Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Side 18
18 umræða Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Sigurvin Ólafsson ritstjóri dv.is: Kristjón Kormákur Guðjónsson aðstoðarritstjóri dv.is: Einar Þór Sigurðsson umbrot: DV ehf. Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. aðalnúmer: 512 7000 auglýsingar: 512 7050 ritstjórn: 512 7010 fréttaskot 512 70 70 Heimilisfang Kringlan 4-12, 4. hæð 103 Reykjavík Sandkorn Helgarblað 15. september 2017 Enginn til að starfa með Flokkur fólksins hefur sótt í sig veðrið að undanförnu og mælist stærri í könnunum en tveir af þremur stjórnarflokk- unum. Flokkurinn er þó ekki beinlínis í óskastöðu því það mun reynast þrautin þyngri að fara í stjórnarsamstarf. Langt er á milli skoðana Flokks fólksins og Sjálfstæðisflokksins og ekk- ert gengur svo hjá flokknum að ná hljómgrunni meðal hefð- bundnu vinstriflokkanna, sem telja Flokk fólksins lítið annað en hóp þjóðernissinnaðra lýð- skrumara. Nái flokkurinn ein- hverju fylgi meðal landsmanna er hætt við að áhrifin verði lítil sem engin í stjórnarandstöðu og hratt muni fjara undan hon- um. Forsvarsmenn flokksins gætu samt huggað sig við að hafa fengið þægilega innivinnu á þingi eða í borgarstjórn – um tíma. Pírati tekur mynd Í sumar hlaut Björt Ólafsdóttir bágt fyrir að hafa tekið þátt í myndatöku í þingsal. Sögðu Píratar, sem og fleiri, að hún hefði misnotað aðstöðu sína og vanvirt þingið. Fannst mörgum það aum rök hjá ráðherra að myndin hafi ekki ver- ið tekin inni í þingsalnum sjálfum heldur fyrir utan. Við þingsetningu síðastliðið miðvikudags- kvöld fjarlægði lögreglan mót- mælendur af þingpöllunum og notaði þingmaður Pírata, Björn Leví Gunnarsson, tækifærið og tók mynd inni í þingsal. Halda skal því til haga að Björt var einnig gagnrýnd fyrir að nota myndina í auglýsinga- skyni og sem greiða fyrir vin- konu sína. Þingmaður Pírata notar myndina hins vegar í pólitískum tilgangi til að vekja athygli á mótmælum yfir ræðu forsætisráðherra, en enn sem komið er hefur enginn gagn- rýnt hann fyrir brot á reglum. E ftirlit með fjárhættuspila- iðnaðinum á Íslandi er í molum. Á árunum 2011–13 var reynt að koma böndum á þennan óhugnanlega tugmilljarða iðnað með lögum. Alþingi sýndi málinu hins vegar engan áhuga og flestir þeirra sem tjáðu sig um fram komið lagafrumvarp sýndu því fjandskap. Málið dagaði því uppi. Ærunni fórnað fyrir spilagróðann Þessa sögu þekki ég mjög vel því ég var sá ráðherra sem reyndi á þessum árum að bæta úr því ófremdarástandi sem ríkir hvað varðar varnir fyrir spilafíkla. Þeir eru ekki ýkja margir en nægilega margir þó til að fóðra Háskóla Ís- lands, SÁÁ, Landsbjörg og Rauða krossinn, svo ríkulega að æran varð þeim fyrir bragðið minna virði en peningarnir sem aflað er með fjárhættuspilum. Háskóli Íslands lætur sér sæma að reka grófar fjárhættubúllur undir Háspennu- og Gullnámu- heitum vel vitandi að þannig má lokka inn fyrir þröskuld fólk sem haldið er spilafíkn. En öll met í ósvífni þykja mér þó slegin með nýupplýstu háttalagi Íslandsspila, regnhlífarsamtaka SÁÁ, Rauða krossins og Landsbjargar. Sjálfum sér til höfuðs! Ég ætlaði vart að trúa mínum eig- in augum við lestur úttektar DV, í helgarblaðinu 8. september, á til- raunum sem þessir aðilar eru að gera á spilafíklum í samstarfi við framleiðendur lokkunarleikja. Milligönguaðilinn samkvæmt út- tektinni er Gallup. Samkvæmt frásögn DV ganga tilraunirnar út á að starfsmenn Gallup láta spilafíkla fást við mis- munandi spennuleiki undir eftirliti og mælingum svo búa megi til sem bestar gildrur fyrir þá fyrir framan vélarnar. Spilafíklarnir fá greitt fyrir að gerast þannig tilraunadýr sjálf- um sér til höfuðs! Þetta getur varla flokkast undir annað en nánast glæpsamlegt siðleysi. Talsverð umfjöllun hefur orðið í nokkrum fjölmiðlum í kjölfar uppljóstrana DV og ítarleg í sum- um þeirra og er það þakkarvert. En meiri mætti hún verða og al- mennari því tilefnið er ærið. Þöggun á þingi Þá komu allar endurminning- arnar til baka. Þegar ég fyrst byrj- aði að fjalla um þessi mál á Al- þingi um miðjan tíunda áratuginn og tók þar við kefli sem Guðrún Helgadóttir, rithöfundur og al- þingismaður, hafði haldið á lofti og síðar Rannveig Guðmunds- dóttir þingkona. Þá tók ég fljótlega eftir ákveðnu hegðunarmynstri í þingsalnum. Varla hafði umræða hafist um málið þegar þingsalur- inn nánast tæmdist. Hver vildi lenda upp á kant við hjálparsveit- irnar, Rauða krossinn eða Há- skóla Íslands? „Eða ert þú á móti þessum eðlu stofnunum og lífs- nauðsynlegu starfsemi?