Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Side 50
26 fólk - viðtal Helgarblað 22. september 2017
félagshyggjuríkisstjórnin í sögu
lýðveldisins gerði eftir hrun. Þar
var fyrst og fremst skorið niður í vel-
ferðarkerfinu.
Svo horfir maður til borgarinnar.
Borgarstjórn undir stjórn Dags B.
Eggertssonar eyðir fé í að mála mál-
verk eftir Erró á gafla á blokkum í
efra Breiðholti á sama tíma og mik-
ill skortur er á fjármunum bæði til
leik- og barnaskóla. Sama borgar-
stjórn eyðir miklu fé í að skreyta
Miklubrautina milli Snorrabrautar
og Lönguhlíðar á sama tíma og
skólakerfið er í molum.
Ég skil hvorki borgarstjórn né
ríkisstjórn sem segist starfa í nafni
félagshyggju og forgangsraðar á
þennan hátt.
Það er svo margt sem við þurf-
um að bæta. Við þurfum til dæmis
að hlúa betur að skólakerfinu.
Það voru algjör mistök hjá Illuga
Gunnarssyni að berjast fyrir því að
stytta nám til stúdentsprófs um eitt
ár. Það á að halda þessum krökk-
um í skjóli eins og lengi og hægt
er. Það sem meira er, þjóðin er að
eldast og við þurfum að finna leið
til að leyfa fólki sem er með góða
heilsu og yfir sjötugt að halda áfram
að leggja af mörkum til samfélags-
ins. Við gerum það ekki auðveldara
með því að ýta krökkum fyrr út á
vinnumarkaðinn. Ég held að það
séu grundvallarmistök að stytta
nám til stúdentsprófs. Afleiðingin
hefur eingöngu verið sparnaður í
menntakerfinu.“
Eigum við kannski ekki nógu
góða stjórnmálamenn?
„Ég held að það sé ekkert sér-
stakt sem gerir mann að stjórn-
málamanni. Sem hópur finnst mér
þeir vera nokkuð agalausir. Þeir
eru heldur ekki nógu næmir fyrir
vilja samfélagsins. Besta dæmið
um það er hvernig þeir hafa nálg-
ast heilbrigðismálin eftir að samfé-
lagið hefur tjáð sig jafn skýrt eins og
gert var í undirskriftasöfnun minni.
Þeir láta bara eins og þeim komi
það ekki við. Eins og þeir séu ekki
að stjórna í umboði neins heldur
séu að stjórna eins og þeim finnst
gaman.“
Skrýtnar tilfinningar
Hvernig lýst þér á pólitíska ástandið
eins og það er þessa stundina?
„Mér finnst það býsna dapur-
legt. Ég átta mig ekki almennilega
á því hvernig menn settu saman
þessa ríkisstjórn sem nú var að
segja af sér. Ég átta mig heldur ekki
almennilega á því á hvaða forsend-
um menn rufu þessa ríkisstjórn.
Mér finnst sem að baki þessu búi
heldur moðkenndar hugsanir. Svo
maður fari ekki út í að ræða þessi
barnaníðingsmál sem eru í sjálfu
sér alltof flókin Ég viðurkenni
að vísu fúslega að ef annar hvor
þessara níðinga sem menn eru að
tala um núna hefði veist að afkom-
endum mínum þá hefði ég ósköp
einfaldlega drepið hann með ber-
um höndum. En við búum í réttar-
ríki og við erum ekki með dauða-
refsingu. Einn af hornsteinum
þessa réttarríkis er að þegar menn
eru búnir að taka út sína refsingu þá
eigi þeir að fá mannréttindi. Að vísu
finnst manni gjörsamlega fáránlegt
að kalla eitthvað í þessu „uppreist
æru“ vegna þess að maður sem hef-
ur níðst á barni fær aldrei æru sína
aftur og á ekki að fá hana aftur. Ekki
í þessu lífi og ekki í neinu lífi.
