Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Blaðsíða 6
6 Helgarblað 15. september 2017fréttir Þ að er nokkuð ljóst að Reykjavíkurborg er besti vinur kennitöluflakkara. Urð og Grjót er eitt af fáum jarðvinnuverktakafyrir­ tækjum sem hafa verið að borga skatt undanfarna áratugi og það er óþolandi að þurfa að keppa við rekstrarsóða og glæpamenn. Það sér það hver maður að það er ekki mikil sanngirni í þessu,“ segir Garðar Þorbjörnsson, stærsti eig­ andi Urðar og Grjóts ehf., í samtali við DV. Í byrjun vikunnar samþykkti Innkauparáð Reykjavíkurborgar að taka tilboði lægstbjóðanda, Háfells ehf., í gatnagerð og lagnir á nýju byggingarsvæði á Strætó­ reitnum við Kirkjusand. Háfell var áður eitt umsvifamesta verktaka­ fyrirtæki landsins og kom að stór­ um verkefnum eins og Héðins­ fjarðargöngum og tvöföldun Reykjanesbrautar. 1,2 milljarða gjaldþrot Síðan fór að halla undan fæti og fyrir rúmu ári var fyrirtækið, sem þá var rekið á 30 ára gam­ alli kennitölu, úrskurðað gjald­ þrota. Ekkert fékkst upp í kröfur í þrotabúið sem hljóðuðu upp á 1,2 milljarða króna. Eigandi Háfells ehf. var Skarphéðinn Ómarsson og svo heppilega vildi til að árið 2007 stofnaði hann annað fyr­ irtæki, Hálsafell ehf. Það fyrir­ tæki var í helmingseigu hans og Jóhanns Gunnars Stefánssonar til að byrja með en árið 2013 var fyrirtækið komið að fullu og öllu eigu Skarphéðins. Tveimur árum síðar var eiginkona Skarphéðins, Linda Arilíusdóttir, orðinn eig­ andi alls Hálsafells ehf. Staðan í dag er sú Linda á enn 99,2 pró­ senta hlut í fyrirtækinu en Pétur Guðmundsson á 0,8 prósenta hlut í gegnum félagið Mókoll ehf. Í febrúar á þessu ári var nafni fyrirtækisins breytt í Háfell ehf. og síðan gerði fyrirtækið tilboð í hið umfangsmikla verkefni á Kirkju­ sandi. Háfell bauð 223,5 millj­ ónir verkið sem samsvaraði 97 prósentum af kostnaðaráætlun. Næstlægsta tilboð átti fyrirtæki Garðars, Urð og Grjót ehf., en til­ boð þess hljóðaði upp á 227,2 milljónir króna. Innkaupareglur sem ganga ekki nógu langt DV fjallaði á dögunum um við­ skipti Reykjavíkurborgar við verk­ takafyrirtæki sem er starfrækt á sinni fjórðu kennitölu. Eigandi fé­ lagsins, Kristján Ólason, hafði á rúmum áratug, rekið að minnsta kosti sex fyrirtæki í þrot og rann­ sakar skattrannsóknarstjóri nú meint brot í tengslum við rekstur fyrirtækjanna. Þrátt fyrir þessa slóð gjaldþrota þá ganga inn­ kaupareglur Reykjavíkurborgar ekki nógu langt til þess að koma í veg fyrir athæfi sem þetta. Samband íslenskra sveitar­ félaga setti fram fyrirmynd að inn­ kaupareglum sveitarfélaga árið 2007 og þar var mælst til þess að viðskiptasaga þeirra sem leituðu eftir samningum við sveitarfélög yrði skoðuð. Ef sú könnun leiddi í ljós að eigandi eða fyrirtæki hefði lent í greiðslustöðvun eða gjald­ þroti undanfarin fimm ár á undan bæri að vísa þessum aðila frá út­ boðinu, að því gefnu að í hlut ætti sams konar rekstrareining, með sömu eða nær sömu eigendur og í sömu eða nær sömu atvinnu­ starfsemi en með nýja kennitölu. Gildandi innkaupareglur borgar­ innar, frá árinu 2014, tóku ekki mið af þessum tilmælum og því þrífast viðskipti borgarinnar við kennitöluflakkara. Garðar er harðorður um ástandið hjá Reykjavíkurborg. „Fyrir um tíu árum var Reykja­ víkurborg líklega besti verkkaupi sem völ var á. Síðan þá hefur ástandinu hrakað mjög og núna er borgin langversti verkkaupi sem hugsast getur. Það er einfaldlega þannig að ef menn komast í önnur verk þá fara þeir miklu frekar í þau heldur en að vinna fyrir borgina. Það þarf að vera eitthvað sérstakt til þess að ég nenni að gera tilboð í verk hjá Reykjavíkurborg. Síðan kemur í ljós að þeir púkka upp á glæpamenn,“ segir Garðar her­ skár. Aðspurður hverju sé um að kenna að þessi málaflokkur hjá borginni sé í ólestri segir Garðar: „Eftir höfðinu dansa limirnir. Hverjir eru búnir að stjórna hér í tæpan áratug?“ Þá gagnrýnir hann þá staðreynd að tilboðsgjaf­ ar fái ekki að vera viðstaddir þegar tilboðin eru opnuð og segir að það skapi tortryggni. Blessun borgarlögmanns Á áðurnefndum fundi Innkaupa­ ráðs borgarinnar í vikunni var samþykkt að ganga til samn­ inga við Háfell ehf. með tveim­ ur atkvæðum fulltrúa Samfylk­ ingarinnar og Bjartrar framtíðar gegn einu atkvæði fulltrúa Sjálf­ stæðisflokks. Fulltrúi Sjálfstæðis­ flokksins, Björn Gíslason, og áheyrnarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina, Jóna Björg Sætran, bentu bæði á rekstrarsögu Háfells og lagði Björn fram bókun þess efnis að mikilvægt væri að kanna rekstrarsögu fyrirtækja og ekki skyldi ganga til samninga við fyrir­ tæki sem nýlega hafa orðið gjald­ þrota. Dóra Magnúsdóttir og Magnea Guðmundsdóttir, fulltrúar Sam­ fylkingarinnar og Bjartrar fram­ tíðar, báru fyrir sig álit borgar­ lögmanns sem komst að þeirri niðurstöðu að Háfell ehf. upp­ fyllti skilyrði í innkaupareglum borgarinnar. Til viðbótar létu full­ trúarnir bóka eftirfarandi klausu: „Fulltrúarnir telja brýna ástæðu til áframhaldandi endurskoðun­ ar innkaupareglna Reykjavíkur­ borgar er lúta að kennitöluflakki og viðskiptasögu.“ DV freistaði þess að fá afrit af áliti borgarlögmanns en svör höfðu ekki borist þegar blaðið fór í prentun. n „Reykjavíkurborg er besti vinur kennitöluflakkara“ n Garðar Þorbjörnsson, eigandi Urðar og Grjóts ehf., fordæmir innkaup borgarinnar Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is „Það þarf að vera eitt- hvað sérstakt til þess að ég nenni að gera tilboð í verk hjá Reykja- víkurborg Kirkjusandur Reykjavíkurborg bauð út framkvæmdir á Strætóreitnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.