Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Side 38
6 Veitingastaðir Helgarblað 15. september 2017KYNNINGARBLAÐ
Reynsla og tenging við pítsugerð í 30 ár eru á meðal þess sem
einkennir Eldofninn. Ellert
og Eva voru viðriðin stofnun
Eldsmiðjunnar árið 1986.
Ég fæddist árið 1987 og þá
hoppaði pabbi bara beint á
vakt af fæðingardeildinni,“
segir Evert Austmann Ell-
ertsson, bakari hjá Eldofn-
inum í Grímsbæ, fjölskyldu-
fyrirtæki þar sem foreldrar,
synir og annað frábært
starfsfólk leggur alúð sína
í að búa til framúrskarandi
pítsur og veita góða þjón-
ustu.
Á Eldofninum eru ein-
göngu í boði 12” pítsur sem
bakaðar eru í eldofni og er
eingöngu notaður eldiviður
við baksturinn.
Árið 2008, ári áður en
Eldofninn var opnaður,
fóru hjónin Ellert Austmann
Ingimundarson og Eva
Karlsdóttir til Ítalíu í leit að
hentugum ofni. Þau komu
heim með eldofn með snún-
ingsplötu, sem tryggir í senn
frábæran bakstur, ósvikið
viðarofnsbragð og hraða
þjónustu.
„Eftir að við setjum píts-
una inn í ofninn þá ýtum við
bara á einn takka, pítsan
byrjar að snúast og bakast
jafnt og þétt á tveimur mín-
útum,“ segir Evert.
Snúningsplatan í ofninum
skapar sjálfvirka alúð við
baksturinn, hægt er að af-
greiða pítsurnar mjög hratt
en þær eru þó afar jafnt og
vel bakaðar.
„Við getum sett inn átta
pítsur í einu en þegar jafn
mikið er að gera eins og er
núorðið þá þarf að vera með
mann á ofninum til að fylgj-
ast með.“
Allt eldað frá grunni
„Við búum til allt frá grunni,
sósurnar okkar eru án að-
fenginna aukaefna og í hana
eru notaðir plómutómatar;
það sama má segja um hvít-
lauksolíuna og Eldofnsolíuna
okkar sem er sterk chili-olía.
Rauðlaukinn skerum við nið-
ur hérna og kryddið sem fer
í sósuna mallar í potti,“ segir
Evert.
En hvaða pítsur eru
vinsælastar? „Vinsælustu
pítsurnar eru yfirleitt þær
sem eru kenndar við okkur
bakarana og við höfum sett
saman eftir okkar smekk.
Sigga Spes pítsan er til
dæmis búin að vera vin-
sælasta pítsan hér í 3–4 ár
en á henni eru sveppir, skorið
pepperóní, ananas, svartar
ólífur, jalapeno, hvítlauk-
ur, rjómaostur og óreganó.
Þessi pítsa slær í gegn hjá
öllum og er sívinsæl.“
Opin ítölsk stemning
í matsalnum
Veitingasalurinn á Eldofnin-
um er bæði huggulegur og
skemmtilegur. Allt er galopið
svo viðskiptavinir sjá bakar-
ana að störfum og að þeyta
pítsum upp í loftið. „Krakk-
arnir eru mjög spenntir
fyrir þessu, til dæmis að sjá
pítsurnar snúast í ofninum,“
segir Evert og honum líkar
það vel að matargestir sjái
fjölskylduna að störfum.
Tíu prósenta afsláttur er
veittur af mat sem er sóttur
og einnig eru alltaf í gangi
hádegistilboð virka daga frá
11.30 til 14.00 en þá er stað-
urinn yfirleitt þéttsetinn.
Matseðil og upplýs-
ingar um tilboð má finna á
heimasíðunni, eldofninn.is.
Opnunartími
Eldofninn er opinn mánu-
daga til fimmtudaga frá kl.
11.30 til 21.00, föstudaga til kl.
22.00.
Á laugardögum er opið frá
kl. 17 til 22 og á sunnudögum
frá 17 til 21.
Á mánudögum er lokað –
þá hleður Eldofnsfjölskyldan
rafhlöðurnar fyrir hina sex
daga vikunnar.
Pítsurnar bakaðar í
eldofni og opin ítölsk
stemning í salnum
Myndir Sigtryggur Ari