Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2017, Síða 27
KYNNING
Gæðaskartgripir
á hagstæðu verði
Gullsmiðurinn og skartgripahönnuður-inn Lovísa H. Olesen
opnaði nýlega glæsilega
vefverslun, bylovisa.com, þar
sem allir skartgripir hennar
eru aðgengilegir í miklu úrvali,
á afar hagstæðu verði. Lovísa
hefur hannað og smíðað
skartgripi sem eru í senn
fágaðir og líflegir en auk þess
tekur hún við sérpöntunum
og útfærir hugmyndir við-
skiptavina sem þess óska.
„Skartgripirnir mínir eru í
heilum línum sem innihalda
hringa, eyrnalokka, armbönd
og hálsfestar,“ segir Lovísa.
Á bylovisa.com geturðu valið
mismunandi gyllingu á silfur-
skartgripunum og einnig úr
mörgum litum af steinum að
þínum smekk.
Ég var að koma með nýja
skartgripalínu núna sem
heitir Unicorn, hana er hægt
að skoða á vefsíðunni ásamt
öðrum skartgripum sem hafa
notið vinsælda undanfarin
ár,“ segir Lovísa, sem hefur
fengist við þetta fag í meira
en tíu ár, en hún útskrifaðist
í gullsmíði frá Iðnskólanum
árið 2007.
„Það var þessi klassíska
iðnnámsleið, þ.e. maður fer
á samning hjá meistara og í
skóla, ég lærði í Iðnskólanum
í Reykjavík og útskrifaðist
2007, fór þá beint í meist-
aranámið og kláraði það. Ég
hef unnið við fagið síðan þá,
bæði í innflutningi á gull-
smíðavörum og í hönnun og
smíði á eigin skartgripalínum.“
Sækir innblástur í
hversdagsleikann
Við að skoða þessa fallegu og
persónulega hönnuðu skart-
gripi vaknar sú spurning hvar
hönnuðurinn fái innblástur í
svona verk:
„Ég horfi rosalega mikið í
mynstur og form og það sem
hversdagsleikinn færir mér
hverju sinni. Ég er ekki ein af
þeim sem þurfa að fara út í
náttúruna til að fá hugmyndir
heldur sæki ég frekar í hið
daglega líf. Það er hvers-
dagsleikinn sem kveikir í mér.
Hugmyndir leita sífellt á
mig, en svo tekur úrvinnslan
við síðar og maður fer að
púsla þessu saman, það er
mjög skemmtilegt.“
Lovísa vinnur sínar eigin
skartgripalínur mest úr silfri
en gripir úr gulli eru ekki síður
í boði fyrir þá sem það vilja.
Ef farið er inn á bylovisa.com
má sjá úrvalið sem fangar
breiðan aldurshóp. Að sögn
Lovísu ætti nýja línan hennar
að höfða vel til yngra fólks.
Gæðaskartgripir á
hagstæðu verði
Athygli vekur hvað skartgrip-
irnir á bylovisa.com eru á
hagstæðu verði. Engu að síð-
ur er um gæðavöru að ræða.
„Mitt markmið er að fólki
finnist gæði og verð á skart-
gripunum mínum það gott
að það kaupi fyrir sig sjálft ef
það langar í en ekki eingöngu
í gjafir,“ segir Lovísa.
Lovísa er með verkstæði
í Garðabænum, þangað er
hægt að kíkja og eiga við-
skipti. Best er hins vegar að
skoða úrvalið á bylovisa.com
og annaðhvort kaupa þar
og fá heimsent eða setja inn
skilaboð á síðuna og komast
þannig í samband við Lovísu.
Skartgripalínur Lovísu H.
Olesen eru einnig til sölu í
verslunum vítt og beitt um
landið, sjá nánar upplýsingar
á bylovisa.com.
Lovísa H. Olesen gullsmiður
Nafnahálsmen eru vinsæl –
en það þarf ekki endilega að
áletra nafn, fallegt orð eða
setning getur verið enn
persónulegri.
„Þessi skartgripalína er skemmti-
leg og lífleg og er vísun í hvernig
oft er hægt að gera einfalda
hluti svo flókna“
„Skartgripirnir í Rains eru fínlegir,
ég raða mörgum litlum einingum
saman sem skapa eina heild“
ByLOVISA.cOM
Steinninn liggur laus inni í svona hálsmeni: Þú getur valið þinn lit.
Unicorn er ný skartgripalína –
hún er unnin úr oxideruðu silfri
og bronsi.