Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2017, Side 44

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2017, Side 44
Gullfalleg í eigin skinni jafnt sem hátísku Ljósmyndari Vogue smellti mynd af söngkonunni Celine Dion þar sem hún var að skipta um föt á tískuvik- unni í París. Á myndinni sést hin 49 ára gamla Celine sitja fyrir nakin á stól, en aðeins líkamsstellingin og smá efn- isstrangi hylja hana. Söngkonan Celine er í fantaformi og ljóst að hún er gullfalleg hvernig sem hún er, en á tónleikum hennar klæðist hún jafnan hátískufatnaði sem er sérhannaður fyrir hana og meðal annars með velcro- rennilásum, sem gera henni auðvelt fyrir að skipta um fatn- að á nokkrum sekúndum. Celine Dion situr fyrir nakin NakiN Ljósmyndari Vogue smellti þessari mynd af Celine á milli þess sem hún hafði fataskipti. HátískaN Celine innan um hátískuna í gulum leðurkjól frá Dior. kristalkjóll Celine í Crystal²-kjólnum úr nýjustu línu Schiaparelli. Adele sló eigið blótsyrðAmet á Wembley Someone Like F... You Söngkonan Adele sló eigið met á nýlegum lokatónleik-um hennar á Wembley í London, þegar hún notaði 56 blóts- yrði á einu kvöldi. Fyrra metið átti hún á Glastonbury-hátíðinni árið 2016, en þá notaði hún „aðeins“ 36 blótsyrði. Adele er alltaf hún sjálf og á milli þess sem hún syngur eins og engill, samkjaftar hún við áhorfendur sína með tilheyrandi hlátrasköllum, ropum og blótsyrð- um, svo mikið stundum að sumum finnst nóg um. Aðdáendum Adele er þó nokk sama um fúkyrðaflaum- inn. Ballið byrjaði strax þegar Adele hafði lokið við upphafslagið Hello og ávarpaði aðdáendur sína. „Fokk, ég hef aldrei verið svona fokking stressuð á allri minni fokking ævi.“ Síðar sagði hún meðal annars sögu af því þegar padda komst í skóna hennar á tónleikum á Nýja-Sjálandi og helvítið saug úr mér blóðið.“ Einnig hélt hún að poppkorns- pokar sem salar gengu um með og seldu væru naktar kynlífsdúkkur, „mér fannst það svona útundan mér“. Síðan skellti hún hljóðnem- anum á milli brjóstanna á sér og skaut bolum út í mannfjöldann með sérstakri stuttermabola- loftbyssu. Það verður ekki annað sagt um hana Adele en að þrátt fyrir frægð og frama er hún akkúrat hún sjálf, hvort sem er á sviði eða utan þess, eða eins og Adele sagði sjálf, „dagsdaglega er ég helvíti kúl“. Fór á taxa Taxi bakkaði inn að sviðinu á Wembley og flutti Adele burt. GeFur puttaNN Adele brúkar ekki bara kjaft, heldur notar líka puttann þegar við á.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.