Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Side 24
24 fólk - viðtal Helgarblað 15. september 2017
N
ichole fæddist árið 1972
og ólst upp í Suðvestur-
Michigan í Bandaríkjunum.
Hún er gift Garðari
Gunnarssyni en þau kynntust í
Boston fyrir tuttugu árum. Fyrstu
hjúskaparárin bjuggu Nichole og
Garðar í stórborginni en svo lá
leiðin til Íslands þar sem Garðar
vildi ljúka námi hér heima. Í upp-
hafi ætluðu þau aðeins að búa á
Íslandi í nokkur ár en dvölin lengd-
ist. Nichole þykir þó gott að kom-
ast til Michigan og reyna hjónin,
ásamt börnunum þeirra tveim-
ur, Tómas Jamie og Leah Karin, að
fara reglulega þangað í frí.
Upplifði fordóma
Í desembermánuði, skömmu
fyrir aldamótin 2000 flutti
Nichole til Íslands. Fyrstu
mánuðina á Íslandi skildi
hún ekkert í tungumálinu,
fann fyrir fordómum í sam-
félaginu og eina starfið sem henni
bauðst var við ræstingar á kvöldin.
Lífið á Íslandi var í upphafi ekki
auðvelt en með ákveðni og áræðni
að vopni hefur hún yfirstigið
hverja áskorunina á fætur annarri.
Nichole segir hugarfarið, að hafa
trú á sjálfum sér og því sem maður
stendur fyrir, skipta langmestu
máli þegar kemur að því að takast
á við ný tækifæri. Nichole þekkir,
frá fyrstu hendi, hvernig það er að
flytja frá heimalandinu og aðlag-
ast íslensku samfélagi. Jómfrúr-
ræða hennar á Alþingi vakti mikla
athygli en þar sagði hún, meðal
annars, að hún vonaðist til að fá
tækifæri til að greiða leið fyrir fleiri
„Við erum bara
venjulegt fólk“
Nichole Leigh Mosty er ein þeirra kvenna sem kjörnar voru á
þing í síðustu alþingiskosningum. Hún er innflytjandi frá Bandaríkjunum og
hefur lagt mikla vinnu í að greiða veginn fyrir þann mikla fjölda fólks sem
hefur kosið að gera Ísland að heimalandi sínu. Þó svo að þingmannsstarfið
sé gefandi segir Nicole það lýjandi að vinna í karlaveldi þar sem baktal og
illskeyttar gagnrýnisraddir eru daglegt brauð. Blaðamaður DV hitti Nichole
á skrifstofu hennar við Aðalstræti í vikunni þar sem rætt var um lífið á
þinginu í bland við pólitík og persónulegri mál.
Kristín Clausen
kristin@dv.is
Kvöldið sem lífið breyttist Nichole og Garðar á kosningavöku Bjartrar framtíðar 29. október 2016.