Það hefði mátt taka á þessum
málum á annan hátt en gert var af
hálfu stjórnvalda en þetta er ekki
ástæða til að rjúfa ríkisstjórn. Mér
finnst það barnalegt og heimsku-
legt. Þarna láta menn skrýtnar til-
finningar bera sig ofurliði. En ég
hefði getað séð margar aðrar ástæð-
ur til að rjúfa þessa ríkis stjórn. Ég
hefði viljað að þessi ríkis stjórn
hefði endurskoðað fimm ára áætl-
un ríkis fjármála og sett aukið fé í
heilbrigðiskerfið og menntakerfið.“
Þú ert mjög pólitískur í hugsun.
„Nú skil ég bara alls ekki hvað
þú ert að segja! Maður þarf ekki að
vera pólitískur í hugsun til að hafa
áhuga á samfélagi sínu. Ég held því
fram að maður þurfi að vera ein-
hvers konar zombí til að hugsa ekki
um samfélag sitt. Það er skylda okk-
ar að hugsa um það samfélag sem
við búum í.
Það sem veldur mér áhyggjum
er ekki dagurinn í dag eða dagurinn
á morgun heldur framtíð barna-
barna minna sem eru á aldrinum
tveggja til tólf ára. Hvaða samfé-
lag bíður þeirra? Hvernig verður
lífið þegar þessir krakkar, sem eru
mér verðmætari en nokkuð annað
í þessu lífi, verða orðnir þrítugir
eða fertugir eða fimmtugir. Hvernig
verður þessi heimur þá?
Það er áhugavert að velta fyrir
sér deilunum um hlýnun jarðar.
Alls konar stjórnmálamenn og
spekingar segja að ekki sé búið
að sanna það að maðurinn leggi
nokkuð af mörkum til hlýnunar-
innar. Ég er algjörlega sammála
því. Það er ekki búið að sanna það.
Það er hins vegar búið að leiða að
því sterkum líkum að maðurinn
leggi þar sitt af mörkum. Þá er stóra
spurningin hversu örugg við verð-
um að vera um þátt hans til þess að
bregðast við. Verðum við að vera 99
prósent örugg, 75 prósent örugg, 25
prósent örugg, 10 prósent örugg?
Ekki gleyma því að við gerum þessa
tilraun ekki nema einu sinni. Ég
held því fram að líkurnar þurfi ekki
að vera mjög sterkar. Ef svo heldur
fram sem horfir og við bregðumst
ekki við þá verður líf barnabarna
minna óbærilegt.
Það sem skiptir mig mestu máli
núna er hvernig við búum þannig
í haginn að þessi kríli sem nú eru
barnabörnin mín, muni eiga líf sem
verði eins gleðilegt og hægt er.“
Alvarlegar stökkbreytingar
Víkjum að fyrirtæki þínu, Íslenskri
erfðagreiningu. Finnst þér það
metið að verðleikum hér á landi?
„Við erum vísindastofnun í
mannerfðafræði, ekkert annað.
Þegar við komum hingað árið
1996 þá var engin þekking til og
engin hefð í líffræðirannsóknum.
Við byggðum starfsemina upp frá
grunni og frá þeim tíma höfum við
verið leiðandi í heiminum á sviði
erfðavísinda. Þegar ég stofnaði
fyrir tækið bjuggust menn við því að
ókleift myndi reynast að finna hæft
starfsfólk en ég get staðið við það að
ekki er til betra teymi í heiminum
en þetta flotta fólk. Þetta er í fyrsta
sinn sem Ísland hefur leitt heiminn
á sviði nútímavísinda. Íslendingar
munu ekki koma til með að gera
það á neinu öðru sviði. Við byrj-
uðum á nákvæmlega réttum tíma,
með nákvæmlega rétta hugmynd
sem virkaði.
Margir Íslendingar gera sér ekki
alveg grein fyrir þessum árangri.
Þeir halda enn að við séum að plata
þá en það truflar okkur ekki. Við
fáum þá bara að vera í friði. Það
eru líka fjölmargir sem vita að þetta
er óvanalegt og eru þakklátir fyrir
þann árangur sem við höfum náð.
