Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Side 37
Veitingastaðir 5Helgarblað 15. september 2017 KYNNINGARBLAÐ
Frábært útisvæði
Stórkostlegt útsýni og
sælkeramatur á sanngjörnu verði
Elva Hjörleifsdóttir
SKÝ Restaurant & Bar er staðsettur á 8. hæð CenterHotels
Arnarhvols við Ingólfsstræti.
Á veitingastaðnum er stór
kostlegt útsýni yfir Faxaflóa,
Esjuna, Hörpu og miðbæ
Reykjavíkur. Útsýnið eitt gerir
máltíð á SKÝ að einstakri
upplifun.
„Við höfum verið að taka
staðinn í gegn síðasta árið
og betrumbæta, meðal
annars með því að innrétta
litla og kósý setustofu sem
snýr í vestur með útsýni í átt
að Hallgrímskirkju. Þarna
fá gestir þá tilfinningu að
þeir sitji heima í stofu,“ segir
Elva Hjörleifsdótt
ir, forstöðumaður
veitingasviðs hjá
CenterHotels.
Að sögn Elvu er
matseðillinn á SKÝ rómaður
fyrir bæði gæði og sann
gjarnt verð: „Matseðillinn
okkar er á mjög samkeppn
ishæfu verði. Sem dæmi
erum við með humarsalat
sem hefur slegið í gegn en
það kostar aðeins 2.850
krónur. Við bjóðum ávallt upp
á ferskasta fisk dagsins og
við leggjum mikla áherslu á
úrvals hráefni. Þá bjóðum
einnig upp á nokkra græn
metisrétti þannig að allir
ættu að fá eitthvað við sitt
hæfi."
SKÝ er tilvalið fyrir litla og
stóra hópa að koma saman
í mat og drykk en staðurinn
getur tekið á móti allt að 80
manns í einu. „Hópamat
seðillinn er samsettur úr fjöl
breyttum seðli þar sem boðið
er upp á sex mismunandi
þriggja rétta seðla sem hægt
er að velja um. Hópaseðillinn
miðast við tíu manns sem
þarf að panta fyrirfram. "Við
hvetjum auðvitað alla til að
bóka tímanlega til að tryggja
að laust sé fyrir hópinn.“
Fjallastélin bera nöfn fjall-
anna í kring
Sem fyrr segir er útsýn
ið á SKÝ með ólíkindum og
framkallar hjá flestum hina
svokölluðu „vá“ tilfinningu.
Fjöllin sem umlykja borgina
sjást vel út um gluggana en
sérlagaðir kokteilar, Fjalla
stélin, bera nöfn þeirra. Hér
er uppskrift að einu vin
sælasta fjallastélinu:
Geirmundartindur 6 cl
Bulldog gin 3 cl Basil – lime
síróp Hrist saman og skreytt
með basil laufi
Þess má geta að Geir
mundartindur er Fjallastél
mánaðarins á SKÝ í septem
ber. Fjallastél mánaðarins
eru ávallt á tilboði á aðeins
1.700 krónur.
Happy Hour er alla daga
frá kl. 16 til 18. Þá kostar
bjór af krana 600 krónur og
vínglas er á 900 krónur. SKÝ
hentar afskaplega vel fyrir
fólk sem er að fara á tónleika
eða leikhús enda staðsettur
mitt á milli Hörpu og Þjóð
leikhússins. Stefnt er að því
að bjóða upp á sérstakan
leikhúsmatseðil í vetur en
nú þegar getur fólk sest að
snæðingi á staðnum fyrir
sýningar í nágrenninu. Barinn
á SKÝ er opinn til 12 og því er
líka tilvalið að kíkja inn eftir
sýningar og fá sér drykk.
Eldhúsið er hins vegar opið
til 22 á kvöldin. „Það er líka
gaman að njóta útsýnisins
eftir að rökkva tekur því ljósin
í Hörpu eru einstaklega falleg
á kvöldin,“ segir Elva. Á falleg
um vetrarkvöldum læðast oft
norðurljósin fram líka.
SKÝ Restaurant & Bar er
opinn alla daga frá kl. 11:30 til
miðnættis.
Síminn er 595-8545 og
heimasíða er
www.skyrestaurant.is.
SKÝ REStAuRAnt & BAR