Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2017, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2017, Page 32
32 lífsstíll Helgarblað 3. nóvember 2017 Kaffi Er jafn hollt og það er gott. Humar Er mjög ríkur af andoxunar- efnum. Egg Styrkja neglurnar. Avókadó Rétt magn kemur í veg fyrir húð- vandamál. 10 fæðutegundir sem hafa góð áhrif á húðina Svona getur þú komið í veg fyrir að vera með þurra og föla húð í vetur Kaffi Þeir sem drekka kaffi daglega eru í góðum málum. Hágæða, nýmalað kaffi inniheldur efni sem verja húðina gegn húðkrabbameini. Rannsóknir benda til þess að því meira kaffi sem fólk drekkur því minni líkur séu á að það fái húðkrabbamein. Vatnsmelóna Þessi rauði, vatnsmikli og dísæti ávöxtur er stútfullur af andox- unarefnum sem meðal annars hjálpa líkamanum að berjast á móti skemmdum í húðinni af völdum útfjólu- blárra geisla sólarinnar. Granatepli Fræin í ávextinum eru stút- full af andoxunarefnum og C-vítamínum sem koma í veg fyrir fínar línur og þurrk í húð- inni. Niðurstöður rannsóknar sem birtist í American Journal of Clinical Nutrition sýndu fram á að þeir sem neyta fæðu- tegunda sem innihalda mikið C-vítamín eru ólíklegri til að fá þurra húð og hrukkur þegar komið er á miðjan aldur. Bláber Það er ekki að ástæðulausu sem bláber komast alltaf inn á lista yfir of- urfæðu. Þau eru stútfull af C- og E-vítamínum sem hafa gríðar- lega góð áhrif á húðina. Humar er stútfullur af sinki og andoxunarefnum sem hjálpa til við að koma jafnvægi á húðina. Til dæmis er fólki sem er með bólur í húðinni ráðlagt að borða humar reglu- lega. Sinkið gerir að verkum að húðfrumurnar skipta sér oftar. Þar af leiðandi er sink mikið notað í lyf gegn bólum í húð. Grænkál Grænt salat og grænmeti er ríkt af K-vítamíni og járni. Þeir sem eru lágir í járni eru oftar en ekki með föla húð sem gerir að verkum að hún virkar glær. Því er um að gera að bæta grænu grænmeti við mataræðið ef þú gerir það ekki nú þegar. Egg Neglurnar þínar eru úr próteini. Þeir sem innbyrða ekki nógu mikið prótein eru því oft með mýkri og brothættari neglur. Egg hafa gríðarlega góð áhrif á neglur þar sem þau eru stútfull af próteini, B-vítamín- um og amínósýrum Valhnetur Omega 3 fitusýrur, til inntöku, hafa góð áhrif á hárið þar sem náttúrulegar olíurnar viðhalda fituframleiðslu sem nærir það. Að auki eru valhnetur mjög ríkar af kopar sem viðhalda háralitnum. Það gæti verið gott að vita fyrir þau okkar sem hræðumst gráu hárin. Ráðlagð- ur dagskammtur af valhnetum er ¼ bolli. Avókadó Ávöxturinn er stútfullur af góðum fitu- sýrum á borð við Omega 9 sem viðheldur heilbrigðri fitufram- leiðslu húðarinnar og kemur í veg fyrir þurrk. Ef þú borðar rétt magn af avókadó þá ætti þurrk- ur í húð að vera úr sögunni áður en langt um líður. Kantalópu melóna Þessi sæta melóna inniheldur A-vítamín sem talið er geta hjálpað húðfrumum að fjölga sér hraðar. Að því sögðu hjálpar hún svitaholum að haldast hreinar og húðinni frá því að flagna. O ftar en ekki má koma í veg fyrir hina ýmsu húðkvilla með breyttu mataræði. Að borða hollan mat hef- ur ekki aðeins góð áhrif á mittis- línuna, ónæmiskerfið og líkam- lega og andlega líðan. Mataræðið getur einnig skipt sköpum fyrir heilbrigða húð, hár og neglur. Þá hefur mataræði bein áhrif á and- lega líðan og það hvernig við eldumst. Hér má sjá lista yfir 10 fæðutegundir sem eiga það sam- eiginlegt að vera gríðarlega hollar og næringarríkar. 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Bláber Eru gómsæt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.