Í vikunni birtum við vísinda-
menn Íslenskrar erfðagreiningar
grein í tímaritinu Nature þar sem við
sýnum fram á að þó svo að í erfða-
menginu almennt komi miklu fleiri
stökkbreytingar frá föður en móður,
þá eru 10 prósent af erfðamenginu
þar sem fjöldinn frá móður er jafn-
mikill og frá föður. Þetta er mjög
áhugavert vegna þess að það eru
sérstakar gerðir af stökkbreyting-
um sem þarna eiga sér stað. Í þess-
um 10 prósentum af erfðamenginu
er næstum því tvisvar sinnum hærri
stökkbreytitíðni en annars staðar
í erfðamenginu. Það þýðir að þeir
eiginleikar okkar sem eiga rætur
sínar í þessum 10 prósentum erfða-
mengisins þróast hraðar en aðrir
eiginleikar okkar.
Mjög stór hundraðshluti af alvar-
legum og fágætum sjúkdómum
barna á rætur sínar í þessum nýjum
stökkbreytingum. Þetta eru stökk-
breytingar sem finnast ekki hjá móð-
ur og ekki hjá föður heldur finnast
hjá afkvæminu. Þetta eru oft mjög
alvarlegar stökkbreytingar sem hafa
áhrif á starfsemi heilans og skilja
barnið eftir með ótrúlega dapurlega
ævi. Þessar stökkbreytingar sem við
erum að rannsaka á abstrakt hátt
skapa mikið langtímavandamál í
heilbrigðiskerfinu. Vinkona dóttur
minnar á tveggja ára gamla dóttur
sem hefur þroskast mjög hægt og
er með mjög stóran haus. Hún er
með nýja stökkbreytingu sem finnst
hvorki í móður hennar né föður og
veldur því að heilinn er vanþroska.
Hennar örlög eru að mestu ráðin af
því einu að einn einasti niturbasi af
þremur milljörðum lenti á röngum
stað.“
Hausinn lagar hluti til
Þú ert vísindamaður en einnig mik-
ill listunnandi. Hvaða máli skiptir
listin í þínu lífi?
„Ég les bækur og hlusta á tón-
list og horfi stundum á myndlist.
Það er bara hluti af daglegu lífi,
eins og að bursta í sér tennurnar. Ég
rekst á vísindamenn af öllum gerð-
um og stærðum. Ég þekki vísinda-
menn sem eru afskaplega vélrænir
í nálgun sinni á vísindi. Þeir taka
einungis eitt skref í einu, fikra sig
áfram ákveðna braut þar sem ljóst
er hvað kemur næst. Svo þekki ég
vísindamenn sem eru afskaplega
miklir ævintýramenn og þeir eru
langskemmtilegastir og gera eitt-
hvað sem er raunverulega nýtt.
Það má ekki gleyma því að
tungumálið er tækið sem við hugs-
um með. Eina leiðin fyrir fólk til að
þjálfa sig í að nota tungumál þannig
að það geti hugsað eitthvað nýtt,
sagt eitthvað nýtt og gert eitthvað
nýtt er að lesa bókmenntir. Þetta er
allavega mín réttlæting fyrir því að
eyða eins miklum tíma og ég get í
það að lesa góðar bækur. Mér finnst
það líka svo gaman. Ég held því
fram að bókmenntir séu æðri öllum
listum, nema kannski tónlist. Tón-
listin er það sem er næst Guði.
Það er svo merkilegt hvað maður
man og hvernig. Um daginn var ég
að klára að lesa Sjálfstætt fólk, ég
hafði ekki lesið hana í nokkra ára-
tugi. Ég las hana upphátt vegna
þess að hljómurinn í tungumálinu
hjá Laxness er svo skemmtilegur.
Ég var alveg viss um að ég kynni
utanað vísur sem Bjartur orti til
Ástu Sóllilju. Það reyndist rétt að
ég kunni þær fyrri. Seinni vísurnar
eru þrjár en ég var alltaf sannfærður
um að þær hefðu bara verið ein og
taldi mig kunna þá vísu utanað. Ég
hafði sem sagt fyrir áratugum búið
til eina vísu út úr þremur. Þannig að
hausinn lagar hluti svolítið til, en á
ómeðvitaðan hátt.
Fyrir sextíu og einu ári sá ég bíó-
mynd í Trípóli-bíói sem heitir The
Scarlet Pimpernel. Ég var sjö ára
gamall og kunni ekki eitt einasta
orð í ensku og í þá daga voru engir
textar.
