Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Page 38
6 Veitingastaðir Helgarblað 15. september 2017KYNNINGARBLAÐ Reynsla og tenging við pítsugerð í 30 ár eru á meðal þess sem einkennir Eldofninn. Ellert og Eva voru viðriðin stofnun Eldsmiðjunnar árið 1986. Ég fæddist árið 1987 og þá hoppaði pabbi bara beint á vakt af fæðingardeildinni,“ segir Evert Austmann Ell- ertsson, bakari hjá Eldofn- inum í Grímsbæ, fjölskyldu- fyrirtæki þar sem foreldrar, synir og annað frábært starfsfólk leggur alúð sína í að búa til framúrskarandi pítsur og veita góða þjón- ustu. Á Eldofninum eru ein- göngu í boði 12” pítsur sem bakaðar eru í eldofni og er eingöngu notaður eldiviður við baksturinn. Árið 2008, ári áður en Eldofninn var opnaður, fóru hjónin Ellert Austmann Ingimundarson og Eva Karlsdóttir til Ítalíu í leit að hentugum ofni. Þau komu heim með eldofn með snún- ingsplötu, sem tryggir í senn frábæran bakstur, ósvikið viðarofnsbragð og hraða þjónustu. „Eftir að við setjum píts- una inn í ofninn þá ýtum við bara á einn takka, pítsan byrjar að snúast og bakast jafnt og þétt á tveimur mín- útum,“ segir Evert. Snúningsplatan í ofninum skapar sjálfvirka alúð við baksturinn, hægt er að af- greiða pítsurnar mjög hratt en þær eru þó afar jafnt og vel bakaðar. „Við getum sett inn átta pítsur í einu en þegar jafn mikið er að gera eins og er núorðið þá þarf að vera með mann á ofninum til að fylgj- ast með.“ Allt eldað frá grunni „Við búum til allt frá grunni, sósurnar okkar eru án að- fenginna aukaefna og í hana eru notaðir plómutómatar; það sama má segja um hvít- lauksolíuna og Eldofnsolíuna okkar sem er sterk chili-olía. Rauðlaukinn skerum við nið- ur hérna og kryddið sem fer í sósuna mallar í potti,“ segir Evert. En hvaða pítsur eru vinsælastar? „Vinsælustu pítsurnar eru yfirleitt þær sem eru kenndar við okkur bakarana og við höfum sett saman eftir okkar smekk. Sigga Spes pítsan er til dæmis búin að vera vin- sælasta pítsan hér í 3–4 ár en á henni eru sveppir, skorið pepperóní, ananas, svartar ólífur, jalapeno, hvítlauk- ur, rjómaostur og óreganó. Þessi pítsa slær í gegn hjá öllum og er sívinsæl.“ Opin ítölsk stemning í matsalnum Veitingasalurinn á Eldofnin- um er bæði huggulegur og skemmtilegur. Allt er galopið svo viðskiptavinir sjá bakar- ana að störfum og að þeyta pítsum upp í loftið. „Krakk- arnir eru mjög spenntir fyrir þessu, til dæmis að sjá pítsurnar snúast í ofninum,“ segir Evert og honum líkar það vel að matargestir sjái fjölskylduna að störfum. Tíu prósenta afsláttur er veittur af mat sem er sóttur og einnig eru alltaf í gangi hádegistilboð virka daga frá 11.30 til 14.00 en þá er stað- urinn yfirleitt þéttsetinn. Matseðil og upplýs- ingar um tilboð má finna á heimasíðunni, eldofninn.is. Opnunartími Eldofninn er opinn mánu- daga til fimmtudaga frá kl. 11.30 til 21.00, föstudaga til kl. 22.00. Á laugardögum er opið frá kl. 17 til 22 og á sunnudögum frá 17 til 21. Á mánudögum er lokað – þá hleður Eldofnsfjölskyldan rafhlöðurnar fyrir hina sex daga vikunnar. Pítsurnar bakaðar í eldofni og opin ítölsk stemning í salnum Myndir Sigtryggur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.