Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Blaðsíða 58
34 menning Helgarblað 15. september 2017
10 merkilegustu leikjatölvurnar
Magnavox Odyssey (1972)
Odyssey var fyrsta sjónvarpsleikja-
tölvan sem kom á markað,
hönnuð af þýska verk-
fræðingnum Ralph
Baer. Tölvan sýndi
þrjá ferhyrninga
sem hægt
var að stýra með tveimur fjar-
stýringum. Með tölvunni fylgdu útprentaðir skermar sem
lagðir voru yfir sjónvarpsskjáinn til að spila eina leik tölvunnar á mis-
munandi hátt. Vinsælasta útgáfan af leiknum var borðtennis sem
varð fyrirmyndin að einum vinsælasta spilakassaleik allra tíma, Pong.
Ólíkt Pong, þá var Odyssey algerlega hljóðlaus.
Þekktustu leikir: Aðeins þessi eini
Atari 2600 (1977)
Atari 2600 var fyrsta leikjatölvan sem
sló í gegn en hún seldist í 30 millj-
ónum eintaka á árunum 1977–
1982. Á þessum tíma fór fólk
að átta sig á möguleik-
um sjónvarpsleikjatölva
og allir vildu fá að vera
með. Atari varð eitt heitasta
fyrirtæki Bandaríkjanna og alræmt fyrir stans-
laus veisluhöld. Velgengni tölvunnar má að einhverju leyti skýra með
hugbúnaðinum sem var langtum betri en annarra. Tölvan var einnig
sú fyrsta sem geymdi leikina í hylkjum sem varð síðan venjan í 20 ár.
Atari varð fyrir barðinu á tölvuleikjahruninu árið 1983 og náði sér
aldrei á strik á ný.
Þekktustu leikir: Space Invaders, Asteroids, Pitfall
NES (1985)
Árið 1983 hrundi tölvuleikjamark-
aðurinn, meðal annars vegna
offramboðs á illa hönnuðum
leikjum og vélum. Flestir höfðu
afskrifað leikjatölvuformið
þegar NES frá Nintendo kom
á markað árið 1985. Hin
8 bita NES-tölva var ein-
föld og ódýr í framleiðslu
en skartaði einstaklega
vönduðum leikjum, sérstaklega þeim
sem fyrirtækið hannaði sjálft. Þá voru hinar flötu og meðfærilegu
fjarstýringar nýlunda. Alls seldust um 62 milljón eintök sem var það
langmesta á þessum tíma og segja má að sjónvarpsleikjatölvan hafi
öðlast nýtt líf. NES var endurhönnuð árið 2016 og kom á markað í
smækkaðri mynd með innbyggðum leikjum.
Þekktustu leikir: Super Mario Bros, The Legend of Zelda, Punch-Out
Sega Megadrive/Genesis (1989)
Á níunda áratugnum hafði Nintendo
yfirburðastöðu á leikjamarkað-
inum. En stöðu Nintendo var
ógnað þegar Sega setti 16 bita
Mega drive-tölvuna á markað.
Megadrive keppti við Super Nin-
tendo-vélina sem kom á markað ári seinna
og var bæði öflugri og hraðari. Sega var auglýst
sem „fullorðins“ á meðan framleiðandi Nintendo ein-
blíndi á yngri kynslóðina. Þegar leikurinn Mortal Kombat
kom út árið 1992 stærðu talsmenn Sega sig af því að þeirra leik-
ur innihéldi rautt blóð á meðan Nintendo-leikurinn væri blóðlaus.
Sölutölur Sega fóru minnkandi út tíunda áratuginn uns framleiðslu
var hætt um aldamótin. Þeir framleiða þó enn þá leiki.
Þekktustu leikir: Mortal Kombat II, Sonic the Hedgehog,
Street Fighter II
Neo Geo (1990)
Neo Geo frá SNK var sannkölluð munaðarvara. Hún var þrefalt dýrari en leikjatölvurnar frá NES og Sega og leikirnir sömuleiðis. En hún var einnig
mun öflugri og hafði möguleika sem hinar höfðu ekki. Fyrirtækið gaf einnig út spilakassa með nákvæmlega sömu leikjum og í Neo Geo. Notendur
gátu því flutt leikina sína á milli spilakassa og leikjatölvu í hylkjum sem hýstu marga leiki í einu. Tölvan var mjög öflug og leikirnir litu mjög vel út
en kostnaðurinn var of hár fyrir neytendur. Neo Geo naut þó töluverðra vinsælda í Japan þar sem spilakassamenningin er ákaflega rík.
