Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Page 22
22 sport Helgarblað 15. september 2017
Er hann sá
besti í sögu
Íslands?
Guðmundur Hilmarsson
Blaðamaður á Morgunblaðinu
Eiður Smári er í
mínum huga
einn besti
knattspyrnu
maður þjóðar
innar frá upp
hafi ef ekki sá
besti. Eiður og
Ásgeir Sigurvins
son eru að mínu mati
þeir bestu sem þjóðin hefur alið af
sér og Gylfi Þór Sigurðsson hefur
alla burði til að komast í þennan
hóp. Ferill Eiðs Smára var glæsi
legur jafnt með félagsliðum og
íslenska landsliðinu. Ég átti
þess kost í mínu starfi að fylgj
ast vel með Eiði á hans ferli
og tók við hann ófá viðtölin.
Hann var glæsilegur á velli og
er sá íslenski knattspyrnu
maður sem hefur afrekað
mest að mínu mati. Það
verður seint toppað hjá
íslenskum knattspyrnu
manni að verða í tvígang
Englandsmeistari og
deildarbikarmeistari með
Chelsea, þar sem hann
skoraði 54 mörk, og
vinna Spánarmeist
aratitilinn, spænska
bikarinn og sjálf
an Evrópumeist
aratitilinn með
Barcelona, þar sem
hann skoraði 19
mörk í 113 leikjum.
Freyr
Alexandersson
Landsliðsþjálfari
kvenna
Okkar kynslóð sá ekki þessa eldri, Ásgeir
Sigurvinsson og fleiri. Þeirra afrek verða
aldrei tekin af þeim en fyrir mér er Eiður
Smári sá besti, að fylgjast með honum í Chelsea og Barcelona
þar sem hann vann þessa titla í lykilhlutverkum var geggjað.
Það var svo gaman að vera í kringum hann í nýju hlutverki á EM
í fyrrasumar þar sem hann sýndi leiðtogahæfileika sína og nýtti
reynslu sína með hópnum, það var einstakt. Hann er klárlega
einn sá besti, ef ekki sá besti. Gylfi hefur verið stórkost
legur og á nóg eftir. Leyfum Gylfa að spila sinn feril og
segjum að Eiður Smári sé sá besti. Eiður var og er fyr
irmynd fyrir alla þessa stráka sem eru í landsliðinu
í dag, það má að segja að hann hafi rutt brautina í
fremstu röð. Þvílík fyrirmynd fyrir aðra knattspyrnu
menn, bæði fyrir þá sem eru í landsliðinu núna og þá
sem koma næst. Eiður Smári er goðsögn.
Egill Einarsson
Stuðningsmaður Íslands númer 1
Fyrir mér er ekki spurning að
Eiður Smári er okkar besti
knattspyrnumaður fyrr og
síðar. Ég skellti mér á minn
fyrsta leik í Premier League
á Old Trafford 2001 á móti
Chelsea. Þar vorum við rass
skelltir 03 og að sjálfsögðu
renndi Eiður inn marki í þeim
leik. Gylfi er ekkert eðlilega góð
ur og ég er mikill aðdáandi hans en Eiður er okkar
besti, útrætt, næsta mál, áfram gakk. Þó að það sé
mjög sorglegt fyrir fótboltaheiminn að Eiður sé bú
inn að setja skóna á hilluna þá er þetta frábært fyrir
„bodybuilding“samfélagið. Hann er með skrokk í
að ná langt í lyftingunum og stefni ég á að reyna
að koma honum á svið á komandi árum.
Benedikt Bóas Hinriksson
Blaðamaður á Fréttablaðinu
Ég æfði og spilaði
eitt tímabil
með Arnóri
Guðjohn
sen og
fyrir mér er hann sá besti. En
það er huglægt mat. Staðreynd
irnar segja að Eiður sé sá besti. Ferill
hans talar sínu máli. Áður en Messi og
Ronaldo komu til sögunnar og breyttu fót
boltanum var Eiður einn af þeim betri. Það er
enginn keyptur til Barcelona fyrir tilviljun. Að rífa sig tvisvar upp
úr erfiðum meiðslum og eiga mynd af sér með Meistaradeildar
bikarinn, það er erfitt að toppa það. Landsliðsferill hans er líka
nánast upp á tíu. Þannig já, ætli ég verði ekki að viðurkenna að
hann sé betri en pabbi sinn, sem var samt langbestur.
Ríkharð Óskar Guðnason
Íþróttafréttamaður á Stöð2 Sport
Fyrir mína parta er Eiður Smári besti
knattspyrnumaður Íslands frá upphafi
með fullri virðingu fyrir öðrum frá
bærum sem hafa verið og eru uppi.
Maður fékk á tilfinninguna þegar ég byrj
aði að fylgjast með honum ungur að árum
að hann ætti eftir að verða magnaður. Ég var
smá polli þegar ég mætti á ValurFH árið 1994
með föður mínum. Þar skoraði 15 ára gamall Eiður
Smári sigurmarkið. Að hafa fylgst með þessari vegferð
hans hefur verið ótrúlegt. Bolton, Chelsea, Barcelona o.s.frv.
Skipar sennilega einn af betri sóknardúettum í sögu ensku úrvalsdeildarinn
ar með dúettum á borð við Sutton og Shearer, Cole og Yorke svo einhverj
ir séu nefndir. Það hefur verið hrein unun að horfa á Eið Smára spila leikinn
og ég vona að Eiður haldi áfram að starfa við knattspyrnu. Ég get vel séð hann
fyrir mér þjálfa stórlið í framtíðinni. Ég treysti síðan á að Eiður verði kvaddur
eins og hann á skilið með leik á Laugardalsvelli fyrir pakkfullum velli og jafnvel
áhorfendameti.
Frábær ferill Eiðs
Smára á enda
E
iður Smári Guðjohnsen tilkynnti
fyrir viku að hann væri hættur
knattspyrnuiðkun eftir magnaðan feril
og frábæran árangur. Eiður átti frábæran
tíma með Chelsea og Barcelona þar sem hann
vann titla og lék í fremstu röð. Hann var svo
hluti af íslenska landsliðinu sem komst inn á
sitt fyrsta stórmót í fyrra þegar liðið náði frá
bærum árangri á Evrópumótinu í Frakklandi.
DV fékk nokkra álitsgjafa til að svara því hvort
Eiður Smári væri besti knattspyrnumaður sem
Ísland hefur átt. n
hoddi@433.is