Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Blaðsíða 20
20 sport Helgarblað 22. september 2017 É g tel að við höfum verið besta liðið í sumar, ég er ekki í nokkrum vafa um það,“ segir Ólafur Jóhannesson, þjálfari karlaliðs Vals, en um síðustu helgi vann Valur Pepsi-deildina og vann þar með sinn fyrsta Íslands- meistaratitil í tíu ár. Ólafur sem er 60 ára gamall er afar reynslumikill þjálfari og er í hópi bestu þjálfara sem Ísland hefur átt. Þjálfaraferill Ólafs er langur og hefur verið farsæll en hann hófst árið árið 1982 þegar hann stýrði Einherja. Síðan þá hefur Ólafur farið víða, hann hefur í þrígang þjálfað Skallagrím og þá hefur hann í tvígang stýrt FH og Hauk- um. Hjá FH voru hans bestu ár en hann þjálfaði liðið frá 2003 til 2007 og vann fyrsta Íslandsmeistara titil í sögu félagsins árið 2004. Ólafur tók síðan við landsliðinu árið 2007 og stýrði því þangað til undir lok árs 2011. Ólafur var svo í tvö ár hjá Haukum eftir það og tók svo við Val fyrir tímabilið 2015 og hefur unnið þrjá stóra titla á þremur árum með liðinu. Fyrstu tvö árin undir stjórn Ólafs varð liðið bik- armeistari og í ár var komið að því að vinna þann stóra. „Fyrir þetta mót vorum við í þjálfarateyminu nokkuð vissir um að við værum komnir með nógu góðan hóp til að berjast um þenn- an titil. Til þess að það gengi eftir þurfti þó margt að ganga upp. Það sem þurfti að gerast gekk mjög vel og við fengum góðan liðstyrk í miðju móti í Eiði Aroni Sigur- björnssyni og Patrick Pedersen. Við vorum búnir að semja um Eið löngu fyrir mót og það snerist bara um hvenær lið hans í Þýskalandi vildi sleppa honum. Hann kom á síðasta degi fyrir lokun gluggans. Patrick var langsóttari en við vor- um búnir að hlera ýmislegt. Ég var í sambandi við hann og mér fannst að það væri mögulegt að plata hann, ég talaði við hann fyr- ir mót líka og þá vildi hann láta reyna á hlutina í Noregi. Það skil- ur maður, norska úrvalsdeildin er stærri en sú íslenska, það er stað- reynd. Hann spilaði lítið og við stukkum á hann.“ Tók þrjú ár að ná þeim stóra Ólafur tók við Val fyrir tímabilið 2015 og hefur því tekið sér tíma í að byggja upp lið. „Það er nú einu sinni þannig í þessum bransa að maður þarf að koma sínum hug- myndum að; hvernig maður vill að hlutirnir séu gerðir. Fyrsta árið hjá Val var mjög erfitt. Það var margt sem var á móti okkur, ýmsir hlutir sem við vorum ekki ánægð- ir með. Árið í fyrra var mjög fínt og árið í ár var einstaklega gott. Við höfum fengið afskaplega góðan stuðning hérna í Val. Það er nán- ast allt gert fyrir okkur, hvaða vit- leysa sem okkur hefur dottið í hug er framkvæmd. Þeir sem standa að okkur og starfsfólkið hjá Val hefur verið einstaklega gott við okkur. Til að vinna mót þá þarftu að vera með góða liðsheild. Góð liðsheild saman stendur af öllum sem starfa í kringum þig. Ef þú nærð að búa til liðsheild svo að leikmönnum líði vel inni á vellin- um og utan hans þá er það eins og að vera með tvo auka leikmenn.“ Hafði ákveðið að taka við Val Ólafur segir frá því að ári áður en hann tók við Val hefði hann sett sér það markmið að taka við liðinu. „Ég efaðist aldrei um að ég tæki við Val, ég hafði meira að segja ákveðið það ári áður. Það var þannig að við Bjössi [Sigurbjörn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari Vals] vorum saman með Hauka í tvö ár og síðan var Bjössi þar sjálf- ur í eitt ár. Við ákváðum að við myndum koma hingað eftir eitt ár og taka við Val. Svo gerðist það, ég ýtti ekki á það en það gerðist og þess vegna kom ég hingað. Það var aldrei neinn vafi, ég var ekkert hræddur við það. Valur er einn stærsti klúbburinn á Íslandi og ef þú hefur ekki áhuga á að starfa þar, þá er ekki mikið varið í þig.“ Lét Börk vita að hann myndi ráða Áður en Ólafur tók við starfinu þurfti hann að láta menn á Hlíðar- enda vita að hann myndi taka allar ákvarðanir en ekki stjórnarmenn, hann og Börkur Edvardsson, for- maður knattspyrnudeildar, höfðu átt í deilum áður en Ólafur tók við Val og það þurfti að slíðra sverðin. „Ég var alveg meðvitaður um að ég þyrfti að breyta hlutun- um hérna, við sögðum þess- um mönnum hvernig við vildum gera hlutina og hvernig þyrfti að gera þá. Við myndum ráða því. Ég og Börkur höfðum lent í deilum einu sinni út af einhverju sem í raun skipti ekki neinu máli, það gerðist fyrir nokkrum árum. Það andaði köldu á milli okkar, við heilsuðumst alltaf en það var ekki meira en það. Það er svo gaman að segja frá því að þegar ég fór á fyrsta fundinn með þeim þá var ég spurður hvort ég gæti starfað með Berki. Ég svaraði því á móti að það snerist ekki um það, ég sagði að það snerist um hvort Börkur gæti starfað með mér, því að ég ætlaði að ráða hlutunum. Það hefur gengið frábærlega, Börkur er frábær gæi. Það eru nokkrir klúbbar sem eiga svona mann eins og Börk, maður sem vinnur mikið í sjálfboðavinnu og er nán- ast til í að deyja fyrir félagið sitt. Þessir gæjar eru ekkert smá Hefur sannað sig á nýjan leik sem besti þjálfari landsins n Þykir vænt um falleg orð landsliðsmanna n Lét Valsara vita að hann myndi ráða hlutunum Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is „Ég fann að ég var búinn inni hjá KSÍ, ég fann það á ákveðn- um tímapunkti. Það var hundleiðinlegt að fara í vinnu, ég vildi hætta en ég fékk það ekki. Á heimavelli Íslandsmeistaranna Ólafur hefur átt frábæran þjálfaraferil og minnti hressilega á sig í sumar sem einn fremsti þjálfari í sögu Íslands. Mynd BrynJa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.