Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Qupperneq 46

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Qupperneq 46
HEITT Vondar píur „Slæmar stelpur gera mig svo rousey eins og Ronda.“ Kringlóttir speglar Eitt eftirsóknarverðasta stofustáss ársins 2017. Costco Af því við elskum að kaupa átján brúsa af sjampói og tuttugu tannkremstúbur í einni ferð. KALT Góðar píur Þær eru bara komnar úr tísku. Love og Home stafirnir Af því að nú viljum við frekar horfa í kringlóttan spegil. Kostur Til hvers að kaupa bara einn sjampóbrúsa þegar þú getur keypt átján í einu? Um helgina er ég í fríi frá spilamennskunni svo ég ætla að gera eitthvað rosalega skemmtilegt með kon- unni minni. Það gerist nefnilega varla að ég eigi frí um helgar af því að ég er alltaf að spila einhvers staðar. Þegar svo sjaldan vill til þá líður mér eins og krakka sem er að sjá fyrsta snjó vetrarins. Ég er svo spenntur að ég veit bara varla hvernig ég á að bregðast við því,“ segir söngfuglinn knái frá Færeyjum. „Ég er samt auðvitað með einhverjar hugmyndir. Á laugar- daginn förum við kannski og tökum þátt í fjöldasöng á Græna herberginu sem Guðrún Árný ætlar að stjórna af sinni alkunni snilld. Þetta „sing-along“ hefur slegið í gegn frá því við byrjuðum með þetta á Græna herberginu. Það er næstum því alltaf húsfyllir svo greinilegt er að þetta er eitt- hvað sem fólk hefur þörf fyrir. Ís- lendingar elska auðvitað að syngja og þá sérstaklega eftir að hafa fengið sér einn bjór. Færeyingar eru auðvitað líka svona söngelskir en við syngjum samt miklu oftar og meira en Íslendingar. Þegar ég var að alast upp í Færeyjum þá enduðu allar veislur með því að einhver greip í gítar og fólk fór að syngja saman. Þetta gerist auðvitað af sjálfu sér. Þegar maður kemur frá svona lítilli eyju þá er svo ferlega lítið framboð af skemmtun. Ef þú ætlar að hafa það gaman þá þarftu eiginlega að sjá til þess sjálfur að það verði gaman hjá þér. Þá er svo einfalt að grípa í gítarinn. Ég sakna þessa svolítið hér á Íslandi. Fólk mætti syngja meira saman en ætli þetta stafi ekki af því að hér í Reykjavík býr fólk í svo miklu návígi við hvert annað. Við þurfum alltaf að passa upp á að vera ekki með læti og trufla ekki nágrannann, sem er samt auðvitað bara eðlilegasta mál,“ segir Jógvan og bætir við að líklegast verði sunnudagurinn rólegri. „Kannski að ég bjóði Hrafnhildi bara eitthvert í bröns.“ Tónlistarmaðurinn Jógvan Hansen á, aldrei þessu vant, frí um helgina. Kannski ætlar hann að syngja sig hásan með frúnni í Græna herberginu og bjóða henni svo í bröns á sunnudaginn. The BooThBy: Áfeng en eleganT upplifun Helgarkokteillinn er í boði Birtu William T. „Cocktail Bill“ Boothby var hann kallaður, fornfrægi barþjónninn sem gerði kokteilgarðinn frægan á Palace-hótelinu í San Fransisco snemma á síðustu öld. Þessi flinki „blöndungur“ (má ekki kalla barþjóna það?) bjó meðal annars til hinn heimsfræga drykk Manhattan og gaf út eftirsótta bók um blöndun kokteila, bók sem er svo gott sem ófáanleg í dag. Í þessari útfærslu af Manhattan bætum við hins vegar smávegis af ísköldu kampavíni eða freyðivíni út í til að skapa einkar áfenga, en jafnframt elegant upplifun fyrir bragðlaukana. INNIHALD n 1,5 búrbónviskí n 1,5 sætur vermút n tvær skvettur af Angostura bitter n klaki n 30 ml kampavín eða freyðivín, kalt n Appelsínusneið eða börkur AÐFERÐ Byrjaðu á að kæla kampavínsglösin. Hristu saman búrbón, vermút og bitter í kokteilhristara sem er hálffylltur með klaka. Hristu þar til hann hélast að utanverðu. Helltu blöndunni í kældu kampavínsglösin, toppaðu með kampa eða freyðivíni og skreyttu með appelsínu. Svo er bara að njóta, í góðu hófi. Hvað ætlarðu að gera um helgina? Loksins á Jógvan helgarfrí
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.