Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2017, Síða 18
18 sport Helgarblað 7. júlí 2017
G
uðlaugur Victor Pálsson
samdi í vikunni við félagið,
FC Zürich í Sviss en hann
gerði þriggja ára samning
við félagið. Guðlaugur kemur til
Sviss frá Esbjerg í Danmörku þar
sem hann var fyrirliði liðsins en
eftir fall úr dönsku úrvalsdeildinni
var ljóst að Guðlaugur myndi fara.
Hann var gríðarlega eftirsóttur
enda átti hann frábært tímabil
með Esbjerg þrátt fyrir að liðinu
hafi gengið illa. Guðlaugur var
besti leikmaður liðsins og tvö fé-
lög í Hollandi buðu honum samn-
ing auk liða í Danmörku. Þessi ný-
bakaði faðir ákvað hins vegar að
fara á vit ævintýranna og semja við
Zürich.
,,Þetta var mjög stuttur aðdrag-
andi, ég og umboðsmaður minn
fréttum af áhuga frá þeim fyrir
nokkrum dögum. Daginn eftir var
tilboð frá þeim komið til Esbjerg
og næsta dag var ég bara mættur
hingað að klára þetta. Þetta gerð-
ist mjög hratt en ég var mjög
spenntur fyrir þessu um leið og ég
heyrði af áhuganum,“ sagði Guð-
laugur Victor í samtali DV.
Hafnaði liðum í Hollandi
Guðlaugur hefur leikið víða á ferli
sínum en meðal annars lék hann
með NEC í Hollandi en hann fékk
tilboð frá Willem II og Sparta Rott-
erdam í Hollandi en kaus að fara
til Sviss, lands sem hann hefur ekki
spilað í ennþá. ,,Þetta var mest
spennandi möguleikinn sem ég
hafði, það voru tilboð frá Hollandi
og Danmörku sem ég gat valið úr
en ef ég horfi á þetta frá fótbolta-
legu sjónarmiði þá var þetta besta
skrefið að mínu mati. Þetta er líka
betri möguleiki ef maður horfir á
lífsstíl og fyrir fjölskylduna, ég held
að við munum hafa það mjög gott
í Zürich. Þetta var besti heildar-
pakkinn sem var á borðinu fyrir
mig á þessu augnabliki.“
,,Það spilaði alveg inn í
ákvörðun mína að fara í aðra borg
og annað land þar sem maður lær-
ir inn á aðra menningu, tilboðin
sem komu frá Hollandi voru líka
spennandi og borgirnar þar heill-
uðu en ég hef verið í Hollandi
og heildarpakkinn sem Zürich
setti upp var klárlega betri. Bæði
klúbburinn og hvernig þeir sjá
mig sem fótboltamann, mitt mat
var að þetta væri betra skref en að
fara til Hollands. Það eru miklir
möguleikar hérna ef maður er að
standa sig vel, ég hef spilað í Dan-
mörku og Hollandi og það verður
spennandi að prófa Sviss. Það er
geggjað að fara í nýja menningu
og borg, ég get ekki beðið eftir því
að byrja.“
Nýliðar í úrvalsdeildinni sem
eru stórhuga
FC Zürich er sögufrægt félag
en liðið var þó í næstefstu deild
á síðustu leiktíð en vann hana
með yfirburðum, liðið er stór-
huga núna og eru kaupin á Guð-
laugi Victori liður í því að styrkja
liðið. ,,Hér eru menn stórhuga,
þeir eru í fjórða sæti yfir þau fé-
lög sem hafa unnið deildina oft-
ast hérna. Liðið vann bikarinn og
kom sér í Evrópukeppni þegar það
var í næstefstu deild. Núna er liðið
komið upp og menn ætla sér stóra
hluti, það er verið að styrkja liðið
og væntingarnar fyrir tímabil-
inu eru miklar. Þetta er virkilega
spennandi. Basel hefur unnið
deildina núna mörg ár í röð og
eru í algjörum sérflokki, síðan eru
fimm eða sex lið sem eru að berj-
ast um hin Evrópusætin. Það er tíu
liða deild hérna en það eru fleiri
góð lið en slök, deildin er mjög
jöfn fyrir utan Basel. Hér reyna öll
lið að berjast um Evrópusæti.“
Glatað að vera fyrirliði og falla
Eins og fram hefur komið féll Guð-
laugur með Esbjerg úr dönsku úr-
valsdeildinni á síðustu leiktíð en
hans frammistaða skilaði honum
skrefinu til Sviss. ,,Ég horfi á þetta
þannig að það er auðvitað glötuð
staðreynd að vera fyrirliði liðs sem
fellur, það er eitthvað sem er erfitt
að taka. Það er hins vegar ákveðin
ástæða fyrir því að það voru lið
sem vildu fá mig eftir fall, það er
vegna þess að ég spilaði vel og það
var eftir því tekið. Zurich var til-
búið að borga fyrir mig, ég horfi
til baka á þetta tímabil svekktur,
en ég gerði mitt besta og get ver-
ið stoltur af minni frammistöðu.
