Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Blaðsíða 41
Tómasi. Hann byrjaði að grínast
með að vera með atriði en upp úr
gríninu þróaðist svo bara þrælgóð
og mjög erótísk túlkun á uppvaski,“
útskýrir Margrét. „Hann sýndi
mér atriðið í gær og ég bæði grét
og gargaði úr hlátri og lak niður í
gólf, svo heilluð var ég,“ segir hún
flissandi og bætir við að undanfarn-
ar vikur hafi þau unnið í því að gera
fullkomna eftirlíkingu af uppþvotta-
legi. „Lokaniðurstaðan var að blanda
matarlit út í barnaolíu, af því hann
ætlar auðvitað að hella þessu yfir
sig í atriðinu,“ segir hún hlæjandi
og skýtur því inn að Tómas hafi líka
tekið sér fullkomið listamannsnafn.
„Hann kallast Kjöthöllin!“
Myndavélar í símum til vandræða
Stendur þá kannski til að gera
Tómas út sem skemmtikraft í
gæsapartíum? Margréti rekur aðeins
í rogastans. „Neeeeeeeeeiii, ég veit
það nú ekki! Það eru allir með
myndavélar í símunum sínum og
það gerir þetta svolítið erfitt. Myndir
geta lekið út og allir fara að spyrja
hvort það hafi verið pantaður stripp-
ari í gæsapartíið. Stripp er auðvitað
ólöglegt á Íslandi! Þetta gæti komið
öllum í bobba, bæði skemmtikraft-
inum og fólkinu í partíinu.“
Fyrst Hilmir Snær má vera á
rassinum þá megum við það líka
En hafið þið fengið lögfræðing til
að skissa upp hvernig þið haldið
ykkur innan lagarammans? „Sko,
við sýnum auðvitað í Þjóðleik-
húsinu og ef Hilmir Snær má
vera á rassinum á sviðinu uppi
þá megum við vera á rassinum í
kjallaranum. Er það ekki?! En ég
veit ekki, kannski verður látið á
þetta reyna. Ég held samt að fólk
sem er viðkvæmt fyrir nekt og
svona gríni ætti ekki að vera í vafa
um hvers eðlis sýningarnar okkar
eru. Þá passar það sig bara á að
koma ekki á þær,“ segir hún og
bendir á að þegar rýnt hafi verið
í miðasöluna hafi komið í ljós
að konur séu yfir sjötíu prósent
þeirra sem hafa mætt á sýningar
hingað til. „Konum virðist finnast
svo hressandi að sjá kotasælulæri
á sviði og að það skipti bara engu
máli í stóra samhenginu hvernig
við lítum út.“
Líkaminn minn er til að ég geti notið hans
Spurð að því hvernig Tómas taki
í það að kærastan hans sé ber að
ofan að skemmta segir hún það líka
algjört aukaatriði. „Hann á ekki
líkamann minn og ef honum þætti
þetta erfitt þá hefði hann ekki reynt
við mig til að byrja með held ég.
Þótt hann sé kærastinn minn þá ræð
ég alfarið yfir mínum líkama og þar
með töldum mínum geirvörtum.
Líkaminn minn er ekki eingöngu
gerður svo að hann geti notið hans.
Líkaminn minn er fyrst og fremst
gerður svo að ég geti notið hans,“
segir hún staðföst. „Það eina sem er
erfitt er að hann þarf að fá svolítið
oft frí í vinnunni til að koma með
mér á sýningarferðalög, en annars
held ég að hann samgleðjist mér að
ég sé ekki með komplexa.“
Ráðlegast að mæta með
vatnsheldan maskara
Kjöthöllin Tómas verður ekki eini
karlmaðurinn sem tekur þátt í
sýningunni um helgina með sínum
„boylesque“ brögðum því hinn
suðræni og seiðandi Wilfredo ætlar
einnig að stíga þar á svið. Margrét
segir manninn svo fyndinn að það
sé ráðlegast að mæta með vasaklút
og vatnsheldan maskara á sýn-
inguna. „Wilfredo er týpan sem
margir þekkja af hótelbörunum
á Benidorm. Var einu sinni mjög
sætur en er það alls ekki lengur.
Honum finnst hann hins vegar
rosalega heillandi og hann heldur
að hann sé alveg æðislegur – en
hann er það bara alls ekki. Margir
hafa lýst honum sem karlmanni
í dragi karlmanns. Eiginlega
svona ofur ýktur karl. Þegar ég sá
Wilfredo í fyrsta sinn fannst mér
hann það fyndnasta sem ég hafði
séð á ævinni en þegar hann svo fór
úr gervinu þá leyndist þar undir
einn fallegasti og dagfarsprúðasti
Breti sem ég hef kynnst,“ segir
Margrét og bætir við að Wilfredo
verði jafnframt kynnir á kvöldinu.
„Svo bjóðum við líka upp á kokk-
teilahristur með frjálsri aðferð,
kynlífstækja-húll og jesúgrín, af því
það má núna,“ segir hin fjölhæfa og
frakka Margrét Erla að lokum.
gott að fara yfir strikið„Það eru allir með myndavélar í símun-
um sínum og það gerir þetta svolítið
erfitt. Myndir geta lekið út og allir fara að
spyrja hvort það hafi verið pantaður strippari
í gæsapartíið. Stripp er auðvitað ólöglegt
á Íslandi! Þetta gæti komið ölllum í bobba,
bæði skemmtikraftinum og fólkinu í partíinu.
Tekur þáTT í
sýningunni
Kærasti
Margrétar,
körfubolta-
kappinn Tómas
Steindórsson, er
búinn að semja
sitt eigið búrlesk
atriði sem hann
ætlar að sýna
um helgina.
Hann notar
listamannsnafnið
Kjöthöllin og
ætlar að tjá
erótísk tilbrigði
við uppvask.