Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2017, Síða 32
32 lífsstíll Helgarblað 3. nóvember 2017
Kaffi Er jafn hollt og það er gott.
Humar Er mjög ríkur af andoxunar-
efnum.
Egg Styrkja neglurnar.
Avókadó Rétt magn kemur í veg fyrir húð-
vandamál.
10 fæðutegundir sem
hafa góð áhrif á húðina
Svona getur þú komið í veg fyrir að vera með þurra og föla húð í vetur
Kaffi Þeir sem drekka
kaffi daglega eru í góðum
málum. Hágæða, nýmalað
kaffi inniheldur efni sem verja
húðina gegn húðkrabbameini.
Rannsóknir benda til þess að
því meira kaffi sem fólk drekkur
því minni líkur séu á að það fái
húðkrabbamein.
Vatnsmelóna Þessi rauði,
vatnsmikli og dísæti
ávöxtur er stútfullur af andox-
unarefnum sem meðal annars
hjálpa líkamanum að
berjast á móti skemmdum í
húðinni af völdum útfjólu-
blárra geisla sólarinnar.
Granatepli Fræin í
ávextinum eru stút-
full af andoxunarefnum og
C-vítamínum sem koma í veg
fyrir fínar línur og þurrk í húð-
inni. Niðurstöður rannsóknar
sem birtist í American Journal
of Clinical Nutrition sýndu fram
á að þeir sem neyta fæðu-
tegunda sem innihalda mikið
C-vítamín eru ólíklegri til að
fá þurra húð og hrukkur þegar
komið er á miðjan aldur.
Bláber Það er ekki að
ástæðulausu sem bláber
komast alltaf inn á lista yfir of-
urfæðu. Þau eru stútfull af C- og
E-vítamínum sem hafa gríðar-
lega góð áhrif á húðina.
Humar er stútfullur af sinki
og andoxunarefnum sem
hjálpa til við að koma jafnvægi
á húðina. Til dæmis er fólki
sem er með bólur í húðinni
ráðlagt að borða humar reglu-
lega. Sinkið gerir að verkum að
húðfrumurnar skipta sér oftar.
Þar af leiðandi er sink mikið
notað í lyf gegn bólum í húð.
Grænkál Grænt
salat og
grænmeti er ríkt af
K-vítamíni og járni. Þeir
sem eru lágir í járni eru oftar
en ekki með föla húð sem gerir
að verkum að hún virkar glær.
Því er um að gera að bæta grænu
grænmeti við mataræðið ef þú
gerir það ekki nú þegar.
Egg Neglurnar þínar eru úr
próteini. Þeir sem innbyrða
ekki nógu mikið prótein eru því
oft með mýkri og brothættari
neglur. Egg hafa gríðarlega góð
áhrif á neglur þar sem þau eru
stútfull af próteini, B-vítamín-
um og amínósýrum
Valhnetur Omega 3
fitusýrur, til inntöku,
hafa góð áhrif á hárið þar sem
náttúrulegar olíurnar viðhalda
fituframleiðslu sem nærir það.
Að auki eru valhnetur mjög
ríkar af kopar sem viðhalda
háralitnum. Það gæti verið
gott að vita fyrir þau okkar sem
hræðumst gráu hárin. Ráðlagð-
ur dagskammtur af valhnetum
er ¼ bolli.
Avókadó Ávöxturinn er
stútfullur af góðum fitu-
sýrum á borð við Omega 9 sem
viðheldur heilbrigðri fitufram-
leiðslu húðarinnar og kemur í
veg fyrir þurrk. Ef þú borðar rétt
magn af avókadó þá ætti þurrk-
ur í húð að vera úr sögunni áður
en langt um líður.
Kantalópu melóna Þessi
sæta melóna inniheldur
A-vítamín sem talið er geta
hjálpað húðfrumum að fjölga sér
hraðar. Að því sögðu hjálpar hún
svitaholum að haldast hreinar
og húðinni frá því að flagna.
O
ftar en ekki má koma í veg
fyrir hina ýmsu húðkvilla
með breyttu mataræði.
Að borða hollan mat hef-
ur ekki aðeins góð áhrif á mittis-
línuna, ónæmiskerfið og líkam-
lega og andlega líðan. Mataræðið
getur einnig skipt sköpum fyrir
heilbrigða húð, hár og neglur. Þá
hefur mataræði bein áhrif á and-
lega líðan og það hvernig við
eldumst. Hér má sjá lista yfir 10
fæðutegundir sem eiga það sam-
eiginlegt að vera gríðarlega hollar
og næringarríkar.
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Bláber Eru gómsæt.