Ég held vonandi áfram að bæta
mig sem leikmaður hér í Sviss. Ég
upplifi það sjálfur þannig að ég
fann miklu meiri stöðugleika í leik
mínum síðasta árið en hafði verið,
oft hefur maður tekið nokkra leiki
í röð góður og svo dottið niður.
Á síðasta tímabili var ég að spila
mjög vel heilt yfir allt tímabilið,
ég fékk mikið hrós fyrir leik minn
í Danmörku. Ég er byrjaður að
sýna stöðugleika, ég held stöðunni
miklu betur. Það var vandamál
hjá mér áður að ég var of mikið að
hlaupa úr stöðu sem er ekki gott
fyrir varnarsinnaðan miðjumann.
Í dag hef ég fundið jafnvægi í leik-
inn og þá er auðveldara að spila
leik eftir leik í sama gæðaflokki.“
Svekktur að vera ekki í lands-
liðinu
Guðlaugur á að baki sex lands-
leiki fyrir Ísland en hann hefur ekki
fengið mörg tækifæri síðustu ár,
hann fékk tækifæri í janúar þegar
liðið fór til Kína en þá voru leik-
menn í hópnum sem fá sjaldan
að vera með. ,,Maður vill auðvitað
vera í landsliðinu og það er alltaf í
huganum hjá manni að vinna sér
inn sæti í þessum hópi. Samkeppn-
in er hins vegar gríðarleg og þú sérð
bara hvaða miðjumenn eru þarna,
þú ert með Aron Einar og Gylfa Þór
þarna. Emil Hallfreðsson og Birk-
ir Bjarnason geta svo einnig leyst
þessar stöður og síðan ertu með
Rúnar Már Sigurjónsson og Ólaf
Inga Skúlason, þarna eru sex frá-
bærir leikmenn í hópnum að elt-
ast um tvær stöður. Maður gerir sér
því grein fyrir því að það er ekkert
grín að vinna sér inn sæti í þessum
hópi. Það eina sem ég hef vald á er
að hugsa um mína spilamennsku
með félagsliði og vona að það heili
Heimi Hallgrímsson og Helga Kol-
viðsson, núna er ég mættur í betra
lið og í betri deild sem gefur mér
vonandi meiri möguleika. Ég var
mjög sáttur með það hvernig ég
nýtti Kínaferðina, ég fékk góð við-
brögð eftir hana en eins og staðan
er í dag þá telja þjálfararnir að aðrir
séu betri en ég í dag, ég þarf bara að
breyta þeirri skoðun þeirra.“
Föðurhlutverkið hefur breytt
lífinu
Á dögunum varð Guðlaugur faðir í
fyrsta sinn þegar lítill strákur kom
í heiminn og hann segir hlutverkið
magnað þótt það taki líka á. ,,Þetta
eru búnar að vera fjórar svefnlaus-
ar vikur, það tekur alveg tíma að
venjast nýju hlutverki en ég myndi
ekki skipta þessu út fyrir neitt ann-
að. Núna snýst lífið ekki bara um
mann sjálfan, það sem er í for-
gangi hefur breyst. Drengurinn er
í fyrsta sæti hjá manni, þetta er til-
finning sem er ólýsanleg. Þetta er
meiri háttar, þetta er alls ekki allt
saman auðvelt en þetta er virki-
lega gefandi.“ n
Nýtt
ævintýri
í Sviss
n Guðlaugur Victor flytur til Sviss n Ný áskorun innan og utan vallar
2009–2011: Liverpool á
Englandi (var lánaður ti Dagen-
ham & Redbridge um tíma)
2011–2012: Hibernian í
Skotlandi 2012: New York Red
Bulls í Bandaríkjunum
2012–2014: NEC í Hollandi
2014–2015: Helsingborg í
Svíþjóð
2015–2017: Esbjerg í Dan-
mörku
2017– FC Zürich í Sviss
Guðlaugur mun í Sviss
spila í sjöunda landinu á
ferli sínum en hann hefur
farið víða þrátt fyrir ungan
aldur.
Hefur farið víða á ferlinum:
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
MyNd dV SiGtryGGur Ari