Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2017, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2017, Side 8
8 Helgarblað 3. nóvember 2017fréttir A rngrímur Vídalín íslensku­ fræðingur varði doktors­ ritgerð sína fimmtudaginn 2. nóvember en hann vann að henni í fimm ár. Hún ber heitið Skuggsjá sjálfsins og fjallar um skrímsli og afmennskun í ís­ lenskum miðaldabókmenntum. Ritgerðin fellur undir hatt rann­ sóknarverkefnis Ármanns Jakobs­ sonar um hið yfirnáttúrulega, Encounters with the Paranormal. Skrímslin á jaðri veraldar Arngrímur rannsakaði evrópsk lærdómsrit, íslensk rit af sama meiði og íslensk sagnarit. Þessi rit voru skrifuð af lærðum mönn­ um og kristileg áhrif leyna sér ekki í sagnaritum eins og Íslendinga­ sögunum. Hugmyndirnar um skrímsli koma inn með kristn­ inni en ræturnar liggja í fornöld. Arngrímur segir að gríski sagna­ ritarinn Heródótus (490–425 f.Kr) hafi fjallað um skrímsli en þó ekki á trúarlegan máta. Plíníus eldri (23– 79 e.Kr) fastmótaði hugmyndirnar um skrímsli á framandi slóðum utan Evrópu og þær náðu mikilli útbreiðslu. Ágústínus kirkjufaðir (354–430), einn mesti áhrifamað­ ur kristninnar, færði síðan fyrir því rök að skrímslin væru hluti af sköpunarverki guðs. Hugmyndirnar ganga í gróf­ um dráttum út á það að utan hinn­ ar kristnu Evrópu, búi þjóðflokkar hættulegra skrímsla af ýmsum toga eða skrímsl eins og Arngrímur kall­ ar þau. Þau má sjá á fjölda landa­ korta frá miðöldum. „Þessi skrímsl tengjast hugmyndum um endalok heimsins eins og birtist í Opinber­ unarbókinni. Þá eru það hinar for­ dæmdu þjóðir, afkomendur Kains og Hams, sem munu berjast með andkristi við endalok heimsins og þar með er búið að undirstrika þennan kjarnaótta við útlendinginn og villutrúarmanninn. Þess vegna er svo mikilvægt að staðsetja þessi fyrirbæri á heimskortum.“ Landfræðilega er Ísland nálægt hinum skrímslavædda jaðri en það er hægt að sjá það í sagnaritun að höfundar hafa reynt að færa út jaðarinn. Annars vegar með því að skrifa um ferðir Íslendinga til aust­ urs. „Þar sem þeir komast í tæri við helgidóminn og verða nálega að heilögum mönnum. Menn eins og Eiríkur og Ingvar víðförli.“ En einnig með frásögnum af ferðum manna til Norður­Ameríku. „Þar staðsetja þeir skrælingja sem þeir lýsa með heldur ómanneskjuleg­ um hætti og einfætlinga sem eru meðal þessara alþekktu skrímsla úr kristilegri lærdómshefð.“ Kynþáttahyggja í Íslendingasögunum Arngrímur segir fræðimenn ekki á einu máli um hvort kynþátta­ hyggja hafi verið til fyrir 19. öld því þá varð hugtakið til. Sjálfur telur hann kynþáttahyggju að­ eins kerfislega útleggingu á hug­ myndum sem hafa verið til stað­ ar frá elstu heimildum. „Nýlegar rannsóknir á bæði fornaldar­ og miðaldatextum sýna það sem við köllum frumkynþáttabundna orð­ ræðu í þeirri merkingu að ekki er fjallað um kynþætti sem slíka. Þessi orðræða er alveg klárlega til staðar, til dæmis hjá Aristótel­ esi sem skiptir mannkyni í tvennt, annars vegar Grikki og hins vegar Barbara. Gyðingar eru oft á tíð­ um afmennskaðir og jaðarsettir, sömuleiðis múslimar og Afríku­ menn. Mikið er gert úr þessum út­ litslega mun á þeim og okkur.“ Hinum svokölluðu blámönn­ um er lýst með hangandi varir og drjúpandi augnlok, bláir eða svartir á lit. Orðið er þó nokkuð flókið og hefur verið notað yfir Afríkumenn, múslima og Mára í gegnum tíðina. „Í raun og veru er þetta kynþáttahyggja en hefur verið kallað frumkynþáttahyggja í fræðunum.“ Hann segir þessa kyn­ þáttahyggju koma fyrir í íslenskum sagnaritum. En eru þá Íslendinga­ sögurnar rasískar? „Ekki beinlínis, en þær eru byggðar á þessari sömu hugmynd sem var svo mikilvæg kristnu fólki á miðöldum um hina réttu trú. Hún undirstrikar þeirra siðferði og að útlitið afhjúpi inn­ rætið. Hinir kristnu eru ljósir yfir­ litum og fagrir en hinir eru svart­ ir og illilegir. En það eru vissulega atriði í sumum Íslendingasögun­ um sem okkur myndi þykja mjög rasísk nú á dögum.