Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2017, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2017, Page 24
24 fólk - viðtal Helgarblað 3. nóvember 2017 L ára fer í sund og Jól með Láru eru nýjar barnabækur eftir Birgittu Haukdal. Þetta eru bækur númer fimm og sex í hinum vinsæla bókaflokki hennar um Láru. „Aldrei hefði ég trúað því að ég ætti eftir að gerast rithöfundur og skrifa barnabækur, en lífið fer með mann á ótrúlegar slóðir,“ segir Birgitta. Spurð af hverju hún hafi á sínum tíma ákveðið að snúa sér að barnabókaskrifum segir hún: „Í þrjú ár bjó ég í Barcelona og það skipti mig máli að halda íslenskunni vel að ungum syni mínum, honum Víkingi Brynjari, og ég las mikið fyrir hann barna- bækur. Vegna vinnu var ég mikið á milli Barcelona og Íslands og í hverri heimsókn fór ég í bókabúð- ir hér á landi og leitaði að góðum bókum sem hentuðu honum. Það var erfitt að finna bækur sem mig langaði til að lesa fyrir hann og héldu athygli hans. Annaðhvort voru bækurnar ekki nógu fallega myndskreyttar til að grípa athygli hans eða ef þær voru fallega myndskreyttar þá vöktu sögurnar ekki athygli hans. Æ oftar fór hann að biðja mig um að segja sér sög- ur í staðinn fyrir að lesa fyrir sig. Sögurnar sem ég sagði honum voru yfirleitt um daglegt líf okkar. Ef við vorum til dæmis að fara í skíðaferð bjó ég til sögu um fjöl- skyldu sem var að fara í skíðaferð. Ég vissi hvernig bók myndi vekja áhuga hans og ákvað því að prófa að setjast niður og skrifa sögu. Það reyndist vera ótrúlega gaman, ég fékk mikið af hug- myndum og sá myndirnar fyrir mér. Ég fór að leita að teiknara. Á þessum tíma var nokkuð svipuð sýn hjá íslenskum og erlendum teiknurum, sem fór ekki saman við mínar hugmyndir. Ég fann stúlku frá Rússlandi og við byrj- uðum að vinna saman en það samstarf gekk ekki upp. Að lokum fann ég stúlku sem býr í Armeníu og við smullum saman. Hún er al- veg yndisleg og hefur sýnt mikla þolinmæði þegar ég bið hana um að teikna smáatriði sem mér finnst verða að vera á myndun- um.“ Eftir að Birgitta og fjölskylda fluttu aftur til Íslands fór hún með handrit að Lárubók, ásamt myndum, til Forlagsins sem sam- þykkti útgáfu samstundis. „Ég bjóst engan veginn við að þetta myndi ganga. Á þessum tíma var ég að eignast annað barn og gat ekki fylgt bókunum mikið eftir, en þær rötuðu samt í jólapakka „Lífið fer með mann á ótrúlegar slóðir“ Birgitta Haukdal var lengi ein vinsælasta söngkona landsins. Hún sneri sér síðan að því að skrifa barnabækur, en er þó ekki hætt að syngja. Kolbrún Bergþórsdóttir hitti Birgittu og ræddi við hana um barnabækurnar, söngferilinn og einka­ lífið. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.