Rúmum þrjátíu árum síðar var
ég að keyra dóttur mína og vinkonu
hennar í bíó í Chicago þar sem við
bjuggum þá. Þá allt í einu skýtur
þessari vísu upp í huga mér:
Is he here or is he there?
the French are seeking everywhere
is he in heaven or is he in hell?
the elusive scarlet pimpernel
Þessi litli strákur hafði lært þessa
vísu án þess að gera sér grein fyrir
því. Áratugum seinna spruttu orðin
upp í huga hans. Hvernig gerist
þetta? Ég hef ekki hugmynd um
það. Annars vegar er þessi vísa sem
ég hafði lært utanað lítill strákur og
ekki haft hugmynd um hvað þýddi.
Hins vegar eldri pjakkur sem vissi
hvað orðin þýddu en mundi þau
ekki utanað svo hann bjó til um-
gjörð utan um innihaldið. Heilinn
er furðulegt fyrirbæri.“
Miðpunktur tilfinninganna
Þú talaðir um barnabörnin fyrr
í þessu viðtali. Hvað áttu mörg
barnabörn?
„Ég á sex barnabörn. Ég horfi
fyrst og fremst á þau sem þau sjálf.
Þau eru yndisleg og miklir vinir
mínir, ótrúlega flott og dugleg.
Börnin mín eru hundrað þúsund
sinnum betri foreldrar en ég var
nokkurn tímann. Ég fæddist 1949
og karlmenn af minni kynslóð áttu
einfaldlega að færa björg í bú, ekki
sinna börnum. Þetta var ennþá
verra þegar ég var að alast upp.
Þessi börn eru í miðpunkti til-
finninga minna þessa dagana.
Þessar þrjár stelpur sem búa hér á
Seltjarnarnesi og þrír strákar sem
búa úti í Los Angeles eru fulltrúar
þeirrar kynslóðar sem við berum
ábyrgð á að færa heim sem hægt er
að búa í. Það skiptir gífur lega miklu
máli að við öxlum þá ábyrgð.
Ég hef gaman af því að
Svanhildur, dóttir mín, eyðir sínum
frítíma ýmist í að sitja í stjórn for-
eldrafélags skólans sem strákarnir
hennar ganga í, og hefur verið for-
maður þess félags í langan tíma, og
þess að skipuleggja mótmæli gegn
Trump, sem er óskaplega dapurleg-
ur fulltrúi þeirrar þjóðar.“
Þú bjóst lengi í Bandaríkjunum,
hefurðu hlýjar taugar til þessa stór-
veldis?
„Þar bjó ég í tuttugu ár og er
mjög þakklátur bandarísku sam-
félagi. Það tók vel á móti mér og
þeir eiginleikar mínir sem kennar-
ar mínir í læknadeild bölvuðu mér
fyrir voru eiginleikar sem mér var
hampað fyrir í bandarísku samfé-
lagi. Mönnum við læknadeild Há-
skóla Íslands var illa við að nem-
endur hugsuðu öðruvísi. Í góðum
skólum í Bandaríkjunum, þar sem
ég var, voru nemendur hvattir til
að hugsa öðruvísi. Ég vona að þetta
hafi breyst í læknadeild Háskóla Ís-
lands, sem er deild sem ég þekki
reyndar ekkert til lengur.“
Finnst þér ríkjandi hneigð í þjóð-
félaginu að allir eigi að hugsa eins?
„Mér finnst þetta fínt samfélag.
Mér finnst pólitíkin léleg en fólkið
skemmtilegt. Ég vil hvergi annars
staðar búa.“ n
„Ég átta mig heldur ekki
almennilega á því á
hvaða forsendum menn rufu
þessa ríkisstjórn. Mér finnst
sem að baki þessu búi heldur
moðkenndar hugsanir.
„Margir Íslendingar
gera sér ekki al-
veg grein fyrir þessum ár-
angri. Þeir halda enn að
við séum að plata þá en
það truflar okkur ekki. Við
fáum þá bara að vera í
friði.
Kári Stefánsson „Það er skylda okkar að
hugsa um það samfélag sem við búum í.“