Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Side 72
Helgarblað 15. september 2017
53. tölublað 107. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Þetta er allt
á sömu
bókina lært!
Bókmenntaelítan
lofar Lilju
n Í hinum íslenska bókmennta
heimi hefur ekki verið til siðs
að lofa Framsóknarflokkinn.
Nú eru breyttir tímar því bóka
fólk ber mikið lof á þingmann
Framsóknarflokksins, Lilju Al-
freðsdóttur, eftir að hún greindi
frá því að hún ætli að leggja
fram frumvarp um að virðis
aukaskattur á bækur verði
aflagður. Þetta hefur í langan
tíma verið sérstakt baráttumál
bókaútgefenda
sem fagna því
nú mjög að
jafn öflugur
þingmaður
og Lilja beiti
sér í málinu.
Því má segja
að bókamenn
og Fram
sóknar
flokk
urinn
hafi loks
fallist í
faðma.
Stríð við
spænska ríkið
n Gústav Níelsson sagn
fræðingur stendur nú í stappi
við við spænska ríkið. Gústav
flutti nýverið til San Miguel de
Salinas á Spáni til að „þurfa
ekki aftur að skafa bílrúður“
en aðlögunin virðist ætla að
taka tíma, bæði að náttúrunni
og landinu. Gústav var illa bit
inn af moskítóflugum en þakk
ar líkamsþrótti sínum og góðri
umönnun það að hann sé nú
á batavegi. Nú segir hann frá
því að skattheimtumenn ríkis
ins hafi gert „ósvífna og ómál
efnalega“ kröfu á
þau hjónin.
Hann segir
að „hörku
stríð“ sé í
vændum en
vill ekki gefa
upp hver
krafan sé.
Ágúst, Katie og Jóakim
Búa nú í Milwaukee.Fann ástina í fellibyl
Á
gúst Magnússon, heim
spekikennari við Wisconsin
háskólann í Milwaukee,
kynntist eiginkonu sinni,
Katie, í fellibyl í Flórída árið 2004
þegar þau stunduðu nám við
Eckerdháskólann.
„Þetta var langversta fellibylja
tímabil í sögu Bandaríkjanna en
það met var reyndar slegið ári
síðar. Þarna riðu yfir fjórir felli byljir,
Charlie, Frances, Ivan og Jeanne,
sem skildu eftir sig mikið mann
fall og eyðileggingu. Þeir voru all
ir á beinni braut til Tampa/St. Pete
þar sem við bjuggum.“ Ágúst var
22 ára gamall og hafði aldrei kom
ið til Bandaríkjanna áður. Eftir tvo
daga á heimavistinni var öllum
skipað að yfirgefa skólann þar sem
Frances stefndi á skólann.
„Flestir krakkarnir fóru heim
til sín en ég var alveg ráðalaus. Þá
bauð einn nemandi mér að koma
og gista í strandhúsi þar sem yrði
haldið fellibyljapartí. Mér þótti
það ekki gáfulegt í ljósi þess að
húsið var alveg við hafið en ég
átti ekki annarra kosta völ.“ Þarna
var skrautlegt lið, pönkarar og
níhilistar. Sumir fóru á brimbretti
þegar veðrið var hvað verst.
Fellibylurinn Ivan skall svo
hratt á að nemendum Eckerd gafst
ekki tækifæri til að flýja. Ágúst hitti
Katie fyrst í neyðarskýli og „það var
þá sem augngoturnar byrjuðu.“
Þau flúðu bæði næsta dag. Ágúst
flaug til Chicago en þegar hann
sneri aftur hófst sambandið.
Hvorki Charlie, Frances né
Ivan gerðu mikinn usla í Eckerd
þar sem þeir beygðu frá á síðustu
stundu. Sá fjórði virtist minni en
hinir og nemendunum var ekki
gert að flýja. En hann gekk hægar
yfir. „Það flæddi um allt. Maður
horfði á vatnið flæða inn um dyrn
ar og allir voru að troða handklæð
um í allar gættir en vatnið hélt
áfram að rísa. Enginn dó en þetta
var mikill hasar.“
Ágúst og Katie giftust árið 2008
og tveimur árum síðar eignuðust
þau soninn Jóakim Dylan. n
kristinn@dv.is
BYKO BREIDD
ER 15 ÁRA!
Í tilefni þess erum við með 15 ára gömul tilboðsverð á völdum vörum til 17. september!
5.900kr.
9.995 kr.
2002 VERÐ
2.990kr.
6.295 kr.
2002 VERÐ
5.900kr.
8.395 kr.
2002 VERÐ
BORVÉL
PSB 500-RE
VNR. 74860500
OLÍUFYLLTUR
RAFMAGNS-
OFN 9 þilja
VNR. 65105709
KÓPAL
GLITRA 4 l.
VNR. 86620040
Takmarkað magn. 20 l.
á hvern kaupanda.
AUÐVELT AÐ VERSLA Á BYKO.IS
SENDUM ÚT UM ALLT LANDSkoðaðu öll
tilboðin á
byko.is
AFMÆLIS-
TILBOÐIN
ERU Í
BREIDD
Takmarkað úrval í
öðrum verslunum
15m löng kaka í boði á laugardag og börnin fá gefins BYKO jójó!*
Aðeins í
BYKO Breidd
Aðeins í
BYKO Breidd
Aðeins í
BYKO Breidd
15 ÁRA
GÖMUL
VERÐ!
* Tilboð gilda til 17. september, eða á meðan birgðir endast.