Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Blaðsíða 62
38 menning Helgarblað 15. september 2017
I
t frá árinu 1986 er ein af þekkt
ustu skáldsögum Stephens King
og samnefnd sjónvarpsmynd í
tveimur hlutum frá árinu 1990
er orðin sígildur költari. Sú mynd
skemmdi æsku margra sem laum
uðust til að sjá hana of ungir og átti
sinn þátt í því að svo margir óttast
trúða. Hin nýja It hefur verið lengi
í bígerð og aðdáendur hafa beðið
spenntir eftir að sjá söguna loksins
sýnda á hvíta tjaldinu. Líkt og aðr
ar endurgerðir þekktra hryllings
mynda verður hún þó ávallt borin
saman við forvera sinn.
Aular brýna klærnar
Líkt og í sjónvarpsmyndinni er It
í tveimur hlutum. Fyrri hlutinn
gerist árið 1989 í bænum Derry í
Mainefylki en seinni hlutinn mun
koma út árið 2019 og gerast í nú
tímanum. Aðalsöguhetjurnar eru
hópur 13 ára krakka sem kalla sig
Aulaklúbbinn vegna þess að þau
eru útundan í skólanum og sífellt
á flótta undan strákagengi sem
leggur alla minnimáttar í einelti.
Sagan hefst með hvarfi Georgie,
litla bróður leiðtoga klúbbsins,
sem verður óþekktri óværu að
bráð. Óværan tekur fleiri börn
úr bænum og tekur að birtast
meðlimum Aulaklúbbsins sem
dansandi trúðurinn Pennywise.
Seinna kemur í ljós að Pennywise
hefur fylgt bænum frá stofnun
hans um miðja 18. öld og dúkkar
upp á 27 ára fresti til að gera ein
hvern óskunda. Þess á milli liggur
hann í dvala og bæjarbúar gleyma
hörmungunum.
Krakkarnir í Aulaklúbbnum
ákveða að takast á við Penny
wise og minnir sagan því um
margt á kvikmyndirnar The
Goonies, Stand by Me og Super
8 og þættina Stranger Things.
Allir krakkarnir hafa sína forsögu
og sinn djöful að draga nema þá
hinn meinhæðni Richie, leikinn
af Finn Wolfhard sem fer með að
alhlutverkið í Stranger Things.
Svæfandi tæknibrellutrúður
Hin nýja It gengur fyrst og fremst
út á það að bregða áhorfendum
og sýna þeim grafískar og trufl
andi myndir. Hér er algjör vöntun
á hinum undirliggjandi óhugn
aði sem einkenndi sjónvarps
Trúðurinn sem svæfir
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Kvikmyndir
It
Leikstjóri: Andy Muschietti
Aðalleikarar: Bill Skarsgård, Jaeden
Lieberher, Finn Wolfhard
H
reistur er ný ljóðabók eftir
Bubba Morthens og þar
fjallar hann um verbúðar
líf, sem hann þekkir vel af
eigin raun. Hann er fyrst spurð
ur hvort hann hafi lengi haft þörf
fyrir að lýsa verbúðarlífi og greina
það.
„Já, undanfarin ár hef ég verið
að lesa minningabækur fólks
sem fæddist um og eftir miðja 19.
öldina. Sú seinasta sem ég las var
Í verum eftir Theódór Friðriks
son. Það sló mig að enginn hefur
skrifað um þennan heim farand
verkafólks og verbúðarlíf síðan
þá – að ég held,“ segir hann.
„Ég var búinn að vinna heilan
ljóðabálk um allt annað efni
þegar Silja Aðalsteinsdóttir sá
brot úr þessum bálki og benti
mér á að ég yrði að ljúka við hann
því hann fjallaði um horfinn
heim. Þessi bálkur gæti því orðið
eins konar minnisvarði. Þegar
ég gerðist farandverkamað
ur var ég í hópi þúsunda manna
og kvenna sem höfðu öld eftir
öld arkað milli verstöðva. Ég var
ekki í vistarböndum, en ég vann
Sá hluti
sem enginn
ætti að þurfa að sjá
n Hreistur er ný ljóðabók eftir Bubba Morthens n Fjallar um verbúðarlíf
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is „Ég er að
segja þessa
sögu og ég lifði
hana, hrærðist
í henni og hún
mótaði mig.
Metsölulisti
Eymundsson
Vikuna 30. ágúst–5. sept.
Allar bækur
1 Stúlkan sem gat
ekki fyrirgefið
David Lagercrantz
2 Gagn og gaman
Helgi Elíasson/Ísak Jónsson
3 Með lífið að veði
Yeonmi Park
4 Fegurð er sár
Eka Kumiawan
5 Afætur
Jussi Adler-Olsen
6 Pottur, panna og Nanna
Nanna Rögnvaldardóttir
7 Verstu börn í heimi
David Walliams
8 Grænmetisætan
Han Kang
9 Nornin
Camilla Läckberg
10 Iceland In a Bag
Ýmsir höfundar
Handbækur
1 Með lífið að veði
Yeonmi Park
2 Pottur, panna og Nanna
Nanna Rögnvaldardóttir
3 Konan í dalnum og
dæturnar sjö
Guðmundur G. Hagalín
4 Betra líf án plasts
Anneliese Bunk/Nadine Schubert
5 Allskonar þeytingar
fyrir alla
Michelle Keogh
6 109 Sudoku bók 13
7 Leitin að svarta
víkingnum - kilja
Bergsveinn Birgisson
8 Hreinn lífsstíll
Guðrún Bergmann
9 9 daga lifrarhreinsun
til lífstíðar
Patrick Holford/Fiona Mcdonald Joyce
10 Skotvopnabókin
Einar Guðmann