Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Qupperneq 58

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Qupperneq 58
34 menning Helgarblað 15. september 2017 10 merkilegustu leikjatölvurnar Magnavox Odyssey (1972) Odyssey var fyrsta sjónvarpsleikja- tölvan sem kom á markað, hönnuð af þýska verk- fræðingnum Ralph Baer. Tölvan sýndi þrjá ferhyrninga sem hægt var að stýra með tveimur fjar- stýringum. Með tölvunni fylgdu útprentaðir skermar sem lagðir voru yfir sjónvarpsskjáinn til að spila eina leik tölvunnar á mis- munandi hátt. Vinsælasta útgáfan af leiknum var borðtennis sem varð fyrirmyndin að einum vinsælasta spilakassaleik allra tíma, Pong. Ólíkt Pong, þá var Odyssey algerlega hljóðlaus. Þekktustu leikir: Aðeins þessi eini Atari 2600 (1977) Atari 2600 var fyrsta leikjatölvan sem sló í gegn en hún seldist í 30 millj- ónum eintaka á árunum 1977– 1982. Á þessum tíma fór fólk að átta sig á möguleik- um sjónvarpsleikjatölva og allir vildu fá að vera með. Atari varð eitt heitasta fyrirtæki Bandaríkjanna og alræmt fyrir stans- laus veisluhöld. Velgengni tölvunnar má að einhverju leyti skýra með hugbúnaðinum sem var langtum betri en annarra. Tölvan var einnig sú fyrsta sem geymdi leikina í hylkjum sem varð síðan venjan í 20 ár. Atari varð fyrir barðinu á tölvuleikjahruninu árið 1983 og náði sér aldrei á strik á ný. Þekktustu leikir: Space Invaders, Asteroids, Pitfall NES (1985) Árið 1983 hrundi tölvuleikjamark- aðurinn, meðal annars vegna offramboðs á illa hönnuðum leikjum og vélum. Flestir höfðu afskrifað leikjatölvuformið þegar NES frá Nintendo kom á markað árið 1985. Hin 8 bita NES-tölva var ein- föld og ódýr í framleiðslu en skartaði einstaklega vönduðum leikjum, sérstaklega þeim sem fyrirtækið hannaði sjálft. Þá voru hinar flötu og meðfærilegu fjarstýringar nýlunda. Alls seldust um 62 milljón eintök sem var það langmesta á þessum tíma og segja má að sjónvarpsleikjatölvan hafi öðlast nýtt líf. NES var endurhönnuð árið 2016 og kom á markað í smækkaðri mynd með innbyggðum leikjum. Þekktustu leikir: Super Mario Bros, The Legend of Zelda, Punch-Out Sega Megadrive/Genesis (1989) Á níunda áratugnum hafði Nintendo yfirburðastöðu á leikjamarkað- inum. En stöðu Nintendo var ógnað þegar Sega setti 16 bita Mega drive-tölvuna á markað. Megadrive keppti við Super Nin- tendo-vélina sem kom á markað ári seinna og var bæði öflugri og hraðari. Sega var auglýst sem „fullorðins“ á meðan framleiðandi Nintendo ein- blíndi á yngri kynslóðina. Þegar leikurinn Mortal Kombat kom út árið 1992 stærðu talsmenn Sega sig af því að þeirra leik- ur innihéldi rautt blóð á meðan Nintendo-leikurinn væri blóðlaus. Sölutölur Sega fóru minnkandi út tíunda áratuginn uns framleiðslu var hætt um aldamótin. Þeir framleiða þó enn þá leiki. Þekktustu leikir: Mortal Kombat II, Sonic the Hedgehog, Street Fighter II Neo Geo (1990) Neo Geo frá SNK var sannkölluð munaðarvara. Hún var þrefalt dýrari en leikjatölvurnar frá NES og Sega og leikirnir sömuleiðis. En hún var einnig mun öflugri og hafði möguleika sem hinar höfðu ekki. Fyrirtækið gaf einnig út spilakassa með nákvæmlega sömu leikjum og í Neo Geo. Notendur gátu því flutt leikina sína á milli spilakassa og leikjatölvu í hylkjum sem hýstu marga leiki í einu. Tölvan var mjög öflug og leikirnir litu mjög vel út en kostnaðurinn var of hár fyrir neytendur. Neo Geo naut þó töluverðra vinsælda í Japan þar sem spilakassamenningin er ákaflega rík. Þekktustu leikir: Samurai Showdown, Fatal Fury, Ikari Warriors Playstation 1 (1994) Í