Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Síða 40
eins lifaður og raun ber vitni? „Já,
algjörlega. Og fleiri listamenn.
Til dæmis hún Amy Winehouse,
heitin, sem ég þekkti reyndar mjög
vel meðan ég bjó í London. Hún
var skýrt dæmi um manneskju
sem gerði sér enga grein fyrir
eigin hæfileikum og leitaði í alls
konar vitleysu sem á endanum dró
hana til dauða,“ segir Þórunn og
nefnir um leið að hún hafi lesið
margar rannsóknir sem sýni fram
á að listamenn lifi lífi sínu yfirleitt
nokkuð á skjön við það sem tíðkast
hjá venjulegu millistéttarfólki.
Til dæmis eigi þeir gjarna fleiri
rekkjunauta og finni sig stundum
í aðstæðum sem aðrir myndu
vanalega forðast. „Ef fólk er mjög
skapandi þá fylgir því oft þessi
óseðjandi lífsþorsti. Til að geta sagt
spennandi sögur er líka nauðsyn-
legt að hafa frá einhverju að segja.
Ef þú ætlar að skrifa um hluti þá
dugar ekki að vera bara heima að
spila lúdó. Maður þarf að lifa lífinu
til að geta skrifað um það. En fólk
þarf líka að kunna að fara vel
með þetta.“
Hefur aldrei unnið
níu til fimm-vinnu
Heldurðu að staða kvenna
í þínum geira hafi breyst
mikið á síðustu árum? „Já,
svo sannarlega. Ég efast um
að konur á mínum aldri,
einstæðar mæður, hafi fengið
tækifæri til að eyða dögunum
sínum í að semja popptónlist
hérna á Íslandi árið 1975. Ég er
svo lánsöm að geta að minnsta
kosti gefið sjálfri mér smá
rými fyrir sköpunina á milli
þess sem ég sinni móðurhlut-
verkinu og öðrum verkefnum.
Maður finnur samt alveg enn
fyrir þessu gamla íhaldssama
viðmóti; að maður eigi að
hætta þessu rugli og fá sér al-
mennilega vinnu. Stundum
þarf ég að hafa mig alla við
til að láta mótlætið ekki
brjóta niður sköpunar-
gleðina,“ segir Þórunn
sem hefur á undanförn-
um árum sinnt fjölbreytt-
um störfum innan lista-
og fjölmiðlageirans.
Margir muna til dæmis
eftir henni úr Steinda-
þáttunum þar sem hún
og sannaði sig sem
afbragðs grínleikkona.
Þá var hún dómari í
hæfileikakeppninni
Ísland Got Talent en í
fyrrasumar tók hún að
sér að vera fjölmiðla- og
kynningarfulltrúi fyrir
hátíðina Secret Solstice,
svo fátt eitt sé nefnt.
„Ég hef alltaf verið
mjög dugleg að vinna
og hef gengið í hin og
þessi störf þótt ég hafi
aldrei nokkurn tím-
ann unnið svokallaða
níu til fimm-vinnu.
Ætli ég kunni það
nokkuð? Ég held
ekki.“
Vann víbrator og kampa-
vínsflösku í
bingó Sódómu
Undanfarna mánuði hefur
Þórunn stýrt stórskemmti-
legum karókíkvöldum í kjallara
veitingastaðarins Sæta svínið. Hún
segir hugmyndina hafa fæðst eftir
bingókvöld hjá Sigríði Klingen-
berg á sama stað. „Ég hélt að þetta
væri bara svona venjulegt bingó á
sunnudagskvöldi. Allir slakir. Svo
kom ég þarna inn og fólk var bara
að fara úr að ofan, Sigga að hella úr
staupum upp í fólk og einhverjir að
dansa uppi á borði. Ég hugsaði bara
… í hvaða Sódómu er ég eiginlega
komin? Ég elska þetta!! Svo settist
ég niður með bingóspjaldið mitt í
algjöru hláturskasti, vann einhvern
víbrator og kampavínsflösku og fór
með vinningana heim, alsæl.“
Maður þarf ekkert að kunna að syngja
Hún segir að stemningin hafi
minnt hana á pöbb í austurhluta
London sem hún sótti reglulega
þau ár sem hún bjó þar. Á staðnum,
sem heitir The Legion, voru haldin
„pub quiz“- og karókíkvöld en
hún segir þau hafa verið rjómann
af því besta sem stórborgin hafði
upp á að bjóða á þessum árum.
„Karókíkvöldunum var stjórnað
af alveg ótrúlega skemmtilegu og
fyndnu pari. Þau voru alltaf klædd
í mjög skrautlega búninga og svo
voru þau með svona lukkuhjól sem
þau sneru eftir að fólk var búið að
syngja. Þá gastu fengið alls konar
skrítna vinninga, sem virkaði auð-
vitað svolítið hvetjandi fyrir þá sem
þorðu ekki að taka lagið,“ útskýrir
hún með tilheyrandi handahreyf-
ingum. „Venjulegt karókí er yfirleitt
þannig að þangað kemur eingöngu
fólk sem virkilega kann að syngja
og langar bara til að gera það, en
þegar búningar og vinningar og
alls konar annað rugl bætist við þá
verður þetta svo miklu skemmti-
Klár í karókí?
Karókíkvöldin á Sæta svíninu
hefjast upp úr kl. 21.00 og standa
til 00.30 öll miðvikudagskvöld.
„Svo settist ég
niður með
bingóspjaldið mitt í
algjöru hláturskasti,
vann einhvern víbrator
og kampavínsflösku
og fór með vinning-
ana heim, alsæl.