Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Qupperneq 52

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Qupperneq 52
28 sakamál Helgarblað 15. september 2017 Þ ann 4. júní, 1961, voru rannsóknarlögreglu- menn í Sydney í Ástral- íu sendir í almennings- baðhús þar í borg. Þar á milli búningsskýla hafði fundist illa útleikið lík af karlmanni. Um var að ræða Alfred Greenfield og hafði hann verið stunginn 30 sinnum og kynfæri hans fjar- lægð. Þar sem baðhúsið var þekkt sem samkomustaður samkyn- hneigðra manna grunaði lög- regluna að um hatursglæp væri að ræða. Sá grunur fékkst stað- festur þegar lík karlmanns, Williams Cobbin, fannst í Moor- garði sem einnig var vinsæll stefnumótastaður samkyn- hneigðra karlmanna. Hafði Cobbin verið stunginn oftar en þrjátíu sinnum og kynfæri hans skorin af. Morðinginn lýkur verkinu Þann 31. mars, 1962, var maður nokkur í göngutúr í Darlinghurst ásamt eiginkonu sinni og ung- barni. Á vegi fjölskyldunnar var særður karlmaður, Frank McLe- an, sem fossblæddi. Fjölskyldan fór að finna lög- regluna og þegar hana bar að var ljóst að eitthvað hafði gerst í millitíðinni. McLean hafði verið dreginn lengra upp göngustíg- inn, hlotið fleiri hnífsstungur auk þess sem brækurnar höfðu verið dregnar niður og kynfæri hans skorin af. Talið var líklegt að morðinginn hefði heyrt til fjöl- skyldunnar og falið sig, en snúið síðan aftur og lokið verki sínu. Ferlegur fnykur vekur athygli Síðar fékk lögreglan tilkynningu um ferlegan fnyk sem lagði frá lítilli verslun í Burwood í Nýju Suður-Wales. Eiganda verslun- arinnar var hvergi að finna svo lögreglan braust inn. Til að byrja með gátu laganna verðir ekki fundið uppruna stybbunnar, en þegar þeir rifu upp nokkur gólf- borð leystist gátan. Undir gólfinu var hálfnakið lík manns, svo rotið að ekki var hægt að bera kennsl á það, en lögreglan taldi sig hafa fund- ið líkamsleifar eiganda verslun- arinnar, Williams MacDonald. Fjöldi stungusára var á líkinu og kynfærin höfðu verið skorin af. Minningarathöfn var síð- ar haldin fyrir MacDonald og dánartilkynning sett í blöðin. Líkið gangandi Síðar átti eftir að koma í ljós að ekki voru öll kurl komin til graf- ar. Kunningi MacDonalds sá hann á förnum vegi þó nokkru síðar og furðaði sig á hve mikið líf var í látnum manninum. Lögreglan komst svo að því að líkið undan gólfborðunum var af Patrick James Hackett og gerði, eðli málsins samkvæmt, ráð fyrir að MacDonald væri morðinginn og auglýsti eftir honum. Tve- ir menn sáu hann á lestarstöð í Melbourne og skömmu síð- ar hafði lögreglan hendur í hári hans. MacDonald játaði á sig áður- nefnd morð, en í kjölfar þess síð- asta hafði hann lagt land undir fót af ótta við að lögreglan væri komin á sporið. Einnig játaði MacDonald á sig morð sem framið hafði verið í Brisbane 1961. Löngun til að myrða MacDonald fæddist í Liverpool á Englandi árið 1924 og hafði verið nauðgað þegar hann sinnti þar herskyldu. Að sögn leið hon- um í fyrstu illa vegna þess en þegar frá leið komst hann að því að í honum blundaði samkyn- hneigð. Hann flutti til Kanada árið 1949 og síðan til Ástral- íu árið 1955. Hann settist að í Sydney og varð fljótt vel þekkt- ur á helstu samkomustöðum samkynhneigðra karlmanna þar. Að sögn MacDonalds var ástæða morðanna einföld; löngun til að myrða. Hann sýndi enga iðr- un við réttarhöldin og fór ekki í launkofa með að hann myndi taka upp fyrri iðju ef hann hlyti frelsi á ný. Hann afplánar nú lífstíðar- dóm. n „Talið var líklegt að morðinginn hefði heyrt til fjöl- skyldunnar og falið sig, en snúið síðan aftur og lok- ið verki sínu. IllvIrkI í Ástralíu n Myrti fimm karlmenn n Beitti hnífi óspart n Fórnarlömbin samkynhneigð Í höndum lögreglunnar Lengi vel var MacDonald talinn látinn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.