Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Side 52
28 sakamál Helgarblað 15. september 2017
Þ
ann 4. júní, 1961, voru
rannsóknarlögreglu-
menn í Sydney í Ástral-
íu sendir í almennings-
baðhús þar í borg. Þar á milli
búningsskýla hafði fundist illa
útleikið lík af karlmanni. Um
var að ræða Alfred Greenfield
og hafði hann verið stunginn
30 sinnum og kynfæri hans fjar-
lægð.
Þar sem baðhúsið var þekkt
sem samkomustaður samkyn-
hneigðra manna grunaði lög-
regluna að um hatursglæp væri
að ræða. Sá grunur fékkst stað-
festur þegar lík karlmanns,
Williams Cobbin, fannst í Moor-
garði sem einnig var vinsæll
stefnumótastaður samkyn-
hneigðra karlmanna. Hafði
Cobbin verið stunginn oftar en
þrjátíu sinnum og kynfæri hans
skorin af.
Morðinginn lýkur verkinu
Þann 31. mars, 1962, var maður
nokkur í göngutúr í Darlinghurst
ásamt eiginkonu sinni og ung-
barni. Á vegi fjölskyldunnar var
særður karlmaður, Frank McLe-
an, sem fossblæddi.
Fjölskyldan fór að finna lög-
regluna og þegar hana bar að
var ljóst að eitthvað hafði gerst í
millitíðinni. McLean hafði verið
dreginn lengra upp göngustíg-
inn, hlotið fleiri hnífsstungur
auk þess sem brækurnar höfðu
verið dregnar niður og kynfæri
hans skorin af.
Talið var líklegt að
morðinginn hefði heyrt til fjöl-
skyldunnar og falið sig, en snúið
síðan aftur og lokið verki sínu.
Ferlegur fnykur vekur athygli
Síðar fékk lögreglan tilkynningu
um ferlegan fnyk sem lagði frá
lítilli verslun í Burwood í Nýju
Suður-Wales. Eiganda verslun-
arinnar var hvergi að finna svo
lögreglan braust inn. Til að byrja
með gátu laganna verðir ekki
fundið uppruna stybbunnar, en
þegar þeir rifu upp nokkur gólf-
borð leystist gátan.
Undir gólfinu var hálfnakið
lík manns, svo rotið að ekki var
hægt að bera kennsl á það, en
lögreglan taldi sig hafa fund-
ið líkamsleifar eiganda verslun-
arinnar, Williams MacDonald.
Fjöldi stungusára var á líkinu og
kynfærin höfðu verið skorin af.
Minningarathöfn var síð-
ar haldin fyrir MacDonald og
dánartilkynning sett í blöðin.
Líkið gangandi
Síðar átti eftir að koma í ljós að
ekki voru öll kurl komin til graf-
ar. Kunningi MacDonalds sá
hann á förnum vegi þó nokkru
síðar og furðaði sig á hve mikið
líf var í látnum manninum.
Lögreglan komst svo að því að
líkið undan gólfborðunum var af
Patrick James Hackett og gerði,
eðli málsins samkvæmt, ráð fyrir
að MacDonald væri morðinginn
og auglýsti eftir honum. Tve-
ir menn sáu hann á lestarstöð
í Melbourne og skömmu síð-
ar hafði lögreglan hendur í hári
hans.
MacDonald játaði á sig áður-
nefnd morð, en í kjölfar þess síð-
asta hafði hann lagt land undir
fót af ótta við að lögreglan væri
komin á sporið.
Einnig játaði MacDonald á
sig morð sem framið hafði verið
í Brisbane 1961.
Löngun til að myrða
MacDonald fæddist í Liverpool
á Englandi árið 1924 og hafði
verið nauðgað þegar hann sinnti
þar herskyldu. Að sögn leið hon-
um í fyrstu illa vegna þess en
þegar frá leið komst hann að því
að í honum blundaði samkyn-
hneigð. Hann flutti til Kanada
árið 1949 og síðan til Ástral-
íu árið 1955. Hann settist að í
Sydney og varð fljótt vel þekkt-
ur á helstu samkomustöðum
samkynhneigðra karlmanna þar.
Að sögn MacDonalds var ástæða
morðanna einföld; löngun til að
myrða. Hann sýndi enga iðr-
un við réttarhöldin og fór ekki
í launkofa með að hann myndi
taka upp fyrri iðju ef hann hlyti
frelsi á ný.
Hann afplánar nú lífstíðar-
dóm. n
„Talið var
líklegt að
morðinginn hefði
heyrt til fjöl-
skyldunnar og
falið sig, en snúið
síðan aftur og lok-
ið verki sínu.
IllvIrkI í
Ástralíu
n Myrti fimm karlmenn n Beitti hnífi óspart n Fórnarlömbin samkynhneigð
Í höndum lögreglunnar
Lengi vel var MacDonald
talinn látinn.