef aldrei verið svona fokking
stressuð á allri minni fokking ævi.“
Síðar sagði hún meðal annars sögu
af því þegar padda komst í skóna
hennar á tónleikum á Nýja-Sjálandi
og helvítið saug úr mér blóðið.“
Einnig hélt hún að poppkorns-
pokar sem salar gengu um með og
seldu væru naktar kynlífsdúkkur,
„mér fannst það svona útundan
mér“. Síðan skellti hún hljóðnem-
anum á milli brjóstanna á sér og
skaut bolum út
í mannfjöldann
með sérstakri
stuttermabola-
loftbyssu.
Það verður
ekki annað sagt
um hana Adele
en að þrátt fyrir
frægð og frama er hún akkúrat hún
sjálf, hvort sem er á sviði eða utan
þess, eða eins og Adele sagði sjálf,
„dagsdaglega er ég helvíti kúl“.
Fór á taxa
Taxi bakkaði
inn að sviðinu á
Wembley og flutti
Adele burt.
GeFur puttaNN
Adele brúkar ekki bara
kjaft, heldur notar líka
puttann þegar við á.