“ Þetta var spurningin sem lá í loftinu. Reynt að ná samkomulagi um breytingar Þegar ég síðan kom í dómsmála- ráðuneytið sem ráðherra haustið 2010 var ég staðráðinn í því að reyna að færa þessi mál til betri vegar. Lét ég ráðast í mikla undir- búningsvinnu og lagði síðan til langtímaáætlun um breytingu á lagaumhverfi og eftirliti. Allt skyldi þetta gert í skrefum og með þeim hætti að sem víðtækust sátt gæti skapast og þannig forsendur fyrir því að árangur næðist. Á grundvelli þessarar vinnu var lagt fram áður nefnt lagafrumvarp. Áhugasamir geta síðan skoðað umræðuna sem þá fór fram í þingsal en áhugaleysið er hins vegar erfiðara að greina því þögnin ein er þar til vitnis. DV rýfur þögnina En nú er sem sagt svo komið að eftirlitið með spilavítiskössum hefur sennilega aldrei verið minna og ósvífnin aldrei meiri. DV á hins vegar mikið lof skilið fyrir rannsóknarvinnu sína. Megi hún verða fyrsta skrefið í að gerð verði gangskör að því laga þessi mál – ekki með sýndareftirliti eins og nú er og hefur alla tíð verið, heldur verði málið tekið föstum tökum Skref númer tvö væri augljós- lega afsökunarbeiðni af hálfu Ís- landsspila og Gallup en stjórn- sýslan og Alþingi mættu einnig axla sinn skerf af skömminni. Að þessum skrefum teknum mætti setja lög um óháð eftirlit með þessari háskalegu starfsemi. Frumvarpið er tilbúið. Það mætti byrja á því að lögfesta það. En þar er umgjörðina að finna. Síðan þarf meira að koma til. Verst er lognmollan, andvara- leysið og þögnin. Gott þegar hún er rofin þótt tilefnið sé ekki til að gleðjast yfir! n Höfundur er fyrrverandi dóms- mála- og mannréttindaráðherra Hvar er afsökunarbeiðni frá Íslandsspilum og Gallup? Ögmundur Jónasson skrifar Aðsent Það skiptir álíka miklu máli hver er borgarstjóri í Reykjavík og hver er forstjóri Toyota Fólk í frjálsu lýðræðissamfélagi á að láta í sér heyra þegar því er misboðið Jón Gnarr – DVGuðni Th. Jóhannesson – ruv.is „Barn á flótta er barn í neyð Sáttmáli barnanna M iklar og heitar umræður hafa orðið hér á landi um stúlkurnar Mary, átta ára, og Haniye, ellefu ára, sem fæddust á flótta en komu hingað til lands ásamt fjöl- skyldum sínum í von um betra líf. Ákveðið var að senda þær úr landi, en um leið reis öflug mót- mælaalda þeim til stuðnings. Aðalatriðið í máli Mary og Haniye er að þær eru börn og eiga, samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sinn rétt. Í sáttmálanum segir: „ Allar ákvarðanir eða ráðstafanir yfir- valda er varða börn skulu byggð- ar á því sem er börnum fyrir bestu.“ Þar sem við vitum hversu grimmur heimurinn er þá er ljóst að þetta ákvæði er þver- brotið víða um heim. Það ætti hins vegar ekki að vera sjálfsagt í lýðræðisríki eins og okkar. Við hljótum að slá skjaldborg um öll börn og huga að velferð þeirra. Þegar kemur að flóttabörnum megum við aldrei gleyma því að barn á flótta er barn í neyð. Inn í umræðu um mál Mary og Haniye, sem að hluta hefur einkennst af æsingi og tilfinn- ingahita, kom einstaklingur sem talar af áberandi yfirvegun, þekk- ingu og skynsemi um rétt barna sem eru á flótta. Hér er átt við umboðsmann barna, Salvöru Nordal. Hún hefur bent stjórn- völdum á að þau verði að fylgja ákvæðum Barnasáttmála Sam- einuðu þjóðanna. Harðlynda fólkið sem andvarpar í hvert sinn sem fréttist af komu flóttamanna hingað til lands og fer að telja kostnaðinn verður að átta sig á því að ekki er hægt að afgreiða þann sáttmála eins og sé hann enn eitt þreytandi plagg- ið frá óþarfri erlendri eftirlitsstofnun. Salvör Nordal segir að vís- bendingar séu um að ekki sé nægi- lega leitað eftir skoðun þess barns sem er á flótta og þarfnast verndar. Börn á flótta hafa séð og upp- lifað hörm- ungar. Ekkert barn ætti að lifa við slíkt. Það er siðferði- leg skylda okkar sem þjóð- ar að koma börnum á flótta til bjargar og bjóða þeim hæli en ekki hrekja þau burt. Þau hafa upplifað næga höfnun. n Leiðari Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.