Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Blaðsíða 70

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Blaðsíða 70
46 fólk Helgarblað 22. september 2017 N ý bók um Jóhann Karl, fyrr- verandi Spánarkonung, opinberar hann sem blygð- unarlausan flagara sem átt hefur í áratugi vingott við þúsund- ir kvenna. Höfundur bókarinnar, Amado Martinez, fyrrverandi hershöfðingi, segist hafa stuðst við leyniskjöl við samningu bókar- innar. Einhverjum kann að þykja fullyrðingar um að konungurinn hafi átt þúsundir ástkvenna ýkju- kenndar, en ævisagnahöfundur- inn fullyrðir að þar sé ekkert of- sagt. Hann segir að þegnar ríkisins eigi rétt á því að vita af svefnher- bergissiðum konungs. Fyrir þremur árum afsalaði Jó- hann Karl krúnunni til sonar síns, Felipe. Stuðningur við konungs- dæmið var þá einungi 30 prósent, en er nú kominn upp í 61 prósent, þökk sé Felipe og eiginkonu hans, Letiziu. Jóhann Karl hafði þurft að þola vaxandi óvinsældir síðustu árin sem hann ríkti vegna eyðslu- semi og lauslætis. Árið 2012 var upplýst að á sama tíma og lands- menn hans glímdu við alvarlega efnahagskreppu hefði hann ver- ið á fílaveiðum í Botsvana með þýskri ástkonu. Enginn fyrirmyndar eiginmaður Hin nýja ævisaga hefur aftur sett kvennafar konungsins í kastljós- ið. Hann hefur einnig sést opin- berlega með Mörtu Gaya, vell- auðugri fráskilinni konu, sem hefur ekki orðið til að minnka áhuga fjölmiðla á kvennamálum hans. Lengi hefur verið vitað að Jóhann Karl væri enginn fyrir- myndareiginmaður. Hann kvænt- ist hinni grísku Sofiu árið 1962 og saman eiga þau þrjú börn, Elenu, Cristinu og Felipe. Konungurinn er síðan sagður eiga tvö börn utan hjónabands. Jóhann Karl varð konungur Spánar árið 1975 og Sofia er sögð hafa komið að honum með leikkonu nokkrum mánuðum síðar. Hún brást skiljanlega ekki vel við. Jóhann Karl er óseðjandi kvennamaður og gerðist til dæm- is ítrekað nærgöngull við Díönu prinsessu þegar hún var í sumar- leyfi á Spáni árið 1986 ásamt eigin- manni sínum og syni. Díana sagðist kunna vel við konunginn, en sagði óþægilegt hversu mjög hann hefði lagt sig eftir því að snerta hana. Fjölskylduharmleikur Jóhann Karl fæddist á Ítalíu þar sem fjölskylda hans var í útlegð. Faðir hans var sonur Alfonso XIII sem var síðasti konungur Spánar áður en konungdæmið var afnumið og Franco varð einræðisherra. Jóhann Karl kom til Spánar árið 1947 til að stunda nám. Árið 1956 var Jóhann Karl, þá átján ára gamall, í páskafríi á heimili fjölskyldunnar í Portúgal. Bróðir hans, hinn fimmtán ára gamli Alfonso, hljóp inn í herbergi til að heilsa bróður sínum. Sagan segir að Jóhann Karl hafi verið að leika sér með byssu sem Franco hafði gefið honum. Skot hljóp úr byssunni og varð Alfonso að bana. Að sögn starfsmanns hallarinnar hafði Jóhann Karl, sem vissi ekki að byssan var hlaðin, beint henni að bróður sínum og tekið í gikkinn. Á valdaárum Franco stóð Jóhann Karl iðulega við hlið hans við opinberar athafnir og bar lof á hann. Hann átti þó einnig leyni- fundi með stjórnarandstöðuleið- togum. Franco skellti skollaeyrum við viðvörunarröddum ráðgjafa sinna sem sögðu Jóhann Karl ekki vera traustan bandamann. Eftir dauða Franco tók Jóhann Karl við endurreistu konungdæmi. Árið 1981 flutti hann sjónvarpsávarp til að kæfa í fæðingu yfirvofandi valdarán hersins. Þar átti hann sína glæstustu stund og honum er þakkað að valdaráns tilraunin rann út í sandinn. Jóhann Karl naut vinsælda meðal þegna sinna sem töldu hann umbóta- sinnaðan mann. Eiginkona hans, Sofia, er hins vegar afar íhalds- öm, andstæðingur fóstureyðinga og mótfallin hjónabandi samkyn- hneigðra. Jóhann Karl og eigin- kona hans sjást saman við opin- berar athafnir en hjónabandið er einungis að nafninu til. Vildi ekki láta soninn bíða of lengi Árið 2014 afsalaði Jóhann Karl sér krúnunni, 76 ára gamall, til sonar síns, Felipe. Hann er sagður hafa sagt að hann vildi ekki að sonur sinn yrði að bíða jafn lengi eftir að verða konungur og Karl Breta- prins. Skoðanakannanir sýndu að meginþorri landsmanna var sáttur við þá ákvörðun hans. Felipe og eiginkona hans, Letizia, sem er fyrrverandi sjónvarps þulur, njóta mikilla vinsælda meðal þegna sinna. Það sama á ekki við um systur Felipe, Christinu. Hún og eiginmaður hennar, Inaki Urann- garin, voru ákærð fyrir skattsvik og fjárdrátt. Christina var sýknuð en Inaki var dæmdur í sex ára fang- elsi. n HiNN kveNsami JóHaNN karl n Bók um spánarkonung vekur umtal n sagður hafa átt þúsundir ástkvenna Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is „Einhverjum kann að þykja fullyrðingar um að konungurinn hafi átt þúsundir ástkvenna ýkju- kenndar, en ævisagnahöfundurinn fullyrðir að þar sé ekkert ofsagt. Jóhann Karl og Sofia Ný bók þar sem fjallað er um kvennafar konungs hefur vakið umtal. Felipe og Letizia ásamt dætrum sínum Fjölskyldan nýtur vinsælda. Á góðri stundu Jóhann Karl og Letizia tengdadóttir hans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.