Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Qupperneq 56
32 fólk Helgarblað 22. september 2017
n Elínborg Halldórsdóttir seldi unaðsreitinn á Akranes
S
öngkonan Elínborg Hall-
dórsdóttir, eða Ellý í Q4U
eins og hún er best þekkt,
hefur búið á Akranesi í 15
ár. Síðustu níu ár hefur hún búið
í húsi að Skólabraut, þar sem hún
var búin að hreiðra vel um sig og
dætur sínar, en núna hyggst hún
breyta um stefnu í lífinu og flytja
til Slóvakíu.
„Dóttir mín, Erna Gunnþórs-
dóttir, er í læknanámi í Slóvakíu
og er að fara á fjórða ár og klára.
Hún á einnig von á þriðja syn-
inum, þannig að ég er að flytja
til hennar og verð au-pair hjá
henni,“ segir Ellý spennt fyrir nýj-
um ævintýrum. Tengdasonurinn,
eiginmaður Ernu, Óli Rúnar Jóns-
son, og synirnir, Jón Ingi, 9 ára,
og Gunnþór Elís, 8 ára, flytja hins
vegar heim til Íslands.
Seldi allt úr garðinum
Á þeim níu árum sem Ellý hefur
búið í húsinu við Skólabraut, hef-
ur hún stöðugt verið að breyta
og bæta í garðinum hjá sér. Var
garðurinn einstakur sælureitur
sem tók stöðugum breytingum
samkvæmt sköpun Ellýjar. Í til-
efni flutninganna tók hún sig hins
vegar til og seldi allt úr garðinum.
„Ég seldi blóm, tré, blóma-
potta og skreytingar,“ segir Ellý.
Í dag, föstudaginn 22. septem-
ber, opnar hún síðan sýningu að
Skólabraut 18 á Akranesi. „Þar
verð ég með til sölu málverkin
mín, jólaskraut sem ég hef búið
til í nokkur ár og fleira. Ég stefni
á að selja sem mest af því sem
ég hef verið að vinna. Ég ætla að
setja upp skemmtilega sýningu
og vona að sem flestir komi, það
er bara skemmtilegt að taka smá
bíltúr upp á Akranes,“ segir Ellý,
sem verður með sýninguna opna
fram eftir næstu viku, og verður
hún sú síðasta sem hún heldur á
Íslandi, allavega í bili. n
Ellý SöðlAr um, Sýning
og SlóvAkíA frAmundAn
Einstakur unaðsreitur
Ellý var búin að breyta garðinum fram og til
baka í gegnum árin, en nú er hann seldur til
nýrra eigenda.
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
Listaverk úr stautum
Málaðir stautar innan úr
heyrúllum sem Ellý málaði á.
Hafmeyjan horfir á hafið Hafmeyjan horfir út á úfið haf í mynd Ellýjar.
Konur og hafið Myndir Ellýjar eru litríkar og fa
llegar.