Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Page 69

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Page 69
KYNNING Fullkominn gólfhiti með litlum fyrirvara Það færist sífellt í vöxt að gólfhiti sé valinn sem kyndingarkostur í húsum og flest ný hús eru með gólfhita. Einnig er algengt að skipt sé yfir í gólfhita þegar húsnæði er gert upp og jafnvel bara þegar skipt er um gólfefni. Kostir gólfhitakyndingar eru margir, til dæmis sá að þá losna húsnæðiseigendur við ofna af veggjunum. Fyrirtæk­ ið Gólfhitalagnir ehf. býður upp á mjög vandaða og fljót­ virka þjónustu á þessu sviði og er með fullkomna fræsivél sem getur fræst raufar ofan í öll steingólf. Á fræsivélinni er öflug ryksuga svo ryk og óhreinindi eru í lágmarki við þessa vinnu. Eftir fræsingu leggja Gólfhitalagnir síðan rörin ofan í raufarnar og þá er hægt að leggja gólfefnið á, parket eða flísar. „Við sérhæfum okkur í að fræsa og leggja gólfhita­ rörin í raufarnar, við tengjum ekki gólfhitann heldur sér pípulagnameistari hússins um það,“ segir Guðni Vilberg Baldursson hjá Gólfhitalögn­ um. Hann stofnaði fyrirtækið árið 2013 ásamt Brynjari Kristjánssyni pípulagnameist­ ara. Að sögn Guðna vinna þeir mest í íbúðarhúsnæði en fræsa þó líka og leggja rör í gólf í verslunum og iðnaðar­ húsnæði. Verkefnin eru síðan mjög mismunandi að umfangi: „Við erum að fræsa og leggja í rör í allt frá einu baðherbergi og upp í heilu húsin,“ segir Guðni. Aðspurður segir hann að það hafi verið góður stíg­ andi í verkefnum undanfarið og ljóst er að gólfhiti færist mjög í vöxt: „Það gefur okkur líka ákveðna sérstöðu að við erum ekki nema daginn að fræsa og leggja rörin í allt að 150 fermetra hús, nánast ryklaust. Tíminn skiptir máli þegar maður er með heimilið undirlagt og það kemur sér vel fyrir fólk hvað þetta tekur stuttan tíma. Auk þess mæt­ um við líka á staðinn með litlum fyrirvara.“ Gólfhitalagnir bjóða því upp á fljótlega þjónustu með litlu raski en niðurstaðan er frábær gólfhiti og ofnalausir veggir. Á heimasíðu fyrirtæk­ isins, golfhitalagnir.is, er hægt að leggja inn tilboðsbeiðni og er henni yfirleitt svarað innan klukkustundar. Það tilboð gildir svo lengi sem gólf eru hrein og slétt þegar verkið hefst. Því liggur allur kostnað­ ur fyrir áður en verkið hefst. Fyrirtækið er staðsett að Krókhálsi 5-E, 110 Reykjavík. Símanúmer er 571-3700, en góðar upplýsingar er að hafa á heimasíðunni, golfhitalagn- ir.is. Einnig er mikið úrval af myndum og myndskeiðum á Facebook-síðu Gólfhitalagna. GólFHiTAlAGnir EHF.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.