Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Side 58
34 fólk Helgarblað 22. september 2017
F
östudaginn 22. september
stendur Æskulýðsvett
vangurinn fyrir ráðstefnu í
Hörpu sem ber yfirskriftina
„Hatursorðræða í íslensku sam
félagi“. Þorsteinn Víglundsson fé
lagsmálaráðherra opnar ráðstefn
una klukkan 9.00 og mun henni
ljúka um hádegi. Á mælenda
skrá eru meðal annars Sema Erla
Serdar verkefnastýra, María Helga
Guðmundsdóttir, formaður Sam
takanna '78, og Pape Mamadou
Faye, framherji knattspyrnuliðs
Víkings í Ólafsvík, en hann hefur
talað opinskátt um það kynþátta
hatur sem hann hefur orðið fyrir
síðan hann flutti til Íslands árið
2003.
Gamaldags orð særa meira
Pape segir ráðstefnuna vera lið
í því að finna leiðir til að berjast
gegn hatursorðræðu og kynþátta
hatri í íslensku samfélagi. „Ég var
beðinn um að taka þátt og segja
frá því sem ég hef lent í í gegn
um tíðina. Þarna verður það
rætt hverju sé hægt að breyta og
hvernig eigi að koma skilaboðum
til yngri kynslóðarinnar.“
Pape fæddist í Senegal og ólst
þar upp með föður sínum til 11
ára aldurs. Þegar faðir hans flutti
til Bretlands var ákveðið að hann
myndi flytja til móður sinnar sem
hafði þá búið á Íslandi í fjögur
ár. Koman til Íslands var honum
mikil viðbrigði. „Ég hafði ekki
hugmynd um hvað kynþáttahatur
var fyrr en ég flutti til Íslands.“
Hann fór snemma að æfa
knattspyrnu með Val og síðar
Fylki og fann þar strax fyrir kyn
þáttahatri, sér í lagi frá foreldrum
drengja úr andstæðingaliðum
sem kölluðu svívirðingar inn á
völlinn. „Þetta gerðist oftar þegar
ég var yngri. Þegar maður er lítill
er auðveldara að brjóta mann nið
ur.“ Þetta skynjaði hann vel jafn
vel þótt hann væri ekki altalandi
á íslensku á þeim tíma. Liðsfé
lagar hans og þjálfarar þurftu að
útskýra sum orðin fyrir honum.
„Sum af þessum orðum særa mig
meira en Norðið. Þau notuðu
gamaldags orð eins og surtur.“ Í
eitt skipti fékk hann beina morð
hótun í nafnlausu SMSskeyti
fyrir leik gegn Fjölni. Sérstakar
ráðstafanir voru gerðar fyrir leik
inn og tveir lögreglubílar vöktuðu
svæðið.
Ástandið hefur skánað til
muna eftir að hann kom upp í
meistaraflokk en þó eru til leik
menn sem hreyta svívirðingum í
hann þegar dómarinn sér ekki til.
Pape segir málið einnig erfitt fyrir
liðsfélagana. „Þeir eru ekki vissir
um hvernig þeir eigi að bregðast
við þessu.“ Þjálfari Fylkis, sem
Pape spilaði með um langa hríð,
kom honum þó ávallt til varnar.
„Það kom aldrei til greina að
hætta,“ segir Pape um áhrif kyn
þáttahatursins í knattspyrnunni.
Hann segist hafa hitt marga
útlendinga sem höfðu áhuga á
íþróttum og stóðu sig vel í yngri
flokkum en þoldu ekki það aðkast
sem þeir urðu fyrir. „Ég elska fót
bolta og ætlaði ekki að láta þetta
stöðva mig, sama hversu erfitt
þetta var.“
Potturinn tæmist
Pape segir að fjölgun ferðamanna
og innflytjenda hafi gert lífið auð
veldara fyrir hann. „Þegar ég flutti
hingað átti ég erfitt með að sætta
mig við hvernig samfélagið brást
við mér.“ Hvert sem hann fór var
starað á hann. „Hvort sem það
var í búðum eða í strætisvögnum.
Þetta var mjög truflandi.“
Hann segir hið dulda kynþátta
hatur særa meira en hið opna.
