Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2017, Qupperneq 60
Vel mælt Afmælisbörn vikunnar
„Pólitískur hæfileiki er hæfileikinn til
að segja fyrir um, hvað muni gerast
á morgun, í næstu viku, í næsta mánuði
og næsta ár. Og að hafa hæfileikann til
að útskýra eftir á hvers vegna það gerðist
ekki.- Winston Churchill
egill Helgason
Starf: Sjónvarpsmaður og samfélagsrýnir
Fæddur: 9. nóvember 1959
58
ára
Óttarr ProPPé
Starf: Rokkari og stjórnmálamaður
Fæddur: 7. nóvember 1968
49
ára
66
ára
53
ára
Helga Braga
Starf: Leikkona og flugfreyja
Fædd: 5. nóvember 1964
Orðabanki Birtu: Kverúlant
„Á ég að
gera það?“
Kverúlant er sannarlega ekki skemmtileg týpa en svo er þeim lýst sem tuðar og kvartar yfir sem allra flestu.
Á Vísindavefnum útskýrir prófessor Guðrún
Kvaran þetta orð sem hún segir danska slettu.
„Í dönsku er kværulant notað um þann sem er
kvartsár og aðfinnslusamur. Það á rætur að rekja
til latínu en sögnin qveror merkir að 'kvarta yfir
einhverju' og nafnorðið qverulus er notað um
þann sem kvartar.“
Orðið er mikið algengara í tal- en ritmáli og
því eru ekki miklar heimildir um það hjá
Árnastofnun
Og hver er svo kverúlant? Margir muna til
dæmis eftir karakternum Indriða úr Fóst-
bræðraþáttunum, en sá kvartaði í mjög löngu
máli yfir sem allra flestu, meðal annars suði í
ofnum og fleiru. Spurði svo hneykslaður hver ætti
að gera við þá „Á ÉG að gera það?“
Ætli Indriði blessaður sé ekki holdgervingur
kverúlantanna? Vonum að hann stofni ekki stjórn-
málaflokk.
Úr íslensku orðabókinni
kverú|lant • maður sem veldur leiðindum
með sífelldu tali og málarekstri um tiltekið
málefni eða út frá tilteknum sjónarhól
maður sem sífellt nöldrar og naggar,
nöldurseggur. maður sem veldur leiðindum
með sífelldu tali og málarekstri um tiltekið
málefni eða út frá tilteknum sjónarhól.
Samheiti
illindaseggur, illindaskjóða, jagskjóða,
nöldrari, nöldrunarseggur, nöldurkarl, nöldur-
skepna, nöldurskjóða, ólundarfugl
sigurður g. guðjÓnsson
Starf: Lögmaður og blaðaútgefandi
Fæddur: 8. nóvember 1951
VikuBlað 3. nóvember 2017 12