Þekktustu leikir: Samurai Showdown, Fatal Fury, Ikari Warriors
Playstation 1 (1994)
Í upphafi tíunda áratugarins voru geisladiskarnir að taka yfir sem
ráðandi geymsluform. Öllum var ljóst að þetta væri fram-
tíðin í leikjatölvum og Nintendo reið á vaðið. Samið var
við raftækjarisann Sony um að framleiða nýja leikja-
tölvu, Nintendo Playstation, sem átti að nota bæði
hylki og geisladiska. En Nintendo dró sig út úr samstarf-
inu vegna þess að það gat ekki unað Sony að fá allan arðinn af
diskasölunni. Þá framleiddi Sony sína eigin Playstation-tölvu sem
kom eins og stormsveipur inn á markaðinn og skaut keppinautum sínum
ref fyrir rass. Helstu ástæðurnar voru mikið geymslupláss geisladiskanna,
öflugir þrívíddarleikir, þægileg fjarstýring og frábær auglýsingaherferð.
Þekktustu leikir: Resident Evil, Metal Gear Solid, Gran Turismo 2
Playstation 2 (2000)
Önnur tölva raftækjarisans Sony kom eins og sprengja inn
á markaðinn um aldamótin og stakk samkeppnisaðilana
gjörsamlega af. Um 155 milljónir eintaka seldust, það
langmesta í sögunni, og 1,5 milljarðar leikja. PS2 var
framleidd samfellt í 13 ár og löngu eftir að PS3 kom
út. Hægt var að spila leiki af fyrstu Play station-
vélinni á PS2 og einnig var hægt að nota hana sem
DVD-spilara. Sony var í góðu sambandi við leikja-
framleiðendur sem kepptust við að gera bestu leikina.
Þá framleiddi Sony einnig mjög góða leiki.
Þekktustu leikir: Grand Theft Auto III, Guitar Hero,
Resident Evil 4
Xbox 360 (2001)
Margir urðu skelkaðir þegar fyrsta Xbox-tölvan frá Microsoft kom á markaðinn árið
2001, kynnt af sjálfum Bill Gates, en sú tölva seldist ekki mikið utan Bandaríkjanna.
Önnur leikjatölva tæknirisans, Xbox 360 seldist hins vegar margfalt betur. Ástæðan fyr-
ir velgengni 360 var netkerfið sem hún tengdist, Xbox Live. Live bauð ekki aðeins upp á
netspilun heldur var einnig hægt að spjalla, spila tónlist og kvikmyndir og fleira. Xbox
hefur aldrei náð Playstation að vinsældum en 360 gerði að verkum að Microsoft festi sig
í sessi á leikjatölvumarkaðinum og keppir nú við Sony um öflugasta hugbúnaðinn.
Þekktustu leikir: Gears of War, Halo 3, Grand Theft Auto IV
Nintendo Wii (2006)
Í upphafi 21. aldarinnar virtist sem Nintendo væri að dragast aft-
ur úr. Þeir höfðu enn þá yfirburðastöðu í handtölvugeiranum en gátu
ekki keppt við risana Sony og Microsoft þegar kom að hugbúnaði. Þeir
urðu því að hugsa út fyrir kassann og gera eitthvað alveg nýtt. Wii var
einstök tölva þegar hún kom á markað og galdurinn var fjarstýring með
hreyfinemum. Þetta opnaði markað sem Sony og Microsoft náðu ekki
til, það er fólk sem spilar ekki tölvuleiki að staðaldri. Wii stuðlaði að
hreyfingu notandans með líkamsræktar og dansleikjum og var meðal
annars notuð í endurhæfingarstöðvum og á öldrunarheimilum. Nin-
tendo Wii var söluhæsta leikjatölva sinnar kynslóðar með yfir 100
milljón seld eintök.
Þekktustu leikir: Wii Sports, Wii Fit, Super Mario Galaxy
Playstation 4 (2013)
PS4 var ekki bylting í sjálfu sér heldur aðeins línulegt
framhald af fyrri tölvum. En árið 2016 komu á mark-
að þrívíddargleraugu, Playstation VR, sem tengja má
við tölvuna og spila leiki í sýndarveruleika. Aðrir höfðu
prófað sig áfram með tæknina, sér í lagi Oculus, en
Playstation var fyrst til að færa hana yfir á leikjatölvur (ef
undan er skilinn hinn misheppnaði Nintendo Virtualboy
frá árinu 1995). Playstation VR er enn þá mjög dýr og hef-
ur ekki selst vel en það er augljóst hvert leikjamarkaður-
inn stefnir og Sony ætlar að leiða þá byltingu.
Þekktustu leikir: Thumper, Arkham: VR,
The Playroom VR