Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2017, Blaðsíða 40
Skemmtilegt Sumarpartí
mS í Heiðmörk
Ísey skyr sett á markað
Í júnílok bauð MS í sumarpartí í Heiðmörk. Tilefnið var nýtt alþjóðlegt vörumerki í skyri, Ísey , og var gestum
boðið upp á glæsilegar veitingar og góð tónlistaratriði.
Einn af þjóðar-réttum Ís-lendinga er skyr
og á næstu vikum
mun Skyr.is, sem við
þekkjum vel, hverfa
úr hillum verslana og
Ísey skyr, nýtt alþjóð-
legt vörumerki, koma
í staðinn. Við val á
nýja nafninu vildi MS
leitast við að halda fast
í tengingu skyrsins við
Ísland, það átti að hafa
íslenskan staf og vera
bæði stutt og einfalt.
Til að heiðra konur
landsins sem miðluðu
þekkingu á skyrgerð
til dætra sinna í gegn-
um aldirnar og til að
endurspegla þennan
íslenska bakgrunn og
sögu skyrsins heitir
skyrið nú Ísey skyr,
en Ísey er séríslenskt
kvenmannsnafn sem
vísar í eyjuna Ísland.
Bauð MS góð-
um gestum, helstu
viðskiptavinum og
erlendum samstarfs-
aðilum í óvissuferð.
Mættu gestir við MS,
þar sem stigið var upp
í rútur og haldið inn
í Heiðmörk. Þar var
boðið upp á glæsilegar
veitingar þar sem Ísey
skyr var meðal annars
notað í sósur, eftirrétti
og kokteila. Nokkrir af
vinsælustu tónlistar-
mönnum þjóðarinnar,
Emmsjé Gauti, Sísí
Ey, Amabadama og
Júníus Meyvant, auk
Brassbandsins, sáu um
söng og stemninguna
og Þórunn Lárusdóttir
söng- og leikkona
stjórnaði gleðinni með
glæsibrag. Sannkallað
sumarpartí.
SólarStúlkur Söngkonurnar Salka
Sól og Steinunn Jóns sáu um fjörið ásamt
félögum þeirra í Amabadama. Mynd MuMMi Lú
Söngvari og Sveit Söngvarinn Júníus Meyvant og hljóm-
sveit hans skiluðu seiðmögnuðum tónum. Mynd MuMMi Lú
StJörnukokkur Vel fór á með
félögunum Sigurði Skagfjörð Sigurðs-
syni, framkvæmdastjóra Lagardére, og
stjörnukokkinum Sigga Hall. Mynd MuMMi Lú
Stelpurnar HJá MS Stöllurnar erna erlendsdóttir, guðný Steinsdóttir, Hildur Hermannsdóttir og gréta
Björg Jakobsdóttir starfa í markaðs- og útflutningsdeild Mjólkursamsölunnar. Mynd MuMMi Lú