Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Blaðsíða 29
Þarf lítið til að gleðja „Þótt ótrúlegt megi virðast er þessi tveggja sæta sófi alveg
rosalega þægilegur. Hann er ekki of djúpur svo maður situr vel í honum og svo er bakið
hátt sem gerir hann mjög notalegan. Svarthvítu myndina fékk ég frá afa mínum, Kristjáni
Júlíussyni leigubílstjóra, bifvélavirkja og frístundamálara. Myndina af manninum með
bindið fékk ég svo að gjöf frá barnsföður mínum þegar dóttir okkar fæddist. Hún er eftir
Karólínu Lárusdóttur, en veggteppið er frá House Doctor. Hvað inniskóna þarna varðar
þá voru þeir jólagjöf frá vinkonu minni, ein sú besta gjöf sem ég hef fengið á ævinni. Ég
held að það sé verið að selja þá í Cintamani. Það þarf lítið til að gleðja mig.“ Myndir BB
Óhætt að treysta höllu „Fyrst málaði ég bara allt í hvítu en svo benti Halla
Bára innanhússhönnuður mér á að bæta litum á veggina. Hún er alveg litasjúk. Fyrst
hélt ég að rýmin myndu minnka við þetta en svo er ekki. Núna er ég alveg óð og ætla
að mála fleiri veggi í fallegum litum. Mér er líka óhætt að treysta Höllu því hún kann
að skapa hlýlegt andrúmsloft. Það setur alltaf punktinn yfir i-ið að mála vegg í lit.“
safnar babúskum „Mér hefur alltaf þótt eitthvað sjarmerandi við þessar dúkkur.“
hægt að púsla saman „Þetta eru bara svona frístandandi einingar frá House Doctor sem hægt er að púsla saman eftir þörfum. Mjög hentugt og þægilegt, sér-staklega ef maður vill færa mubluna á annan stað í húsinu.“
herdís heildsali „Eftir átta
tíma vinnudag þar sem maður
er í símanum allan daginn, að
tala við alls konar skemmtilegt
fólk, þá þarf maður stundum
að anda djúpt og fá sér eitt
rauðvínsglas til að ná sér niður
þegar heim er komið.“