Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Síða 69
KYNNING
Fullkominn gólfhiti
með litlum fyrirvara
Það færist sífellt í vöxt
að gólfhiti sé valinn sem
kyndingarkostur í húsum og
flest ný hús eru með gólfhita.
Einnig er algengt að skipt sé
yfir í gólfhita þegar húsnæði
er gert upp og jafnvel bara
þegar skipt er um gólfefni.
Kostir gólfhitakyndingar eru
margir, til dæmis sá að þá
losna húsnæðiseigendur við
ofna af veggjunum. Fyrirtæk
ið Gólfhitalagnir ehf. býður
upp á mjög vandaða og fljót
virka þjónustu á þessu sviði
og er með fullkomna fræsivél
sem getur fræst raufar ofan
í öll steingólf. Á fræsivélinni
er öflug ryksuga svo ryk og
óhreinindi eru í lágmarki við
þessa vinnu. Eftir fræsingu
leggja Gólfhitalagnir síðan
rörin ofan í raufarnar og þá
er hægt að leggja gólfefnið á,
parket eða flísar.
„Við sérhæfum okkur í að
fræsa og leggja gólfhita
rörin í raufarnar, við tengjum
ekki gólfhitann heldur sér
pípulagnameistari hússins
um það,“ segir Guðni Vilberg
Baldursson hjá Gólfhitalögn
um. Hann stofnaði fyrirtækið
árið 2013 ásamt Brynjari
Kristjánssyni pípulagnameist
ara. Að sögn Guðna vinna
þeir mest í íbúðarhúsnæði en
fræsa þó líka og leggja rör í
gólf í verslunum og iðnaðar
húsnæði.
Verkefnin eru síðan mjög
mismunandi að umfangi: „Við
erum að fræsa og leggja í rör
í allt frá einu baðherbergi og
upp í heilu húsin,“ segir Guðni.
Aðspurður segir hann að
það hafi verið góður stíg
andi í verkefnum undanfarið
og ljóst er að gólfhiti færist
mjög í vöxt: „Það gefur okkur
líka ákveðna sérstöðu að við
erum ekki nema daginn að
fræsa og leggja rörin í allt
að 150 fermetra hús, nánast
ryklaust. Tíminn skiptir máli
þegar maður er með heimilið
undirlagt og það kemur sér
vel fyrir fólk hvað þetta tekur
stuttan tíma. Auk þess mæt
um við líka á staðinn með
litlum fyrirvara.“
Gólfhitalagnir bjóða því
upp á fljótlega þjónustu með
litlu raski en niðurstaðan er
frábær gólfhiti og ofnalausir
veggir. Á heimasíðu fyrirtæk
isins, golfhitalagnir.is, er hægt
að leggja inn tilboðsbeiðni og
er henni yfirleitt svarað innan
klukkustundar. Það tilboð
gildir svo lengi sem gólf eru
hrein og slétt þegar verkið
hefst. Því liggur allur kostnað
ur fyrir áður en verkið hefst.
Fyrirtækið er staðsett að
Krókhálsi 5-E, 110 Reykjavík.
Símanúmer er 571-3700, en
góðar upplýsingar er að hafa
á heimasíðunni, golfhitalagn-
ir.is. Einnig er mikið úrval af
myndum og myndskeiðum á
Facebook-síðu Gólfhitalagna.
GólFHiTAlAGnir EHF.