Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Page 63

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Page 63
menning 39Helgarblað 15. september 2017 myndina. Atriðin eru svo tíð og svo fyrirsjáanleg að þegar líða tekur á fer manni hreinlega að leiðast. Hafa ber einnig í huga að myndin er um 45 mínútum lengri en fyrri hluti sjónvarpsmyndar­ innar. Galdurinn við sjónvarps­ myndina var að miklu leyti Penn­ ywise sjálfur, leikinn meistaralega af Tim Curry. Nú er trúðurinn leikinn af Bill Skarsgård (sonur Stellan), sem stendur sig ágæt­ lega en hefur ekki þá vigt sem Curry hafði og virðist of ungur fyrir hlutverkið. Ofan á þetta er hlutverk hans að miklu leyti eyði­ lagt með ofnotkun tæknibrellna. Aðrir leikarar hafa fengið mikið lof gagnrýnenda en það verður að segjast að persónurnar eru ýktar og ótrúverðugar, sérstaklega þær eldri. Myndin hefur einnig fengið lof fyrir að vera nokkuð trú skáldsögu Stephens King en það er hins vegar ekki alltaf ávísun á góða kvikmynd. Ber þar helst að nefna sjónvarpsmyndina The Shining frá árinu 1997 sem fylgdi skáld­ sögu King vel en var hreint út sagt afleit. Kvikmynd Stanleys Kubrick frá 1980 sveigði vel frá textanum en var hins vegar meistaraverk. Niðurstaða Endurgerðir af þekktum hryll­ ingsmyndum hafa verið í tísku undanfarin ár. A Nightmare on Elm Street, Friday the 13th, Hallo­ ween, Carrie og The Hills Have Eyes eru dæmi um endurgerðir sem skiluðu sínu í kassann en þjónuðu engum listrænum til­ gangi. Því miður bætist It í hóp þessara mynda. Jákvæði hlutinn við þetta er að endurgerðirnar vekja mögulega áhuga hjá einhverjum af yngri kynslóðinni á að kynna sér for­ verana, frá þeim tíma þegar hryll­ ingsmyndagerð var frumlegt og áhugavert listform. n „Hér er algjör vöntun á hinum undirliggjandi óhugnaði sem einkenndi sjónvarps- myndina. It „Það fljóta allir hérna niðri“ með háöldruðum karlmönnum sem höfðu átt foreldra sem höfðu verið í vistarböndum.“ Í ljóðabókinni er tilvitnun í Þorpið eftir Jón úr Vör: „En Þorpið fer með þér alla leið“. Það er engin tilviljun að þessi tilvitn­ un varð fyrir valinu. Við lestur ljóðabókar Bubba er ljóst að ver­ búðarárin hafa fylgt honum, rétt eins og þorpið fylgdi alltaf Jóni úr Vör. Bubbi segist hafa mik­ ið dálæti á Þorpinu: „Jón úr Vör fjallar þar um æskuþorpið sitt og fólkið þar. Þorpið er að mínu mati vanmetin ljóðabók. Þorp­ ið finnst mér á pari við það besta og á heima í sömu hillu og verk Hannesar Sigfússonar, Sigfúsar Daðasonar og Steins Steinars. Mér hefur alltaf þótt Þorpið van­ metin ljóðabók. Ég held að hún hafi liðið fyrir það að mönnum fannst hún ekki nógu mikill T.S. Eliot.“ Massíf óreiðusinfónía Heimur verbúðarinnar eins og þú lýsir honum í bókinni er ansi nöturlegur. „Já, og hann var það. Ég var sextán ára og líf­ ið skolaði mér á stað þar sem ægði saman alls kon­ ar fólki. Þarna voru alkó­ hólistar, fólk sem hafði tapað í lífsbaráttunni og átti hvergi heima nema á verbúð. Síðan voru þarna krakkar sem höfðu orðið undir í skólakerfinu, komu frá ónýtum heim­ ilum og höfðu kynnst of­ beldisveröld. Þarna voru líka frískir skólakrakkar sem komu frá betri heimilum og voru að ná sér í pening. Líka er­ lent fólk sem kom og kynntist Íslandi í gegn­ um verbúðarlífið. Svo var hópurinn sem ég tilheyrði, ungt fólk sem fór frá einni verstöð til annarrar. Í verbúðunum var reynt að búa til heimil­ isbrag. Það voru sett upp plaköt af Bob Dylan, Maó, Che Guevera og John Lennon. Stelpurnar höfðu dúka á trékössum og þarna voru reykelsi, kerti og rökkurljós. Um helgar var spiluð tónlist: Deep Purple í herbergi 14, Led Zepp­ elin í herbergi 8, Leonard Cohen í herbergi 11. Þetta var massíf óreiðusinfónía, öskur og læti. Þetta var sérstakur heimur og þar var líka fullt af fegurð. Ungt fólk var að kynnast og ástin var í loft­ inu. Ég hef hitt fólk sem var með mér á verbúð sem kynntist sextán, sautján ára, tók saman og eignað­ ist börn og buru og er enn saman í dag.