Kynþáttahatur sem fólk gerir sér
jafnvel ekki grein fyrir að það sé
haldið. „Ég lendi oft í því að fólk
reynir að forðast mig og vill ekki
sitja við hliðina á mér í strætis
vögnum, jafnvel þó að vagninn sé
þétt setinn. Mjög oft er sætið við
hliðina á mér tómt en samt kýs
fólk að standa.“
Pape segir þetta sérstaklega
áberandi þegar hann fer í sund.
„Í hverri sundlaug er yfirleitt einn
pottur með þægilegasta hitastig
inu sem flestir eru í. Ég hef oft
lent í því að ef ég sest í heitan pott
tæmist hann á tveimur mínútum.
Fólk fer í burtu og enginn kemur
í staðinn. Sumir virðast vera á
leiðinni í pottinn þegar þeir sjá
mig og hætta þá við. Þetta er mest
særandi rasisminn.“
Kynþáttahatur blossar iðulega
upp í næturlífinu í miðborg
Reykjavíkur og Pape hefur ekki
farið varhluta af því. Hann lend
ir í því að drukknir og ókunnugir
karlmenn ganga upp að honum
og segja eitthvað á borð við „Hei,
svertingjadjöfull. Fokk jú!“ Þeir
hafa þá manað sig upp í þetta
með drykkju. Pape hefur ekki lent
í beinum átökum vegna slíkra
mála en nokkrum sinnum hafa
dyraverðir þurft að skerast í leik
inn áður en illa færi.
Hann segir einnig marga kom
ast upp með að segja niðrandi
orð um hörundsdökkt fólk bæði á
samfélagsmiðlum og annars stað
ar, þar með talið fjölmiðlafólk og
íþróttafréttamenn, en aðrir láti
eins og þeir hafi ekki heyrt eða
lesið það. „Þetta finnst mér stórt
vandamál. Ég hef oft rætt þetta við
fólk en það hundsar þetta bara.“
Langar að verða faðir
Pape á nokkuð stóra fjölskyldu
sem býr hér á Íslandi. Auk móð
ur hans búa fjórir bræður hennar
og fjölskyldur þeirra hér. Þau hafa
öll kynnst kynþáttahatri í einni
eða annarri mynd. „Einn frændi
minn er kvæntur hvítri konu frá
Frakklandi. Þau hafa nokkrum
sinnum lent í því að fólk segi ljóta
og rasíska hluti við þau og börn
in þeirra, til dæmis þegar þau fara
út í matvörubúð í kringum fjölda
fólks. Konan hefur brotnað alger
lega niður fyrir framan börnin sín
út í búð.“
Þetta hafði mikil áhrif á Pape.
„Draumurinn er að verða faðir.
En það sem hræðir mig mest – og
þessi hugsun leitar á mig á hverj
um degi – er: Ég vil ekki að barnið
mitt verði fyrir aðkasti á götum
úti fyrir það eitt að vera dökkt
á hörund.“ Gildir þá einu hvort
það sé af völdum fullorðinna eða
annarra barna. „Ég yrði ekki til
staðar allan sólarhringinn. Barnið
myndi sækja skóla og frístundir.
Börn læra mörg hver kynþátta
hatur af foreldrum sínum og beita
því gegn öðrum börnum. Börn
koma oft upp að mér og kalla
„negri“ eða eitthvað annað í þeim
dúr. Hvað get ég gert í því? Ekki
neitt. Maður er ekkert sár út í litla
guttann, en maður er sár út í for
eldrana.“ n
„Maður er ekkert sár
út í litla guttann, en
maður er sár út í foreldrana.
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is „Ég elska
fótbolta
og ætlaði ekki að
láta þetta stöðva
mig, sama hversu
erfitt þetta var.
n „Ef ég sest í heitan pott tæmist hann á tveimur mínútum“ n Foreldrarnir verstir
Framherji Víkings lýsir
kynþáttaFOrDÓmUm
Pape Mamadou Faye „Ég hafði ekki
hugmynd um hvað kynþáttahatur var fyrr
en ég flutti til Íslands.“ Mynd brandurj