Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2017, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2017, Page 30
Jónsmessugleðin er fyrst og fremst menningarvið-burður Grósku í samstarfi við Garðabæ,“ segir Laufey. „Á Jónsmessugleðinni halda félagar Grósku myndlistarsýningu og leyfa með því gestum hennar að kynnast listsköpun þeirra. Einkunnarorð hátíðarinnar frá upphafi hafa verið „Gefum, gleðjum og njótum“. Því er allur undirbúningur hennar og framkvæmd unnin með gleði og án endurgjalds. Stjórn Grósku í samvinnu við Garðabæ sér um allt skipulag hennar, en til að svo viða- mikill viðburður sem hún er orðin nái fram að ganga sem best er líka öllum sýnendum úthlutað ákveðnu verkefni til að bera ábyrgð á. Það eru því margir sem hjálpast að við að þetta sumarævintýri Grósku verði að veruleika ár hvert. Á hverju ári leitum við líka til ólíkra listamanna til að leggja okkur lið með fjölbreytta viðburði. Hefur það ávallt gengið vel og hafa bæði byrj- endur sem og þekktari ljáð okkur lið. Fyrir þann velvilja þeirra erum við sannarlega þakklát fyrir.“ Gróska sett á laggirnar Grasrótarstarf Grósku hófst 2007 en hún var formlega stofnuð 2009 og eru félagar í dag um 80 talsins, af báðum kynjum, þó að konur séu í meirihluta. Er sá yngsti 23 ára og sá elsti um nírætt. Í félaginu er mikil breidd, allt frá byrjendum í myndlistinni til þekktari lista- manna. Þegar Laufey fékk hugmyndina um að koma á fót samstarfi mynd- listarmanna í Garðabæ á sínum tíma nálgaðist hún símanúmer annarra listamanna í Garðabæ hjá Sambandi íslenskra myndlistar- manna (SÍM). „Þegar við byrjuðum hafði ég búið lengi í Garðabæ, hafði nýlokið listnámi frá Listaháskóla Íslands en þekkti enga starfandi listamenn sem bjuggu í bænum. Því ákvað ég að hringja í þá sem ég fékk uppgefin símanúmer hjá og athuga hvernig þeim litist á hugmyndir mínar um að stofna einhvers konar félag eða í það minnsta að koma okkur saman um að vera sýnilegri bæjarbúum, sem og öðrum,“ segir Laufey. „Við vorum 8–10 sem byrjuðum og þekktumst lítið innbyrðis en í dag eru þetta góðir vinir mínir.“ „Ég brenn einnig fyrir því að við Garðbæingar eignumst listasafn, þetta er bara framkvæmd sem þarf að klára, finna undir það húsnæði og setja markvissa stefnu því til uppbyggingar og framþróunar,“ segir Laufey. „Ég á mér einnig þann draum að Garðabær verði þekktur sem menningar- og listabær því hér býr fullt af frábærum listamönnum með fjölbreyttan bakgrunn í sinni listsköpun, svo sem tónlist, mynd- list, ritlist og kvikmyndagerð – hér er einfaldlega öll flóran.“ Jónsmessugleðin orðin eftirsóknarverð meðal listamanna „Félagsmenn Grósku skrá sig til þátttöku í Jónsmessugleðinni og einnig höfum við boðið til liðs við okkur myndlistarmönnum úr öðrum bæjarfélögum og er þátttaka orðinð eftirsóknarverð. Í ár voru til dæmis með okkur listamenn frá Kópavogi, Suðurnesjum, Vest- mannaeyjum og Akranesi,“ segir Laufey. „Eins og áður segir leitum við einnig til annarra listamanna í Garðabæ með viðburði og hefur sú beiðni okkar fengið frábærar viðtökur. Þau sem leggja okkur lið Árleg Jónsmessugleði Grósku, félags mynd- listarmanna í Garðabæ, fór fram fimmtu- daginn fyrir Jónsmessu á göngustígnum við strandlengjuna í Sjálandshverfi Garðabæj- ar. Sú sem átti hugmyndina að Jónsmessu- gleðinni, ásamt stofnun Grósku, er Laufey Jensdóttir, myndlistarmaður og formaður Grósku. „Gefum, gleðjum og njótum“ Eliza Reid forsetafrú, sem setti hátíðina, ásamt formanni Grósku, Laufeyju Jens- dóttur. Mynd © 2017 ValdiMar SaeMundSSon Listmyndataka Það má taka mynd af sér með listaverkunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.