“ „Þeir komu og fóru“ Í bókinni dregur Bubbi upp sterkar og áhrifamiklar myndir, margar fallegar en sumar ógn­ vekjandi eins og lýsingar á of­ beldi. Í einu ljóði stendur: Þeir komu og fóru dyrnar hálfopnar inn þú sást hvað þeir gerðu við hana hún reis upp til hálfs hún sá þig augu hennar sitja föst í brjósti þínu enn í dag Spurður um þetta atvik segir Bubbi: „Þetta var í kringum 1974. Ég var inni í herbergi þar sem var verið að drekka og og sá inn í hálf­ opið herbergi beint á móti þar sem líka var verið að drekka. Ég var með gítar og söng og hreyfði höfuðið til hálfs. Allt í einu sá ég stelpuandlit rísa upp á móti mér hinum megin á ganginum. Ég náði augnsambandi við stúlkuna og sá hvað var að gerast en hafði ekki burði eða getu til að bregð­ ast við. Það var bara haldið áfram að drekka og syngja. Þessi mynd hefur sótt á mig hvað eftir annað. Í verbúð var ofbeldi í öllum myndum. Þar var mjög algengt að sjá menn slást. Menn gerðu sér jafnvel sérstaka ferð í verbúð­ ina til að slást þar við menn. Það var mjög algengt að stelpum væri misþyrmt. Ég sá stelp­ ur slegnar niður af mönnum í ölæði. Þetta var ekki einskorðað við einn stað, ég sá þetta á fleiri stöðum. Ég sá hluti sem enginn ætti að þurfa að sjá. Frá árunum 1973– 79 þá man ég skýrt eftir þremur atvikum þar sem ég varð vitni að grófu ofbeldi. Ofbeldi og drykkja var hluti af tíðarandanum og telst ekki lengur vera í norm­ inu en viðgengst áfram. Það er stöðugt ofbeldi gagnvart konum og stanslaust ofbeldi í hörð­ um heimi neyslunnar og undirheimum Reykja­ víkur. Það er hins vegar ekki algengt nema þegar kemur að heimilisofbeldi að ungt fólk verði vitni að því.“ Myndir koma Lesandi ljóðabókarinnar hlýtur að sogast inn í heim hennar og verða fyr­ ir áhrifum af hinu sterka myndmáli. „Þetta er ekki heimur sem ég er að skoða utan frá, þetta er nokkuð sem ég lifði,“ segir Bubbi. „Mynd­ ir koma til mín en svo er mis­ jafnt hvernig ég set þær í form.“ Hann tekur dæmi um ljóð númer 16 í bókinni sem hefst á orðun­ um: líkkistan kemur útúr hvítri þokunni. „Það ljóð er byggt á at­ burði sem gerðist á Bolungarvík. Maður sem var þar í áhöfn, og ég vann með, sagði mér þá sögu. Þegar upp er staðið eru allir að segja sögur. Þjóðfélagið er fullt af sögum. Ég er að segja þessa sögu og ég lifði hana, hrærðist í henni og hún mótaði mig. Í huga mín­ um sé ég myndir sem ég tek og set í þannig form að lesandinn sér einnig myndir.“ Hreistur er önnur ljóðabók Bubba. Sú fyrsta Öskraðu gat á myrkrið kom út árið 2015. „ Öskraðu gat á myrkrið er endir á ákveðnu tímabili þar sem ég steig inn í normalheim. Hreistur fjallar um unglingsárin. Þá er aðeins bernskan eftir og mjög líklega mun ég yrkja um hana,“ segir hann. Að lokum er hann spurður um ljóðabálkinn sem hann nefndi í upphafi viðtals en lagði frá sér til að ljúka við Hreistur. „Sá ljóða­ bálkur, sem ég á aðeins eftir að fín­ pússa, fjallar um heim flóttafólks sem kemur til Íslands og þær mót­ tökur sem það fær,“ segir Bubbi. Það er því ljóst að fleiri ljóðabækur frá honum eru væntan legar. n Sá hluti sem enginn ætti að þurfa að sjá „Ég sá stelpur slegnar niður af mönnum í ölæði. Þetta var ekki einskorðað við einn stað, ég sá þetta á fleiri stöðum. Bubbi Morthens „Þetta var massíf óreiðusinfónía, öskur og læti.“ MyNd BryNja

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.