Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Síða 4
4 Helgarblað 15. september 2017fréttir
„Mannréttindi
sigra alltaf“
Ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að synja föður barns, sem fæddist andvana, um orlof felld úr gildi
V
ið erum himinlifandi með
þessa niðurstöðu. Mann
réttindi sigra alltaf. Það er
ekki víst að þetta gagnist
okkur en að minnsta kosti er núna
búið að ryðja brautina þannig að
næsta par þarf ekki að ganga í
gegnum sömu erfiðleika. Það er
nógu erfitt að takast á við sorgina
þó að maður sé ekki að glíma
við kerfið líka,“ segir Sigrún Ásta
Brynjarsdóttir í samtali við DV. Í
aprílbyrjun greindi DV frá því að
unnusti Sigrúnar Ástu, Magnús
Óskar, hefði fengið synjun á um
sókn í fæðingarorlofssjóð í kjöl
far þess að dóttir þeirra, Emma,
fæddist andvana. Ástæðan var
sú að parið unga, sem síðan hef
ur gengið í það heilaga, var ekki
skráð í formlega sambúð. Þau
kærðu niðurstöðu Fæðingar
orlofssjóðs og í vikunni bárust
þær fréttir að ákvörðunin hefði
verið felld úr gildi og að stofnun
inni hefði verið óheimilt að synja
Magnúsi um fæðingarorlof á þess
um grundvelli.
„Það fá engin orð lýst þeirri
sorg sem við höfum upplifað“
Ósveigjanleiki kerfisins var salt í
sárið hjá parinu sem var í miðju
sorgarferli. „Að jarða barnið sitt
er eitthvað sem við óskum ekki
okkar verstu óvinum. Það fá
engin orð lýst þeirri sorg sem við
höfum upplifað. Tímabilið eftir
fæðinguna var eins og í móðu
en ég er fegin að hafa ekki feng
ið fregnir af þessu óréttlæti þá,“
sagði Sigrún Ásta í áðurnefndu
viðtali við DV í apríl.
Í stað þess að njóta samvista
við nýfætt barn sitt þurftu Sig
rún Ásta og Magnús Óskar að
skipuleggja útför þess og huga að
margs konar formsatriðum. Eitt
af því var það að heimsækja skrif
stofu sýslumanns í Borgarnesi þar
sem þau sóttust eftir því að fá fað
erni barnsins viðurkennt. Í kjöl
farið sóttu þau um í Fæðingar
orlofssjóði. Nokkrum vikum síðar
barst synjun frá báðum stofnun
um á þeim grundvelli að Sigrún
Ásta og Magnús Óskar hefðu ekki
verið skráð í sambúð.
Frábær vinnuveitandi
„Það stendur ekkert í lögum um
tilvik sem þetta, enda byggist
synjun Þjóðskrár á mati stofn
unarinnar. Ef dóttir okkar hefði
fæðst og lifað í nokkrar klukku
stundir þá hefði þetta farið í gegn.
Maður upplifir að líf hennar sé
minna virði af því að hún var látin
þegar hún fæddist,“ sagði Sigrún
Ásta enn fremur.
Við tóku erfiðir tímar sem þó
urðu bærilegri sökum hlýju og
velvilja sem parið unga upplifði
í sínu nánasta umhverfi. Meðal
annars fékk Magnús Óskar frí
frá vinnu á fullum launum í einn
mánuði meðan á sorgarferlinu
stóð. „Það var ómetanlegt að
finna hvað við eigum góða að,“
segir Sigrún Ásta.
Í kjölfar fréttarinnar hafði lög
fræðingurinn Þorgils Þorgils son,
einn eigenda Juvo lögmanna,
samband við Sigrúnu Ástu og
Magnús Óskar og bauð þeim
þjónustu stofunnar þeim að
kostnaðarlausu til þess að
freista þess að fá óréttlætinu
hnekkt. Áslaug Lára Lárusdóttir,
lögmaður hjá Juvo lögmönnum,
tók við málinu og í sumar var
ákvörðun Fæðingar orlofssjóðs
kærð til úrskurðarnefndar vel
ferðarmála. Í vikunni bárust loks
þær fréttir að ákvörðunin hefði
verið felld úr gildi og stofnun
in þyrfti að endurskoða málið.