upphafi tíunda áratugarins voru geisladiskarnir að taka yfir sem ráðandi geymsluform. Öllum var ljóst að þetta væri fram- tíðin í leikjatölvum og Nintendo reið á vaðið. Samið var við raftækjarisann Sony um að framleiða nýja leikja- tölvu, Nintendo Playstation, sem átti að nota bæði hylki og geisladiska. En Nintendo dró sig út úr samstarf- inu vegna þess að það gat ekki unað Sony að fá allan arðinn af diskasölunni. Þá framleiddi Sony sína eigin Playstation-tölvu sem kom eins og stormsveipur inn á markaðinn og skaut keppinautum sínum ref fyrir rass. Helstu ástæðurnar voru mikið geymslupláss geisladiskanna, öflugir þrívíddarleikir, þægileg fjarstýring og frábær auglýsingaherferð. Þekktustu leikir: Resident Evil, Metal Gear Solid, Gran Turismo 2 Playstation 2 (2000) Önnur tölva raftækjarisans Sony kom eins og sprengja inn á markaðinn um aldamótin og stakk samkeppnisaðilana gjörsamlega af. Um 155 milljónir eintaka seldust, það langmesta í sögunni, og 1,5 milljarðar leikja. PS2 var framleidd samfellt í 13 ár og löngu eftir að PS3 kom út. Hægt var að spila leiki af fyrstu Play station- vélinni á PS2 og einnig var hægt að nota hana sem DVD-spilara. Sony var í góðu sambandi við leikja- framleiðendur sem kepptust við að gera bestu leikina. Þá framleiddi Sony einnig mjög góða leiki. Þekktustu leikir: Grand Theft Auto III, Guitar Hero, Resident Evil 4 Xbox 360 (2001) Margir urðu skelkaðir þegar fyrsta Xbox-tölvan frá Microsoft kom á markaðinn árið 2001, kynnt af sjálfum Bill Gates, en sú tölva seldist ekki mikið utan Bandaríkjanna. Önnur leikjatölva tæknirisans, Xbox 360 seldist hins vegar margfalt betur. Ástæðan fyr- ir velgengni 360 var netkerfið sem hún tengdist, Xbox Live. Live bauð ekki aðeins upp á netspilun heldur var einnig hægt að spjalla, spila tónlist og kvikmyndir og fleira. Xbox hefur aldrei náð Playstation að vinsældum en 360 gerði að verkum að Microsoft festi sig í sessi á leikjatölvumarkaðinum og keppir nú við Sony um öflugasta hugbúnaðinn. Þekktustu leikir: Gears of War, Halo 3, Grand Theft Auto IV Nintendo Wii (2006) Í upphafi 21. aldarinnar virtist sem Nintendo væri að dragast aft- ur úr. Þeir höfðu enn þá yfirburðastöðu í handtölvugeiranum en gátu ekki keppt við risana Sony og Microsoft þegar kom að hugbúnaði. Þeir urðu því að hugsa út fyrir kassann og gera eitthvað alveg nýtt. Wii var einstök tölva þegar hún kom á markað og galdurinn var fjarstýring með hreyfinemum. Þetta opnaði markað sem Sony og Microsoft náðu ekki til, það er fólk sem spilar ekki tölvuleiki að staðaldri. Wii stuðlaði að hreyfingu notandans með líkamsræktar og dansleikjum og var meðal annars notuð í endurhæfingarstöðvum og á öldrunarheimilum. Nin- tendo Wii var söluhæsta leikjatölva sinnar kynslóðar með yfir 100 milljón seld eintök. Þekktustu leikir: Wii Sports, Wii Fit, Super Mario Galaxy Playstation 4 (2013) PS4 var ekki bylting í sjálfu sér heldur aðeins línulegt framhald af fyrri tölvum. En árið 2016 komu á mark- að þrívíddargleraugu, Playstation VR, sem tengja má við tölvuna og spila leiki í sýndarveruleika. Aðrir höfðu prófað sig áfram með tæknina, sér í lagi Oculus, en Playstation var fyrst til að færa hana yfir á leikjatölvur (ef undan er skilinn hinn misheppnaði Nintendo Virtualboy frá árinu 1995). Playstation VR er enn þá mjög dýr og hef- ur ekki selst vel en það er augljóst hvert leikjamarkaður- inn stefnir og Sony ætlar að leiða þá byltingu. Þekktustu leikir: Thumper, Arkham: VR, The Playroom VR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.