Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2017, Side 56
32 lífsstíll Helgarblað 7. júlí 2017
Frændur og frænkur
sem fáir vita af
Í
slendingar hafa í aldanna rás
verið afar áhugasamir um
ættfræði sem er mjög skiljan-
legt enda samfélagið fámennt
og allir skyldir með einhverjum
hætti. Yfirleitt fer þó vitneskjan
um tengslin að rofna þegar kom-
ið er fram í aðra eða þriðju kyn-
slóð. DV tók saman nokkra
landsþekkta einstaklinga
sem eru náskyldir en
fæstir vita af. Þá myndi
DV fagna fleiri slík-
um ábendingum
frá lesendum. n
Ráðherra og afreksfólk
Óhætt er að fullyrða að enginn tengir Jóhönnu Sigurðardóttur við íþróttaafrek. Þó er það svo að tveir afreksíþróttamenn eru náskyldir
henni. Systkinin Sigurður Egill og Dóra María Lárusarbörn eru systurbörn Jóhönnu. Móðir þeirra er Hildigunnur Sigurðardóttir. Sigurður Egill
hefur verið einn albesti leikmaðurinn í Pepsi-deild karla um nokkurra ára skeið. Þá hefur systir hans, Dóra María, verið í hópi bestu leikmanna
Íslands um árabil. Hún hefði eflaust gegntlykilhlutverki á Evrópumótinu í Hollandi í sumar ef grátleg meiðsli hefðu ekki komið í veg fyrir það.
Með kjarnakonur í frændgarðinum
Útvarpsmaðurinn og fótboltasérfræðingurinn Hjörvar Hafliðason er áberandi í allri umræðu
hjá miðlum 365 miðla. Þar stýrir hann vinsælum morgunþætti á FM957 og er einn helsti
sérfræðingur fyrirtækisins þegar kemur að flaggskipi þess, umfjöllun um fótbolta. Hjörvar á
ekki langt að sækja hæfileikann til þess að láta móðan mása í míkrafóninn því einn eigandi
Útvarps Sögu, Arnþrúður Karlsdóttir, er náfrænka hans. Móðir Arnþrúðar, María Helga
Guðmundsdóttir, átti bróður sem hét Karl Emil Guðmundsson. Karl er afi Hjörvars.
Umdeildar frænkur
Gustað hefur um Ástu Guðrúnu Helgadóttur, þingmann Pírata, undanfarin misseri, en sá orðrómur hefur verið
hávær að hún sé búin að mála sig út í horn innan þingflokks Pírata og hugsi sér jafnvel til hreyfings. Hvað sem verður
þá á Ásta Guðrún frænku sem er vön því að standa með vindinn í fangið. Það er engin önnur en athafnakonan Jónína
Benediktsdóttir. Systir Jónínu, Ingibjörg Sara Benediktsdóttir, er móðir Ástu Guðrúnar.
Vilja hafa áhrif
Ástþór W. Magnússon, raðframbjóðandi til forsetaembættisins, er móðurbróðir Jóns Gunnarssonar, samgönguráð-
herra Sjálfstæðisflokksins. Móðir Jóns heitir Erla D. Magnúsdóttir og er Ástþór yngsti bróðir hennar.
Glúrin á sínu sviði
Ólína K. Þorvarðardóttir var nýlega í helgarviðtali í DV í tilefni þeirra tímamóta að hún er hætt á Alþingi. Hún vinnur
nú að sjálfstæðu rannsóknarverkefni sem hún ber vonir til að verði að bók innan tíðar. Fæstir vita að faðir Ólínu,
Þorvarður Kjerúlf Þorsteinsson, sýslumaður og bæjarfógeti, er bróðir Jóns Þorsteinssonar læknis. Jón er faðir fjöl-
miðlamannsins Eiríks Jónssonar.
Með leiklistina í blóðinu
Ólafur Arnarson hefur verið í sviðsljósinu undanfarið í kjölfar þess að upp úr sauð milli hans og samherja hans
innan stjórnar Neytendasamtakanna. Ólafur er bróðir leikkonunnar Jóhönnu Vigdísar Arnardóttur, sem á dögunum
söðlaði um og tók við starfi verkefnastjóra hjá Samtökum iðnaðarins. Þá hefur systir Ólafs og Jóhönnu Vigdísar,
lögfræðingurinn Guðrún Sesselja, einnig getið sér gott orð fyrir leiklist en hún lék veigamikið hlutverk í Eiðnum
eftir Baltasar Kormák. Systkinin þrjú eru börn Arnar Clausen en tvíburabróðir hans, Haukur, er faðir leikkonunnar
Þórunnar E. Clausen.
Jóhanna
Sigurðardóttir
Sigurður Egill
Lárusson
Arnþrúður Karlsdóttir
Dóra María
Lárusdóttir
Hjörvar
Hafliðason
Ásta Guðrún Helgadóttir Jónína Benediktsdóttir
Eiríkur Jónsson Ólína K. Þorvarðardóttir
Ólafur Arnarson
Hefur staðið í ströngu undanfarið
Þórunn Erna Clausen
Ástþór
Magnússon Jón Gunnarsson