„Það er ekkert víst að Magnús fái
fæðingarorlof úr þessu. Það var
heldur aldrei aðalatriðið heldur
að um óréttlæti var að ræða. Við
vildum því taka slaginn til þess að
þrýsta á breytingar,“ segir Sigrún
Ásta.
Úrskurðurinn er
skref í þágu jafnréttis
Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður
segir að túlkun Fæðingarorlofs
sjóðs á lögunum hafi verið röng
og leitt til ómöguleika sem nú hef
ur verið leiðréttur. Hún fagnar úr
skurði kærunefndar og segir hann
skref í þágu jafnréttis. „Foreldrar
eiga sjálfstæðan rétt til fæðingar
orlofs við andvanafæðingu sam
anber 12. grein fæðingarorlofs laga.
Túlkun og framkvæmd Fæðingar
orlofssjóðs hefur aftur á móti ver
ið sú að við fæðingu andvana barns
eigi faðir ekki rétt á greiðslum frá
sjóðnum ef hann hefur ekki verið
í hjúskap eða sambúð með móð
ur. Þessi túlkun sjóðsins byggði
á því að í öðru ákvæði laganna
eru sett þau skilyrði fyrir rétti til
fæðingarorlofs að foreldri fari með
forsjá barnsins eða fyrir liggi sam
þykki um umgengni á fæðingar
orlofstíma,“ segir Áslaug Lára.
Hún segir auðséð að ekki sé
hægt að bera saman þessar ólíku
aðstæður þar sem annað fjallar
um rétt í tengslum við umönnun
barns eftir fæðingu en hitt um
fæðingu andvana barns. „Með
öðrum orðum byggði túlkun
Fæðingarorlofssjóðs á lagaákvæði
sem getur ekki átt við um þess
ar aðstæður. Fyrrgreint skilyrði
hafi leitt til ómöguleika þar sem
faðir öðlast ekki sjálfkrafa forsjá
barnsins, sé hann ekki í hjúskap
eða sambúð, og ekki er hægt að
skrá faðerni þegar um andvana
fæðingu er að ræða samkvæmt
núgildandi reglum. Þannig gæti
enginn faðir í slíkri aðstöðu upp
fyllt skilyrðin sem Fæðingar
orlofssjóður hefur sett um rétt
til fæðingarorlofs við andvana
fæðingu,“ segir Áslaug Lára.
Markmið fæðingarorlofs
við andvana fæðingu barns er
að veita foreldrum svigrúm til
að jafna sig á áfallinu sem því
fylgir. Ákvörðun Fæðingaror
lofssjóðs í máli Magnúsar Ósk
ars hafi svipt hann því svigrúmi.
„Sami réttur á því að gilda fyrir
feður sem mæður, óháð því hvert
hjúskapar eða sambúðarform
þeirra er. Þetta hefur nú úrskurð
ur úrskurðarnefndar velferðar
mála staðfest með því að fella úr
gildi ákvörðun Fæðingarorlofs
sjóðs um synjun á fæðingarorlofi
til föður andvana barns, sem ekki
var í hjúskap eða sambúð með
móður. Úrskurðurinn er mikil
vægt fordæmi varðandi jafnrétti
kynjanna og skref í þágu jafn
réttis,“ segir Áslaug Lára. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
„Að jarða
barnið
sitt er eitthvað
sem við óskum
ekki okkar
verstu óvinum
Sigrún Ásta Brynjarsdóttir
Segist ánægð með að réttlætinu hafi
verið fullnægt og ómanneskjulegri
ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs hafi
verið felld úr gildi.
Áslaug Lára Lárusdóttir