“ Hann segir að ekki sé hægt að skoða þessar heimildir út frá sjónarhóli nútím­ ans. Íslendingar höfðu fæstir séð fólk af öðrum kynþáttum með ber­ um augum og trúði því sennilega að það væri skrímsli. Konur skrímslisgerðar sem skessur Í ritgerðinni fjallar Arngrímur um ýmsar týpur af skrímslum. „Upp­ áhaldsskrímslið mitt er það sem heitir á latínu blemmye en ég ákvað að nefna blemjur á íslensku. Þær búa búa í Norður­Afríku, eru höf­ uðlausar og með andlit í bringunni. Síðan eru hundshöfðarnir sígildir, sem gelta en hafa ekkert tungu­ mál. Á síðari öldum var þeim spyrt saman við múslima.“ Þekktustu skrímslin á Íslandi eru tröll en Arngrímur segir tröll­ in vera misskilin í miðaldabók­ menntunum. „Við sjáum fyrir okk­ ur einhverjar klunnalegar fígúrur sem verða að steini í sólinni en það er miklu yngri hugmynd. Tröll getur verið margs konar óvættur og orðið var samheiti yfir skrímsl á miðöldum. Oftast eru skrímsl ekki kölluð skrímsl í textum held­ ur frekar tröll og stundum skrípi.“ Arngrímur segir skrímslin vera ágætis myndlíkingu fyrir hina óbeisluðu náttúru. „Þau eru í and­ stöðu við hið siðmenntaða og eitt­ hvað sem við þurfum að brjóta undir okkur og ná stjórn á. Þess vegna eru langflest nafngreind skrímsl í íslenskum miðaldabók­ menntum konur, sér í lagi skessur. Þær eru alltaf tengdar við hið nátt­ úrulega, líkamlegar og kynferðis­ lega afkáralegar. Konur eru því að miklu leyti skrímslisgerðar í þess­ um ritum.“ Í ritgerðinni eru einnig nefnd hin ógurlegu sjávarskrímsli sem koma fyrir í frásögnum og á kort­ um. „Þau þjóna þeim tilgangi að sýna hversu framandi tiltekið um­ hverfi er. Ef þú ert kominn inn á hafsvæði þar sem allt er krökkt af skrímslum þá veistu að þú ert kominn út fyrir hið siðmenntaða og kannaða svæði heimsins.“ Þetta á sér rætur í guðfræðinni, til dæm­ is hin íslenska hafgufa sem Arn­ grímur segir útgáfu af svokölluð­ um eyfiski. Hann er risavaxinn og lítur út fyrir að vera land. En þegar sæfarar leggja bátum sín­ um, kveikja elda og setja upp tjöld sekkur hann í hafið og drekkir þeim. „Eins og djöfullinn tælir hina óstaðfestu til sín og dregur þá með sér til helvítis.“ Getum ekki þekkt skrímslin Arngrímur segir afmennskun líka þeirri sem birtist okkur með skrímslunum vera gamla aðferð sem enn sé notuð. „Það er ekki hægt að þekkja skrímslið. Þegar það er einhugur um sekt einhvers, eins og til dæmis austurríska barn­ aníðingsins Josephs Fritzl, þá er alltaf talað um skrímsli vegna þess að fólk neitar að horfast í augu við að fólk gerir slíka hluti. Þetta er í raun og veru byggt á gamalli arf­ leifð um að hið óþekkta og fram­ andi geti ekki verið mennskt.“ Þetta kom glöggt fram þegar bók Åsne Seierstad um fjöldamorðingj­ ann Anders Breivik, Einn af okkur, kom út. „Allt varð vitlaust. Fólk sagði að hann væri ekki einn af okkur, hann væri skrímsli. Þarna kom fram tregða til að viðurkenna að skrímslin eru við sjálf.“ Hann segir slíka afmennskun margoft hafa komið fram til dæm­ is í stríðum, sér í lagi hjá nasistum í seinni heimsstyrjöldinni og að við sjáum þetta enn þá í fjölmiðl­ um, til dæmis varðandi múslima. „Það er ákveðin tilhneiging til þess að finna einhver hentug dæmi um einhverja erkitýpu hins vonda múslima og stilla henni upp sem fulltrúa hinna, sem séu þá í and­ stöðu við hin vestrænu gildi sem okkur þykir svo vænt um.“ n „SkrímSlin eru við Sjálf“ n frumkynþáttahyggja í sögunum n Blámenn, tröll og blemjur Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is „Þær eru alltaf tengdar við hið náttúrulega, líkamlegar og kynferðislega afkáralegar. „í raun og veru er þetta kynþátta- hyggja en hefur verið kallað frum- kynþáttahyggja í fræðunum Arngrímur Vídalín „Fólk sagði að hann væri ekki einn af okkur, hann væri skrímsli“. Mynd SiGtryGGur Ari Skrímsl af ýmsum toga Blemjur, hundshöfuð og einfótungar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.