Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Síða 6
6 Helgarblað 15. september 2017fréttir
Þ
að er nokkuð ljóst að
Reykjavíkurborg er besti
vinur kennitöluflakkara.
Urð og Grjót er eitt af
fáum jarðvinnuverktakafyrir
tækjum sem hafa verið að borga
skatt undanfarna áratugi og það
er óþolandi að þurfa að keppa
við rekstrarsóða og glæpamenn.
Það sér það hver maður að það er
ekki mikil sanngirni í þessu,“ segir
Garðar Þorbjörnsson, stærsti eig
andi Urðar og Grjóts ehf., í samtali
við DV.
Í byrjun vikunnar samþykkti
Innkauparáð Reykjavíkurborgar
að taka tilboði lægstbjóðanda,
Háfells ehf., í gatnagerð og lagnir
á nýju byggingarsvæði á Strætó
reitnum við Kirkjusand. Háfell var
áður eitt umsvifamesta verktaka
fyrirtæki landsins og kom að stór
um verkefnum eins og Héðins
fjarðargöngum og tvöföldun
Reykjanesbrautar.
1,2 milljarða gjaldþrot
Síðan fór að halla undan fæti
og fyrir rúmu ári var fyrirtækið,
sem þá var rekið á 30 ára gam
alli kennitölu, úrskurðað gjald
þrota. Ekkert fékkst upp í kröfur í
þrotabúið sem hljóðuðu upp á 1,2
milljarða króna. Eigandi Háfells
ehf. var Skarphéðinn Ómarsson
og svo heppilega vildi til að árið
2007 stofnaði hann annað fyr
irtæki, Hálsafell ehf. Það fyrir
tæki var í helmingseigu hans og
Jóhanns Gunnars Stefánssonar
til að byrja með en árið 2013 var
fyrirtækið komið að fullu og öllu
eigu Skarphéðins. Tveimur árum
síðar var eiginkona Skarphéðins,
Linda Arilíusdóttir, orðinn eig
andi alls Hálsafells ehf. Staðan
í dag er sú Linda á enn 99,2 pró
senta hlut í fyrirtækinu en Pétur
Guðmundsson á 0,8 prósenta hlut
í gegnum félagið Mókoll ehf.
Í febrúar á þessu ári var nafni
fyrirtækisins breytt í Háfell ehf. og
síðan gerði fyrirtækið tilboð í hið
umfangsmikla verkefni á Kirkju
sandi. Háfell bauð 223,5 millj
ónir verkið sem samsvaraði 97
prósentum af kostnaðaráætlun.
Næstlægsta tilboð átti fyrirtæki
Garðars, Urð og Grjót ehf., en til
boð þess hljóðaði upp á 227,2
milljónir króna.
Innkaupareglur sem ganga ekki
nógu langt
DV fjallaði á dögunum um við
skipti Reykjavíkurborgar við verk
takafyrirtæki sem er starfrækt á
sinni fjórðu kennitölu. Eigandi fé
lagsins, Kristján Ólason, hafði á
rúmum áratug, rekið að minnsta
kosti sex fyrirtæki í þrot og rann
sakar skattrannsóknarstjóri nú
meint brot í tengslum við rekstur
fyrirtækjanna. Þrátt fyrir þessa
slóð gjaldþrota þá ganga inn
kaupareglur Reykjavíkurborgar
ekki nógu langt til þess að koma í
veg fyrir athæfi sem þetta.
Samband íslenskra sveitar
félaga setti fram fyrirmynd að inn
kaupareglum sveitarfélaga árið
2007 og þar var mælst til þess að
viðskiptasaga þeirra sem leituðu
eftir samningum við sveitarfélög
yrði skoðuð. Ef sú könnun leiddi í
ljós að eigandi eða fyrirtæki hefði
lent í greiðslustöðvun eða gjald
þroti undanfarin fimm ár á undan
bæri að vísa þessum aðila frá út
boðinu, að því gefnu að í hlut ætti
sams konar rekstrareining, með
sömu eða nær sömu eigendur og
í sömu eða nær sömu atvinnu
starfsemi en með nýja kennitölu.
Gildandi innkaupareglur borgar
innar, frá árinu 2014, tóku ekki
mið af þessum tilmælum og því
þrífast viðskipti borgarinnar við
kennitöluflakkara.
Garðar er harðorður um
ástandið hjá Reykjavíkurborg.
„Fyrir um tíu árum var Reykja
víkurborg líklega besti verkkaupi
sem völ var á. Síðan þá hefur
ástandinu hrakað mjög og núna er
borgin langversti verkkaupi sem
hugsast getur. Það er einfaldlega
þannig að ef menn komast í önnur
verk þá fara þeir miklu frekar í þau
heldur en að vinna fyrir borgina.
Það þarf að vera eitthvað sérstakt
til þess að ég nenni að gera tilboð
í verk hjá Reykjavíkurborg. Síðan
kemur í ljós að þeir púkka upp á
glæpamenn,“ segir Garðar her
skár. Aðspurður hverju sé um að
kenna að þessi málaflokkur hjá
borginni sé í ólestri segir Garðar:
„Eftir höfðinu dansa limirnir.
Hverjir eru búnir að stjórna hér
í tæpan áratug?“ Þá gagnrýnir
hann þá staðreynd að tilboðsgjaf
ar fái ekki að vera viðstaddir þegar
tilboðin eru opnuð og segir að það
skapi tortryggni.
Blessun borgarlögmanns
Á áðurnefndum fundi Innkaupa
ráðs borgarinnar í vikunni var
samþykkt að ganga til samn
inga við Háfell ehf. með tveim
ur atkvæðum fulltrúa Samfylk
ingarinnar og Bjartrar framtíðar
gegn einu atkvæði fulltrúa Sjálf
stæðisflokks. Fulltrúi Sjálfstæðis
flokksins, Björn Gíslason, og
áheyrnarfulltrúi Framsóknar og
flugvallarvina, Jóna Björg Sætran,
bentu bæði á rekstrarsögu Háfells
og lagði Björn fram bókun þess
efnis að mikilvægt væri að kanna
rekstrarsögu fyrirtækja og ekki
skyldi ganga til samninga við fyrir
tæki sem nýlega hafa orðið gjald
þrota.
Dóra Magnúsdóttir og Magnea
Guðmundsdóttir, fulltrúar Sam
fylkingarinnar og Bjartrar fram
tíðar, báru fyrir sig álit borgar
lögmanns sem komst að þeirri
niðurstöðu að Háfell ehf. upp
fyllti skilyrði í innkaupareglum
borgarinnar. Til viðbótar létu full
trúarnir bóka eftirfarandi klausu:
„Fulltrúarnir telja brýna ástæðu
til áframhaldandi endurskoðun
ar innkaupareglna Reykjavíkur
borgar er lúta að kennitöluflakki
og viðskiptasögu.“
DV freistaði þess að fá afrit
af áliti borgarlögmanns en svör
höfðu ekki borist þegar blaðið fór
í prentun. n
„Reykjavíkurborg
er besti vinur
kennitöluflakkara“
n Garðar Þorbjörnsson, eigandi Urðar og Grjóts ehf., fordæmir innkaup borgarinnar
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is „Það þarf að
vera eitt-
hvað sérstakt til
þess að ég nenni
að gera tilboð í
verk hjá Reykja-
víkurborg
Kirkjusandur Reykjavíkurborg bauð út framkvæmdir á Strætóreitnum.